Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Heilbrigðisstarfsmenn og starfsfólk sjúkrahúsa í Íran segja allt að 30 þúsund hafa verið drepna í aðgerðum stjórnvalda gegn mótmælendum í landinu. Yfirvöld hafa gefið út að um 3.000 hafi látist, á meðan mannréttindasamtök segja fjöldann að minnsta kosti yfir 6.000 og þá séu 17.000 dauðsföll til viðbótar til rannsóknar. 27.1.2026 08:47
Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Fulltrúar Evrópusambandsins og Indlands hafa lagt lokahönd á fríverslunarsamning sem hefur verið í smíðum, með hléum, í nærri tvo áratugi. Báðir aðilar eru sagðir freista þess að styrkja tengslin sín á milli og við önnur ríki heims, meðal annars vegna óútreiknanlegrar framgöngu Bandaríkjanna á alþjóðasviðinu. 27.1.2026 07:42
Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Svo virðist sem gríðarleg reiði og hörð gagnrýni vegna framgöngu innflytjendayfirvalda í Minneapolis sé farin að hafa áhrif á stjórnvöld vestanhafs en erlendir miðlar greina frá því að ákvörðun hafi verið tekin um að láta Greg Bovino, sem farið hefur fyrir aðgerðum í borginni, snúa aftur til fyrri starfa í Kaliforníu. 27.1.2026 06:48
Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Yfirvöld í Ísrael hafa greint frá því að umfangsmiklar aðgerðir standi yfir á Gasa sem snúa að því að freista þess að finna líkamsleifar lögreglumannsins Ran Gvili. Hann er eini gíslinn sem Hamas-samtökin tóku þann 7. október 2023 sem hefur ekki verið skilað. 26.1.2026 07:27
Morðið á Pretti gagnrýnt úr öllum áttum Gríðarleg reiði hefur gripið um sig í Minnesota og víðar í Bandaríkjunum í kjölfar þess að hjúkrunafræðingurinn Alex Pretti, 37 ára, var skotinn til bana af fulltrúum innflytjendayfirvalda í Bandaríkjunum á laugardag. 26.1.2026 06:53
Handtekinn grunaður um íkveikju Einn var handtekinn í gærkvöldi eða nótt, grunaður um íkveikju, þegar útkall barst vegna elds í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu. Eldurinn reyndist minniháttar en mikill reykur var í íbúðinni þar sem hann kom upp. Slökkvilið annaðist slökkvistarf en lögregla tók við vettvangnum eftir að því lauk og er málið í rannsókn. 26.1.2026 06:13
Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Sex særðust, þar af tveir alvarlega, í hnífaárás á mótmælum í Antwerpen í Belgíu í gærkvöldi. Lögregla handtók tvo einstaklinga í tengslum við árásina en segir ekki um hryðjuverk að ræða. 23.1.2026 07:30
Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist hafa dregið til baka boð sitt til Kanada um sæti í svokallaðri „Friðarstjórn“, ef marka má færslu forsetans á Truth Social í nótt. 23.1.2026 06:48
Fann innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu Húseigandi á höfuðborgarsvæðinu setti sig í samband við lögreglu í gærkvöldi eða nótt og tilkynnti um að brotist hefði verið inn hjá sér. Lögregla fór strax á staðinn, enda aðstæður þannig að húsráðandi hafði fundið innbrotsþjófinn sofandi á heimilinu. 23.1.2026 06:27
Kaupsamningum fækkaði tímabundið vegna vaxtamálsins Kaupsamningum í nóvember 2025 fækkaði um 17 prósent milli ára og voru aðeins 779 talsins, líklega vegna tímabundins skerts aðgengis að íbúðalánum í kjölfar dóms Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða um miðjan október. Frá þessu er greint í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. 22.1.2026 06:56