Hiti á bilinu sjö til tuttugu stig Í dag verður norðlæg átt, 3 til 10 metrar á sekúndu og yfirleitt bjart en norðvestan 8 til 15. Skýjað og sums staðar dálítil væta austanlands fram eftir degi. Hviður eru enn að 25 metrum á sekúndu, til dæmis í Hamarsfirði sem geta verið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. 2.8.2026 07:20
Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Hversu vel fylgist þú með? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 2.8.2026 06:00
Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Eldur kviknaði í sumarhúsi við Þingvallavatn á laugardagskvöld og varð húsið fljótt alelda. Greiðlega gekk að ná niðurlögum eldsins og var slökkvistarfi lokið um eittleytið í nótt. Húsið er talið gjöreyðilagt. 1.8.2026 21:57
Guðmundur Felix kominn með krabbamein Guðmundur Felix Grétarsson hefur greinst með krabbamein í nefi og þarf að láta fjarlægja það. Hann fékk fregnirnar í fyrradag og hafði búið sig undir það versta. Guðmundur segist hafa séð það svartara og ætla að berjast við þetta eins og annað. 1.8.2026 13:02
Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Leiðsögumanni blöskrar að fólk stundi það að gefa villtum refum að éta við ferðamannastaði án þess að hugsa út í hvaða áhrif það kunni að hafa á dýrin. Í myndskeiði sem Þórir Sæmundsson deilir á samfélagsmiðlum sést refur vappa um bílastæði við Sólheimajökul. Líffræðingur segir óeðlilegt að refurinn hangi á bílastæðinu og ekki eigi að fóðra villt dýr. 1.8.2026 12:30
Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Lögregla fer ekki fram á gæsluvarðhald yfir áhöfn skipsins Bandero sem er sögð hafa ógnað hvalveiðiskipi sem var við veiðar á fimmtudag. Við fjöllum um málið í hádegisfréttum. 1.8.2026 11:50
Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum Sex fíkniefnamál komu upp á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í gær og hafði lögregla afskipti af einum vegna ölvunaraksturs. Einnig var nokkrum veitt aðstoð vegna ölvunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu en fíkniefnamálin eru sögð minniháttar. Rólegra virðist hafa verið hjá lögreglunni fyrir norðan. 1.8.2026 11:16
„Ég er skrímsli“ „Ég er skrímsli.“ Þetta er Ming Ting Mancel sögð hafa sagt við fyrstu skýrslutöku lögreglu þann 14. júní 2025 eftir að eiginmaður hennar og dóttir fundust látin á hótelherbergi þeirra á Reykjavík Edition-hótelinu um morguninn. Skýrslan var tekin á Landspítalanum þar sem hún lá með lífshættulegt stungusár. 1.8.2026 09:47
Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi á tíunda tímanum í gærkvöldi vegna manns sem hafði slasast alvarlega á fæti eftir fall í Vestmannaeyjum. 1.8.2026 08:15
Vara við snörpum vindhviðum Í dag verður norðan og norðvestanátt, 5 til 13 metrar á sekúndu en 10 til 18 austantil og hvassast á sunnanverðum Austfjörðum. Búast má þar við snörpum vindhviðum í vindstrengjum sem geta verið varasamar fyrir ökutæki og tengivagna sem taka á sig mikinn vind. 1.8.2026 07:25