Skjálftahrina á Hellisheiði hófst í morgun Rétt fyrir klukkan sjö í morgun hófst skjálftahrina á Hellisheiði en alls hafa um hundrað og tuttugu skjálftar mælst síðan þá. Sá stærsti, óyfirfarin stærð, var um 3,2 að stærð nú klukkan 17:15 og það voru nokkrir aðrir sem náðu nánast 3 að stærð. 31.5.2026 17:42
Menntaskólanum í Reykjavík slitið í 180. sinn Menntaskólinn í Reykjavík (MR) brautskráði í gær 195 stúdenta við hátíðlega athöfn í Háskólabíói. 35 af máladeildum, 36 af eðlisfræðideildum og 124 af náttúrufræðideildum. Var skólanum formlega slitið í 180. sinn við lok athafnarinnar. 30.5.2026 23:02
Fleiri ferðir felldar niður og ekkert samkomulag í sjónmáli Kjaradeila Icelandair og flugmanna er orðin að stærri umræðu um framtíð félagsins og traust eigenda á rekstrinum. Icelandair hefur tapað um áttatíu milljörðum króna frá árinu 2018 og hafa nú fjárfestar lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Meðal stærstu hluthafa eru íslenskir lífeyrissjóðir sem eiga saman stærri hlut en stærsti einstaki hluthafinn. 30.5.2026 22:20
Mugison þakkar innilega fyrir sig Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, vann til verðlauna í gær en hann hlaut Eddu fyrir tónlistina í þáttunum Felix & Klara. Hann segist ekki hafa verið að búast við verðlaununum en að það hafi verið algjör unun að geta unnið ásamt Ragnari Bragasyni og þakkar einnig fjölda fólks sem kom að verkinu. 30.5.2026 21:47
Hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum frá upphafi Benedikt Fazakerley Richardsson á tölvubraut var dúx Fjölbrautarskólans í Breiðholti nú á dögunum með einkunnina 9,83 sem er hæsta einkunn sem hefur verið gefin á stúdentsprófi í skólanum. Erlendur Stefán Gíslason var semídúx með einkunnina 9,78 en þeir eru góðir vinir og kepptust um að vera með bestu meðaleinkunnina við útskrift. 30.5.2026 20:45
Fimm handteknir og um mikið magn sterkra fíkniefna að ræða Fimm menn voru í dag úrskurðaðir í tíu daga gæsluvarðhald í kjölfar þess að upp komst að þeir hefðu tekið þátt í innflutningi mikils magns fíkniefna. Handtökur þeirra fóru fram í Reykjavík og Hveragerði. 30.5.2026 19:39
„Okkur þykir vænt um svæðið og við höfum áhyggjur af því“ Ríflega þúsund hafa þegar skrifað undir undirskriftalista sem ber yfirheitið Hvaleyrarvatn - ekki byggja í Vatnshlíð en í tillögu að nýju Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2025-2040 er gert ráð fyrir íbúðabyggð við vatnið. Á vef Hafnarfjarðar segir að „Hvaleyrarvatn og umhverfi sé eitt það fallegasta á höfuðborgarsvæðinu" og eru þar fjölmargar gönguleiðir. 30.5.2026 19:10
Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020. 30.5.2026 18:03
Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Marcia Lucas, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu á einni af Stjörnustríðsmyndunum í leikstjórn fyrrverandi eiginmanns síns, George Lucas, lést á miðvikudaginn, þann 27. maí, í Rancho Mirage í Kaliforníu. Hún var áttatíu ára þegar hún lést og hefur bandaríski miðillinn Variety eftir lögmanni fjölskyldunnar sem staðfesti að hún hefði látist úr krabbameini. 30.5.2026 00:01
Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Í tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér er fólk varað við svikurum sem hafa undanfarið sent út tölvupósta í nafni bankans. Þar er fólk blekkt til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og gefa upp öryggisnúmer. 29.5.2026 22:53