Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. ágúst 2026 23:03 Samsett Bjarki Sigurðsson var staddur í bæði Ráðhúsinu í Reykjavík og fyrir utan Hagaskóla í Vesturbæ rétt upp úr klukkan níu og ræddi við kjósendur á lokasprettinum en síðustu kjörstöðum var lokað klukkan tíu í kvöld. Sumir gleymdu sér en aðrir nutu veðurblíðu dagsins. Flestir kjósendur voru sammála um að það hefði ekki tekið þá langan tíma að gera upp hug sinn.
Þú ert að kjósa hérna rétt eftir klukkan níu, hvers vegna kýstu svona seint? „Ég var bara mjög upptekin. Ég gleymdi mér smá en ákvað að koma,“ segir einn kjósandi í Ráðhúsinu. Sumir létu innsæið ráða för.SÝN Henni hafi ekki þótt erfitt að gera upp hug sinn og lét innsæið ráða för. Hvað var það sem fékk þig til að gera upp hug þinn? „Ég fylgdist mjög mikið með alls konar þingmönnum og umræðum og lokaútkoman var að hlusta á það sem innsæið sagði mér að treysti,“ segir hún. Flestallir í kringum hana hafi greitt atkvæði í dag. Naut dagsins í sólinni Hvers vegna kýstu svona seint? „Ég bý rétt hjá. Ég tók daginn í sól og blíðu eins og gengur og gerist. Við fáum ekki of marga daga þannig ég ákvað að njóta hans á svölunum og svo rölta í rólegheitunum,“ segir annar kjósandi í Ráðhúsinu. Varstu lengi að gera upp hug þinn fyrir atkvæðagreiðsluna? „Nei, ég myndi ekki segja það. Ég er búin að vera að möndla þetta með mér í rólegheitunum í einhvern tíma. Leyfa því að koma upp sem kemur upp. Það breytti ekki mikið afstöðunni en verður forvitnilegt að sjá.“ Kjósendur sem Bjarki Sigurðsson fréttamaður ræddi við voru flestir sammála að ekki hafi tekið þau langan tíma að gera upp hug sinn. SÝN Aðspurð hvort hún vilji deila skoðun sinni segir hún: „Mér finnst þetta svo viðkvæmt. Ég sé að báðar kosningamiðstöðvarnar eru í götunni minni. Mér finnst þetta of stutt á milli. Miðað við hvað hitinn virðist vera mikill. En ég vona að þetta fari allt friðsamlega fram í kvöld og verði allt notalegt.“ Hvað var það sem fékk þig til að gera upp hug þinn? „Ég var mest að líta til næstu kynslóðar. Flest á mínum aldri erum búin að koma okkur haganlega fyrir og mér var meira hugsað til þeirra en margra annarra. Aðrir gleymdu sér Hvers vegna kýstu svona seint? „Ég bara gleymdi þessu,“ segir einn kjósandi í Vesturbæ Reykjavíkur. Þessi gleymdi sér en rauk samt sem áður af stað og skilaði sínu atkvæði í kassann. SÝN Hvers varstu mest að líta til þegar þú varst að ákveða þig? „Ég hugsaði bara: Ég treysti ekki Evrópusambandinu,“ segir hann.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Menningarsprautur í hvísluleik Menning Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy Lífið Kát á kynfræðslukarnivali Menning Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp „Ég mun sakna þín, sonur“ Lífið Bombur á Barokki á klúbbnum Lífið RJ Mitte er látinn Lífið Fleiri fréttir „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Sjá meira