Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Hægara sagt en gert að ná lé­legum myndum

Frönsk kona sem þykir hinn versti ljósmyndari lauk hringferð um Ísland á dögunum. Markmið ferðalagsins var að reyna að ná lélegum myndum af íslenskri náttúru. Hún komst þó að því að það væri hægara sagt en gert.

Nýr kok­teil­bar opnaður á Hverfis­götu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“

Kokteilbarinn Resident Room er opnaður í dag, miðvikudaginn 8. júlí, dyr sínar að Hverfisgötu 26 þar sem veitingastaðurinn Matbar var áður til húsa. Það eru útvarpsþáttastjórnandinn Daníel Jón Baróns sem starfar á Rás 2 og barþjónninn Ásgeir Már Björnsson, sem er nýfluttur aftur heim eftir að hafa starfað lengi erlendis, sem stýra barnum en þeir ætla sér að „hrista rækilega upp í íslensku kokteilsenunni“.

Heilsu­fars­skoðanir skuli fram­kvæmdar að lág­marki fjórum sinnum

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur staðfest nýja reglugerð um skólaheilsugæslu grunnskólabarna. Með henni er í fyrsta sinn mörkuð heildstæð umgjörð um skipulag og framkvæmd skólaheilsugæslu á landsvísu. Reglugerðin tekur gildi 1. janúar 2027 en meðal breytinga sem gerðar voru eru aukin áhersla á geðheilbrigði, endurskoðuð ákvæði um tannheilsu barna og aukin fræðsla um kynheilbrigði.

„Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lamba­læri“

Enn hefur ekki fundist skýring á því hvernig stærðarinnar, og kryddað, lambalæri og svo seinna steikarsneiðar og flatkökur enduðu í móa við Hafravatn, langt frá næstu mannabyggð. Kona sem var á hlaupaæfingu í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins og uppgötvaði matinn þegar hundarnir hennar tveir þefuðu hann uppi segist ekki halda að lærið hafi verið eitrað en skilur hvorki upp né niður í því hvernig það endaði á þessum slóðum.

Tóku sýni úr munni móðurinnar og rann­saka mögu­legt mann­át

Móðir fjögurra ára gamals drengs sem fannst látinn í bænum Wyong í suðvesturhluta Ástralíu á laugardag, þann 4. júlí, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir morðið á syni sínum. Lögregla rannsakar nú hvort mannát hafi átt sér stað í tengslum við atvikið en barnaverndaryfirvöld í fylkinu hafa einnig hafið sjálfstæða rannsókn vegna tilkynninga sem þeim bárust fyrir andlátið.

Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum

Eigandi hunds sem fannst dauður við Langjökul á dögunum er enn ófundinn. Fjölmargir hafa þegar sett sig í samband við sjálfboðaliðasamtökin Dýrfinnu. Meðal þess sem þeim hefur borist var ábending um hund sem týndist fyrir tæpum fjörutíu árum. Hann var ekki með eins litaða ól og sá sem fannst og er því útilokað að um sama hund sé að ræða.

Ekkert bendi til annars en að um slys hafi verið að ræða

Rannsókn stendur enn yfir eftir að öldruð kona féll fram af svölum á Eir hjúkrunarheimili í Grafarvogi sunnudaginn 28. júní með þeim afleiðingum að hún lést. Andlátið hefur verið rannsakað sem slys og verður það áfram nema eitthvað óvænt komi í ljós í niðurstöðum krufningar.

Enginn hand­tekinn en á­fram á­ætlað að sömu aðilar hafi verið að verki

Tvö áþekk innbrot voru framin í byrjun sumars, fyrst í svínabú Stjörnugríss í Brimnesi á Kjalarnesi aðfaranótt mánudagsins 11. maí en síðar í Reykjabú í Mosfellsbæ, þar sem ræktaðir eru kalkúnar og kjúklingar, aðfaranótt mánudagsins 1. júní. Rannsókn beggja mála er ólokið og hefur enginn verið handtekinn en lögreglan hefur leitað að vitnum síðan í upphafi júní.

Efast um að fólk í undir­heimunum pæli í tuftvélinni

Um helmingur þýfisins sem var stolið af vinnustofu Karenar Briem og Antons Lyngdal aðfaranótt laugardagsins, 4. júlí, hefur ratað aftur heim en aðeins annar þjófurinn hefur verið handsamaður. Hugleikur Dagsson, grínisti og eiginmaður Karenar, rifjaði það upp í viðtali á Vísi að Bubbi Morthens hafi aðstoðað sig við að endurheimta harðan disk fyrir um áratug síðan en hann hefur ekki enn verið ræstur út þessa ferðina.

Að­sóknar­met slegið á brúðulistahátíð á Hvamms­tanga

Brúðulistahátíðin HIP-fest (Hvammstangi international puppetry festival) var haldin í fimmta sinn dagana 26., 27. og 28. júní en þátttakendur í ár voru frá jafn mörgum mismunandi löndum. Handbendi brúðuleikhús stendur fyrir hátíðinni en gestir ferðuðust sumir víða að, þar á meðal frá Havaí, Kína og Finnlandi.

Sjá meira