Garðabær gefur grænt ljós á bálstofu og athafnahús sem verður opið öllum Fyrirtækið Tré lífsins hefur fengið heimild hjá Garðabæ til að byggja allt að 1.500 fermetra byggingu norðan við Vífilsstaðavatn, með salarkynnum fyrir athafnir á borð við skírnir, hjónavígslur og útfarir, auk bálstofu. 16.9.2021 06:45
Ekið á barn og þvotti stolið úr sameiginlegu þvottahúsi Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust tvær tilkynningar í gær um árekstur í Kópavogi. Í öðru tilvikinu var ekið á barn á rafmagnshlaupahjóli en samkvæmt tilkynningu lögreglu virðist barnið hafa sloppið ómeitt. 16.9.2021 06:17
100 dagar til jóla: „Það eru gestirnir sem koma með jólin til mín“ Slagorð Ikea hefur löngum verið „Jólin þín byrja í Ikea“. Síðustu ár hafa jólin komið í Ikea í október en nágranninn Costco hefur nú þegar hafið sölu á einstaka jólavöru og þar geta jólabörn nú þegar fest kaup á mannhæðarháum hnotubrjót, jólaljósum og gjafapappír. 15.9.2021 15:04
Skarðshlíðarleikskóli lokaður í dag vegna smits meðal nemenda Skarðshlíðarleikskóli í Hafnarfjarðarbæ var lokaður í dag vegna Covid-19 smits. Um er að ræða eitt barn af um 80 sem skráð eru á fjögurra deilda leikskólann. 15.9.2021 14:05
Metfjöldi umsagna um frumvarp sem bannar bælingarmeðferð Metfjöldi umsagna hefur borist um frumvarp stjórnvalda á Nýja-Sjálandi sem bannar svokallaðar bælingarmeðferðir (e. conversion therapy) gegn samkynhneigð. Stuðningsmenn eru vongóðir um að meirihluti umsagnaraðila séu fylgjandi frumvarpinu. 15.9.2021 08:48
Bandarískir háskólar hyggjast rannsaka tengslin milli bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna Rannsakendur við fimm bandarískir háskólar hyggjast nú gera langtíma rannsókn á mögulegum tengslum bólusetninga og breytinga á tíðahring kvenna. Margar konur hafa greint frá breytingum í kjölfar bólusetningar gegn Covid-19 en enn sem komið er hefur ekki verið sýnt fram á að um orsakasamband sé að ræða. 15.9.2021 08:02
Þrír handteknir og tveir fluttir á sjúkrahús í kjölfar líkamsárásar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust nokkrar tilkynningar um ölvun og grunsamlegar mannaferðir í gærkvöldi. Í tilkynningu kemur ekki fram nákvæmlega hvar en allar heyrðu þær undir umdæmið Austurbær, Miðbær, Vesturbær og Seltjarnarnes. 15.9.2021 06:32
Tilkynnt um líkamsárás í kjölfar dyraats Frá 19 í gærkvöldi til 5 í morgun voru 45 mál skráð í málaskrá lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá gista fimm einstaklingar fangageymslur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 15.9.2021 06:25
Ný reglugerð tekur gildi á miðnætti: 500 mega koma saman og opnunartími lengdur Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um sóttvarnaaðgerðir en samkvæmt henni munu 500 geta komið saman án takmarkana og opnunartími skemmtistaða verður lengdur um klukkustund, það er að segja að staðirnir mega hleypa gestum inn til miðnættis en verða að vera búnir að loka klukkan eitt. 14.9.2021 11:47
Lögmaður Andrésar segir samkomulag Giuffre og Epstein fría prinsinn ábyrgð Lögmaður Andrésar, hertogans af York, segir kæru Virginiu Giuffre á hendur prinsinum rakalausa og óframfylgjanlega. Hann segir sátt Giuffre við Jeffrey Epstein leysa Andrés undan allri ábyrgð og þá hafi honum ekki verið birt stefna með réttum hætti. 14.9.2021 09:13