Æði-strákarnir veittu Guðmundi Inga innblástur sem stefnir á þriðja sætið Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga, hefur ákveðið að bjóða sig fram í þriðja sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hann segir að strákarnir í Æði hafi veitt honum innblástur til að bjóða sig fram. 12.1.2022 11:35
Sabine býður sig fram í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar Sabine Leskopf, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og varaforseti borgarstjórnar, hefur ákveðið að bjóða sig fram í 3.-4. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík. 12.1.2022 11:00
1.135 greindust innanlands í gær 1.135 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og sextíu á landamærum. 12.1.2022 10:45
45 sjúklingar á Landspítala með Covid-19 45 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19 og hefur þeim fjölgað um sex milli daga. 12.1.2022 09:43
Bæta fjórum áfangastöðum við leiðakerfið Icelandair hefur birt upplýsingar um sumaráætlun sína og hafa fjórir áfangastaðir bæst við leiðakerfið – Róm á Ítalíu, Nice í Frakklandi, Alicante á Spáni og Montreal í Kanada. 12.1.2022 09:23
Kviknaði í tengivagni flutningabíls í Fljótum Slökkvilið Fjallabyggðar var kallað út eftir að eldur kom upp í tengivagni flutningabíls á Siglufjarðarvegi, nærri Laugalandi í Fljótum, skömmu eftir klukkan hálf átta í gærkvöldi. 12.1.2022 08:50
Sinntu útköllum í Garði og í Norðfirði Björgunarsveitir þurftu að sinna tveimur útköllum í nótt, annars vegar í Garði á Suðurnesjum og svo í Norðfirði. Slæmt veður var víða um land í nótt. 12.1.2022 08:30
Ketill Sigurður vill eitt af efstu sætunum á lista Sjálfstæðismanna á Akureyri Ketill Sigurður Jóelsson viðskiptafræðingur hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. til 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 14. maí í vor. 12.1.2022 07:56
Québec hyggst skattleggja óbólusetta íbúa sérstaklega Stjórnvöld í kanadíska fylkinu Québec hafa ákveðið að koma á sérstökum skatti fyrir óbólusetta íbúa. Reiknað er með að skattheimtan hefjist á næstu vikum. 12.1.2022 07:45
Suðvestan hvassviðri með éljagangi og gular viðvaranir Það gengur í suðvestan hvassviðri eða storm með éljagangi í dag, en heldur hægari vindur og úrkomulítið á Austurlandi. Veðurstofan spáir hita um eða yfir frostmarki. 12.1.2022 07:09