Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman Dómsmálaráðherra segir ekki gott að möguleg brot á lögum um sölu áfengis hafi fengið að „malla“ árunum saman. Staðan nú sé hvorki góð fyrir stjórnvöld né lögreglu og almenningur spyrji sig hvers vegna ekkert hafi verið gert. Málið sé hinsvegar rammpólitískt og mjög skiptar skoðanir séu um hvaða leið sé best að fara í þessum efnum. 26.7.2026 21:59
Einn í sjálfheldu í Emstrum og annar fótbrotnaði á Falljökli Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar hefur haft í nægu að snúast í kvöld en hún hefur sinnt minnst þremur útköllum það sem af er kvöldi. 26.7.2026 20:28
„Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Bræðslustjóri segir tónleikahald á Bræðslunni á Borgarfirði eystra hafa gengið vel þrátt fyrir leiðindaveður. Hann þakkar viðbragðsaðilum fyrir vel unnin störf og að það þýði ekkert að velta sér of mikið upp úr veðurspánni. 26.7.2026 19:48
Emma Roberts gengin í það heilaga Leikkonan Emma Roberts giftist unnusta sínum, leikaranum Cody John, í gær en parið hefur verið saman í um fjögur ár, þar af trúlofuð í tvö ár. Athöfnin fór fram í Sun Valley í Idaho-ríki í Bandaríkjunum. 26.7.2026 18:51
Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Maður, sem grunaður er um að hafa ekið sendiferðabíl inn í þvögu fólks á Gleðigöngu í Berlín í gærkvöldi, var skotinn til bana í lögregluaðgerð í kvöld, að sögn lögreglunnar í Berlín. 26.7.2026 17:57
Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Narendra Modi forsætisráðherra Indlands féllst á kröfur ungliðahreyfingar sem kallar sig Kakkalakkana sem höfðu staðið fyrir mótmælum í fimm vikur og meðal annars krafist afsagnar menntamálaráðherra landsins. 25.7.2026 23:55
Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Minnst einn lést og 14 særðust alvarlega í hátíðarhöldum hinsegin daga í Berlín, að sögn lögreglu þar í borg. Grunur er um að sendiferðabíl hafi verið ekið á mannfjölda í Tiergarten-garðinum í vesturhluta miðborgar Berlínar. 25.7.2026 22:08
Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Lögreglan á Austurlandi segir ágætlega hafa gengið á tónlistarhátíðinni Bræðslunni sem haldin er á Borgarfirði eystra um helgina en veður hafi sett strik í reikninginn. Einhverjir gestir þurftu að leita skjóls í íþróttahúsi í gærnótt vegna hvassviðris og úrkomu og óttast er að komi til svipaðs ástands í nótt. 25.7.2026 21:44
Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Brasilíski öldungadeildarþingmaðurinn Flavio Bolsonaro tilkynnti formlega framboð sitt til forseta Brasilíu í dag en hann er sonur fyrrverandi forseta landsins, Jair Bolsonaro. 25.7.2026 21:16
Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Íslensk-spænsk hjón sem eru búsett á Spáni þurftu að flýja heimili sitt í San Martín de Valdeiglesias í fyrradag vegna gróðurelda. Ragnar Bragason hefur verið búsettur á Spáni, ásamt eiginkonu sinni Mayte Santa Ceciliu, í um fjörutíu ár og segist ýmsu vanur. Gróðureldar séu hluti af daglegu lífi Spánverja á sumrin en þau hafi þó aldrei upplifað eins stóran eld á svæðinu. 25.7.2026 19:45