Handtekinn vegna ofbeldis gagnvart opinberum starfsmanni Maður var handtekinn við veitingahús í miðborg Reykjavíkur um fjögurleytið í nótt. Maðurinn er grunaður um ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni og vörslu fíkniefna. 17.12.2022 08:38
Leigubílstjórar munu leggja niður störf á mánudag og þriðjudag Bandalag íslenskra leigubifreiðastjóra lýsir áhyggjum af þeirri stöðu sem upp kann að koma verði frumvarp um breytingu á lögum um leigubifreiðar, sem nú er til afgreiðslu hjá Alþingi, samþykkt óbreytt. 16.12.2022 15:16
Lýsa yfir þungum áhyggjum af langvarandi fjársvelti háskólastigsins Í ljósi lokaumræðu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2023 lýsa Landssamtök íslenskra stúdenta yfir þungum áhyggjum af langvarandi fjársvelti háskólastigsins. 16.12.2022 14:26
Lyfja valið markaðsfyrirtæki ársins 2022 Lyfja var valið markaðsfyrirtæki ársins þegar íslensku markaðsverðlaunin voru afhent í gærkvöldi í 29. skipti við hátíðlega athöfn í Hörpu. Þetta er í fyrsta skipti sem Lyfja hlýtur þessa viðurkenningu. 16.12.2022 13:29
Skipað í stjórnir OR, Félagsbústaða og Faxaflóahafna Borgarráð samþykkti í gær tillögur tilnefningarnefndar um stjórnir einkaréttarlegra fyrirtækja borgarinnar. Tillögurnar taka mið af nýrri eigandastefnu þar sem áhersla er lögð á góða stjórnarhætti og þverpólitíska samstöðu. 16.12.2022 09:52
Tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt pólskan karlmann í tólf mánaða fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. 15.12.2022 15:10
Lítill munur á verði á jólamat milli Bónuss og Krónunnar Bónus var oftast með lægsta verðið í nýlegri verðkönnun verðlagseftirlits ASÍ á jólamat. Könnunin var gerð í átta matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Tilboð eru víða í matvöruverslunum nú fyrir hátíðarnar, verðbreytingar tíðar og hvetur ASÍ neytendur til að vera vel vakandi vilji þeir gera hagstæð innkaup á jólamatnum. 15.12.2022 14:17
Sakar Helga í Góu um ítrekaða kynferðislega áreitni „Mér finnst bara að fólk eigi að vita hvernig maðurinn er,“ segir Katrín Lóa Kristrúnardóttir sem sakar Helga Vilhjálmsson, betur þekktan sem Helga í Góu, um kynferðislegt áreiti. Helgi segist hafa gert mistök og biðjist afsökunar á því. 15.12.2022 13:39
Landtenging muni spara 750 tonn af losun gróðurhúsalofttegunda Landtenging flutningaskipa Eimskips við Sundahöfn var tekin í notkun í gær þegar gámaskipið Dettifoss var formlega tengt við rafmagn í Sundahöfn. Um er að ræða tímamótaverkefni á sviði loftlagsmála á Íslandi þar sem unnið er að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og loftmengandi efna frá flutningastarfsemi. 15.12.2022 11:48
Neyðarskýli í Reykjavík verða opin á morgun Neyðarskýlin í Reykjavík verða öll opin á morgun, föstudag. Neyðarskýlin eru þrjú, tvö fyrir karlmenn, við Grandagarð og á Lindargötu, og eitt fyrir konur, Konukot í Eskihlíð. 15.12.2022 10:27