Tugþúsundir heilbrigðisstarfsmanna þjást af langvarandi Covid Að minnsta kosti 122 þúsund starfsmenn opinberu heilbrigðisþjónustunnar (NHS) þjást af langvarandi áhrifum Covid-19, samkvæmt hagstofu Bretlands. Stjórnendur NHS eru uggandi vegna áhrifa þessa á mönnun. 3.4.2021 08:58
Lokað fyrir umferð að gosstöðvunum í dag Vegna veðurs verður lokað fyrir umferð að gosstöðvunum í Geldingadölum í dag. Þetta kom fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum í gær og stendur enn, að sögn Gunnars Schram yfirlögregluþjóns. 3.4.2021 08:02
Sleginn í höfuðið af grímuklæddum árásarmanni Maður hafði samband við lögreglu snemma í gærkvöldi og sagðist hafa orðið fyrir árás af höndum grímuklædds manns í hverfi 105. Sagði hann árásarmanninn hafa slegið sig í höfuðið með áhaldi og þá reyndist hann einnig með áverka á hendi. 3.4.2021 07:06
Cocoa Puffs og Lucky Charms verða ekki fáanleg á Íslandi Cocoa Puffs og Lucky Charms verða brátt ófáanleg á Íslandi ef marka má tilkynningu frá Nathan & Olsen. Þar segir að framleiðandinn General Mills hafi nýlega upplýst að ný uppskrift samræmist ekki Evrópulöggjöf. 31.3.2021 13:58
Bóluefni Pfizer með fullkomna virkni hjá tólf til fimmtán ára Forsvarsmen Pfizer segja nýjustu rannsóknir sýna að bóluefni fyrirtækisins gegn Covid-19 sé 100 prósent virkt þegar það er gefið börnum á aldrinum 12 til 15 ára og framkalli öflugt ónæmisviðbragð. 31.3.2021 13:09
Ekki alvarleg nauðgun fyrst þolandinn valdi að verða ölvaður Dómstólar í Minnesota í Bandaríkjunum máttu ekki dæma mann fyrir alvarlega (e. felony) nauðgun, þar sem konan sem hann braut gegn neytti áfengis sjálfviljug áður en árásin átti sér stað. 31.3.2021 11:51
Efnamengun á gossvæðinu getur haft skaðleg áhrif á hunda Mikil mengun er á gossvæðinu í Geldingadölum sem getur haft skaðleg áhrif á hunda og jafnframt hætta á ýmis konar slysum. Matvælastofnun mælir eindregið gegn því að hundar séu teknir með að gossvæðinu. 31.3.2021 10:37
Grindvíkingar rafmagnslausir í tuttugu mínútur „Þetta var nú bara stutt rafmagnsleysi núna,“ segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, en nú fyrir stundu sló rafmagninu út í bænum í um 20 mínútur. Orsakirnar eru ókunnar en heppilegt að það gerðist ekki seinna í dag, þegar fjarbæjarstjórnarfundur er á dagskrá, segir Fannar. 30.3.2021 15:34
Orð gegn orði og óljóst hve biðin er löng Óskar Reykdalsson, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir heilsugæsluna aldrei hafa fengið þau svör að rannsóknir á leghálssýnum væru útboðsskyldar. Þetta gengur þvert á fullyrðingar Kristjáns Oddssonar, verkefnastjóra Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana. 30.3.2021 12:31
Telja töluverðar líkur á að alvarleg afbrigði fuglaflensu berist til landsins Sérfræðingahópur hefur komist að þeirri niðurstöðu að töluverðar líkur séu á því að alvarleg afbrigði fuglaflensuveirunnar berist hingað með farfuglum, sem farnir eru að streyma til landsins. 30.3.2021 11:09