Dua Lipa stal senunni á heimsfrumsýningu Barbie Það má með sanni segja að Barbie sé þekkt fyrir glamúr og náði glamúrinn ákveðnu hámarki í gærkvöldi þegar heimsfrumsýningin á Barbie myndinni fór fram í viðburðahúsinu Shrine Auditorium & Expo Hall í Los Angeles. 10.7.2023 12:31
„Kolbrún fyrir ári hefði aldrei leyft sér að dreyma um þetta“ „Það var stór stökkpallur að fara úr Músíktilraunum yfir í tónlistarbransann á Íslandi. Ótal dyr sem opnuðust, fullt af möguleikum og skemmtilegum tækifærum,“ segir tónlistarkonan Kolbrún Óskarsdóttir, sem notast við listamannsnafnið KUSK. Hún var að senda frá sér lagið Áttir allt sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM í dag. 8.7.2023 17:02
„Hef lært með árunum að álit annarra á mér kemur mér bara ekkert við“ Förðunarfræðingurinn Birkir Már Hafberg lýsir stílnum sínum sem tímalausum og stílhreinum en elskar þó stundum að leika sér með æpandi liti. Hann fer sínar eigin leiðir í tískunni, leggur upp úr því að klæða sig fyrir sjálfan sig og segir stíl sinn hafa þróast í einfaldari átt á undanförnum árum. Birkir Már er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 8.7.2023 11:31
„Ég hef alltaf verið mjög góður drengur“ „Fólk misskilur mig alveg klárlega og þó það sé alltaf að gerast sjaldnar og sjaldnar þá gerist það enn. Mér fannst það ógeðslega erfitt, leiðinlegt og pirrandi en það hefur eiginlega engin áhrif á mig í dag. Maður venst því alveg, eins og flestu,“ segir rapparinn Birgir Hákon. Blaðamaður hitti hann í kaffi og ræddi við hann um lífið og tilveruna. 8.7.2023 07:00
Ferðast um heiminn eins og alvöru Barbie dúkka Ástralska leikkonan, framleiðandinn og bomban Margot Robbie fer með hlutverk sögulegu dúkkunnar Barbie í samnefndri mynd. Handrit og leikstjórn þessarar nýstárlegu útgáfu af sögu Barbie er í höndum Gretu Gerwick og kemur hún út hérlendis 19. júlí. Robbie hefur nú verið á ferðalagi um heiminn að kynna kvikmyndina og virðist taka hlutverkinu alvarlega í raunheimum, þar sem hún klæðist oftar en ekki bleikum fötum frá fínustu tískuhúsum heimsins. 5.7.2023 10:10
„Í dag máttu vera allt og ég vil fagna því“ „Mig langaði að finna persónulegri nálgun við það að velja fólk á ljósmyndasýningu og á sama tíma gefa fjölbreyttum hópi fólks tækifæri til þess að taka þátt,“ segir tískuljósmyndarinn Kári Sverrisson, sem opnar sýninguna The Art of Being Me, eða Listin að vera ég, í miðbænum á Menningarnótt. Blaðamaður tók púlsinn á Kára. 4.7.2023 17:00
Fer óhrædd inn í framtíðina „Einhverjir hafa spurt mig hvort lagið fjalli um að vera foreldri og ég held að það sé að einhverju leyti rétt. Ég fékk allavega innblástur úr móðurhlutverkinu,“ segir tónlistarkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, jafnan þekkt sem GDRN. Hún var að senda frá sér lagið Parísarhjól en lagið kom nýtt inn á Íslenska listann á FM í dag. 1.7.2023 17:00
„Karlmenn voru með særandi athugasemdir og reyndu við mig á niðrandi hátt“ Dansarinn Bjartey Elín elskar að leika sér með ólíkar týpur þegar það kemur að klæðaburði og rugla aðeins í norminu. Hún er óhrædd við að fara eigin leiðir í fatavali og rannsaka hvernig framkoma annarra getur breyst eftir því hverju hún klæðist. Bjartey Elín er viðmælandi vikunnar í Tískutali. 1.7.2023 11:30
Einveran í æsku kveikjan að farsælum tónlistarferli „Ætli ég sé ekki svolítið prívat manneskja. Það er þó ekki meðvitað hjá mér að vera svona prívat heldur er það bara algjörlega út frá einhverjum svona þægindaramma. Mér finnst athygli stundum óþægileg nema þegar að ég fer upp á svið með tónlistina, þá líður mér vel,“ segir tónlistarkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir. Blaðamaður hitti hana í kaffi og ræddi við hana um listina, lífið og nýtt sóló efni. 1.7.2023 07:00
Öðlaðist von um að geta sigrað stríðið gegn ofsakvíðanum „Lífinu sem ég hafði þekkt var kippt undan mér og ég þurfti að læra upp á nýtt að lifa með miklum kvíða og vanlíðan, sem var ákveðið áfall fyrir mig,“ segir tónlistarkonan Katrín Myrra. Hún sendi nýverið frá sér smáskífuna Skuggar og er þar að finna lagið Ljósið, sem var kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM957 í dag. Blaðamaður ræddi við Katrínu um tengslin á milli tónlistarinnar hennar og tilverunnar. 24.6.2023 17:00