Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Keiko Fujimori tók við í gær sem níundi forseti Perú á einum áratug. Mikil ólga hefur einkennt stjórnmál landsins síðasta áratuginn en enginn forseti hefur lokið heilu fimm ára kjörtímabili síðan Ollana Humala gegndi embættinu á árunum 2011- 2016. 29.7.2026 08:27
Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Spáð er rigningu og súld á köflum á Norður- og Austurlandi í dag en léttskýjuðu og þurrviðri annars staðar á landinu. Hiti verður á bilinu sex til sautján stig, mildast á sunnan- og vestanverðu landinu. 29.7.2026 07:35
Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Söngkonan og söngvaskáldið Carly Simon hefur verið greind með Parkinson-sjúkdóminn. Hún segist vera að reyna að læra að lifa með sjúkdómnum en að hann sé afar óútreiknanlegur. 27.7.2026 16:07
Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Tónlistarfólkið og hjónin Daði Freyr Pétursson og Árný Fjóla Ásmundsdóttir eiga von á sínu þriðja barni. Eurovision-fararnir eiga fyrir tvær dætur. 27.7.2026 15:42
„Fólk er ekki heimskt“ Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir nú góðan tíma fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en það njóti góðs af stöðu heimsmála. Hún segist hafa áhyggjur af gangi mála í Evrópu og að ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland sé mikið áhyggjuefni. Markmiðið sé að fá já þann 29. ágúst en sjálf sé hún gagnrýnin á Evrópusambandið. 27.7.2026 12:44
Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að átján stigum Í dag má búast við norðlægri eða breytilegri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu. Bjart verður með köflum og yfirleitt þurrt en lítilsháttar væta norðaustan- og austantil fram eftir morgni og aftur í kvöld. Hiti verður á bilinu níu til átján stig, hlýjast sunnan heiða. 27.7.2026 10:06
Banaslys í Þrengslunum Laust fyrir klukkan ellefu í gærkvöldi barst lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Þrengslavegi austan Litla-Sandfells. Einn lést í slysinu. 27.7.2026 09:23
Stór skjálfti á Nesjavöllum Skjálfti að stærðinni 4,1 mældist við Nesjavelli klukkan tuttugu og fimm mínútur í eitt í nótt. 27.7.2026 00:40
Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda Alls hafa 330 þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna gróðurelda sem geisað hafa í vikunni í Frakklandi og á Spáni. 27.7.2026 00:05
Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Nítíu og þrír, eða helmingur farþega vélar Icelandair urðu eftir á flugvelli í Alicante á Spáni í dag eftir að hún var rýmd vegna bilunar í neyðarútgangi vélarinnar. Flestir þurftu að fljúga heim í fleiri en einum fluglegg. Flogið var til Íslands með hinn helming farþega vélar Icelandair eftir einhverja seinkun en barnafjölskyldur voru settar í forgang. 26.7.2026 22:43