Næstum tuttugu sinnum fleiri á offitulyfjum Sérfræðingur í offitu segir góðan undirbúning og eftirfylgni forsendu fyrir því að offituaðgerðir endist. Því miður sé það ekki alltaf raunin og í þeim tilvikum megi búast við sömu vandamálum nokkrum árum eftir aðgerð. Margföldun hefur orðið í ávísunum og kostnaði vegna stungulyfja við offitu frá 2017. 10.10.2022 07:00
„Við megum ekki stinga höfðinu í sandinn“ Sífellt fleiri greinast hér á landi með sjúkdóminn offitu að sögn yfirlæknis offitusviðs Reykjalundar. Hún kallar eftir vitundarvakningu. Nauðsynlegt sé að nálgast viðfangsefnið án þeirra fordóma sem nú séu til staðar til að mynda í sjálfu heilbrigðiskerfinu. 9.10.2022 07:01
„Maður heyrir nánast peningastefnunefndina andvarpa af létti“ Greiðslubyrði margra fasteignalána hefur næstum tvöfaldast síðan Seðlabankinn hóf að hækka stýrivexti í maí í fyrra. Bankinn hækkaði stýrivexti í níunda skipti á tímabilinu í morgun. Seðlabankastjóri vonar að þetta sé síðasta hækkunin, nú þurfi aðrir að taka við boltanum 5.10.2022 19:00
Fangelsismálastjóri segir Barnakot á Hrauninu viðbjóðslegt Fangelsismálastjóri segir húsnæði til að taka á móti börnum á Litla-Hrauni vera viðbjóðslegt. Velgjörðamanni blöskraði svo að hann ákvað að styrkja fangelsið. Hann segir brýnt að bæta aðstöðu barna sem eiga foreldra í fangelsum. 4.10.2022 20:01
Yfirvöld þurfi að bregðast við svo þau verði ekki sanngirnisbótaskyld Talskonur Heimilis og skóla segja úrræðaleysi ríkja í málefnum barna sem verða fyrir ofbeldi í skólum. Varaformaðurinn vill fá opinbera stefnumótun í málaflokknum. Ella sé hætta á að það þurfi að greiða þolendum ofbeldis sanngirnisbætur í framtíðinni. 3.10.2022 19:46
„Samfélagið harmi slegið“ Karlmaður var stunginn til bana í húsi á Ólafsfirði í nótt. Fjórir voru handteknir vegna málsins og njóta þeir allir réttarstöðu sakbornings á fyrstu stigum málsins. Bæjarstjóri Fjallabyggðar segir samfélagið harmi slegið. 3.10.2022 12:04
Silfursvanir á svið á Madeira Hópur ballerína á sjötugs-og áttræðisaldri hefur æft stíft undanfarið fyrir ballettatriði sem þær verða með á stórri alþjóðlegri hátíð á Madeira í næstu viku. Kennarinn segir sumar þeirra vera að upplifa gamlan draum. 30.9.2022 21:32
Gríðarlegt eignatjón, einhverjir virtu lokanir að vettugi Bílaleigur sitja uppi með gríðarlegt tjón eftir óveðrið á sunnudag. Hjá einni þeirra skemmdust hátt í þrjátíu bílar. Vegagerðin hefði mátt loka vegum fyrr og manna lokanir að sögn upplýsingafulltrúa. Verið er að skoða að setja upp fleiri lokunarhlið. 28.9.2022 20:01
„Þetta varð alltaf verra og verra“ Talið er að um fimm þúsund börn hafi dvalið á um þrjátíu vistheimilum á vegum hins opinbera frá síðustu öld. Þá er ótalið öll þau börn sem dvöldu á sveitabæjum. Nú hafa sanngirnisbætur verið greiddar eða eru á leiðinni fyrir dvöl á næstum öðru hverju heimili. Umsjónarmaður sanngirnisbóta segir að algjört eftirlits-og stefnuleysi hafi ríkt í málaflokknum á sínum tíma. Það sé því miður raunin að nokkru leyti ennþá. 27.9.2022 07:02
„Það er svo gaman að lifa“ Þúsundir magaerma-og hjáveituaðgerða hafa verið gerðar hér á landi síðustu ár og greinilegt að þörfin er mikil. Ein þeirra sem hefur farið í slíka aðgerð síðustu ár segist hafa verið búin að prófa alla mögulega kúra áður. Hún hugsaði sig lengi um en fékk nóg af aukaþyngdinni þegar hún gat ekki lengur fylgt eiginmanni sínum eftir. 21.9.2022 07:00