Áfram lokað á gossvæðinu Áfram verður lokað á gossvæðinu á Reykjanesskaga vegna mengunarhættu. Þetta kemur fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurnesjum. 6.4.2021 10:14
Segja bresku lyfjastofnunina vera að íhuga að endurskoða notkun bóluefnisins frá AstraZeneca Breska lyfjastofnunin (MHRA) segir enga ákvörðun hafa verið tekna varðandi breytingar á notkun Covid-19 bóluefnisins frá AztraZeneca en Channel 4 News greindi frá því í gær að verið væri að skoða að hætta notkun bóluefnisins í yngri aldurshópum. 6.4.2021 09:16
Sakar stjórnir Alvogen og Alvotech um aðgerðarleysi og hvítþvott Halldór Kristmannsson hefur sent stjórnum Alvogen og Alvotech nýja sáttartillögu, „þrátt fyrir að fyrirtækin hafi á einum og sama deginum rift ráðningarsamningi fyrirvaralaust, höfðað mál, lekið nafni hans í fjölmiðla og birt fréttatilkynningar, þar sem fram kom að enginn fótur væri fyrir ásökunum.“ 6.4.2021 08:57
Sakar Markle og Harry um „lygar á alheimsskala“ Piers Morgan heldur fast í þær fullyrðingar sínar að Meghan Markle og Harry Bretaprins hafi logið í viðtali við Opruh Winfrey á dögunum og segist njóta stuðnings verulegs meirihluta bresku þjóðarinnar. 6.4.2021 07:59
Segist hafa fengið uppsagnarbréf og stefnu fyrir utan World Class „Ég hef talsverðar áhyggjur af því að aðgerðarleysi Alvogen og Alvotech gagnvart Róbert Wessman kunni að skaða orðspor fyrirtækjanna.“ Þetta hefur Morgunblaðið eftir Halldóri Kristmannssyni, sem segist enn vilja útkljá umkvartanir sínar vegna stjórnarhátta og hegðunar Róberts í sátt utan dómstóla. 6.4.2021 06:46
Ungar stúlkur í sjálfheldu á Helgafelli Lögregla var kölluð til í gærkvöldi þegar tvær ungar stúlkur lentu í sjálfheldu á Helgafelli í Mosfellsbæ. Stúlkurnar voru aðstoðaðar niður og ekið heim til sín en samkvæmt dagbók lögreglu amaði ekkert að þeim annað en kuldi. 6.4.2021 06:15
Páskaeggin við það að klárast Það fer nú hver að verða síðastur að tryggja sér páskaegg en þau eru að klárast í flestum verslunum. Þetta staðfesta framkvæmdastjórar Hagkaup og Krónunnar og þá hefur Vísir fengið það staðfest að handgerð páskaegg Hafliða Ragnarssonar séu uppseld. 3.4.2021 15:20
Bóluefni virðast örugg og veita bæði móður og barni vörn Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að það sé bæði öruggt og áhrifaríkt að bólusetja þungaðar konur. Þá benda þær til þess að bólusetning veiti barninu einnig vörn gegn Covid-19. 3.4.2021 13:19
Minna en helmingur Bandaríkjamanna segist tilheyra trúarsöfnuði Minna en helmingur fullorðinna Bandaríkjamanna segist tilheyra kirkju, sýnagógu eða mosku, samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Könnunin leiddi í ljós að aðeins 47 prósent tilheyra trúarsöfnuði en hlutfallið var 70 prósent rétt fyrir aldamót. 3.4.2021 11:52
Ítalir skella í lás yfir páska: Um 20 þúsund greinast á degi hverjum Ítalía er eldrauð þegar kemur að kórónuveirufaraldrinum og hefur allt verið sett í lás í þrjá daga til að koma í veg fyrir enn meiri fjölgun tilvika yfir páska. Um 20 þúsund ný tilfelli Covid-19 greinast nú á degi hverjum. 3.4.2021 10:23