Enn finnast grafir frumbyggjabarna í Kanada Samtök frumbyggja í Kanada hafa tilkynnt að 182 ómerktar barnagrafir hafi fundist við heimavistarskóla ætluðum börnum af frumbyggjaættum. 1.7.2021 19:50
Rapyd kaupir Valitor á tólf milljarða Alþjóðlega fjártæknifélagið Rapyd hefur samið við Arion Banka um kaup á Valitor hf. Kaupverðið er hundrað milljónir bandaríkjadala eða um 12,3 milljarðar króna. 1.7.2021 15:41
Prinsarnir afhjúpuðu styttu af Díönu prinsessu Bretaprinsarnar Vilhjálmur og Harry afhjúpuðu styttu af móður sinni Díönu prinsessu af Wales við hátíðlega athöfn í garði Kensington-hallar. 1.7.2021 14:54
Landsbjörg semur um smíði á þremur nýjum björgunarskipum Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec um smíði á þremur nýjum björgunarskipum. Stefnt er að því að skipin verði tekin í notkun fyrir mitt ár 2023. 1.7.2021 14:22
Íbúð dæmd gölluð vegna erfiðs nágranna Ung kona þarf ekki að greiða lokagreiðslu af íbúð sem hún keypti þar sem íbúðin var metin gölluð í Hæstarétti vegna nágrannaerja. Hæstiréttur hefur aldrei áður dæmt fasteign gallaða vegna nágranna. 1.7.2021 13:28
Fasteignafélag stofnað utan um húsnæði Háskóla Íslands Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, gengu í gær formlega frá stofnun sérstaks fasteignafélags um eignarhald og umsjá fasteigna sem nýttar eru í starfsemi skólans. 1.7.2021 11:40
Reitir kaupa fjórar verslunareignir af Festi Fasteignafélögin Reitir og Festi hafa komist að samkomulagi um kaup Reita á fjórum fasteignum sem hýsa meðal annars verslanir Krónunnar. Kaupverðið er rúmir fjórir milljarðar króna og að fullu fjármagnað með handbæru fé og lánsfé. 1.7.2021 10:13
Miklir vatnavextir á Seyðisfirði Mikil hlýindi og leysingar hafa verið á Seyðisfirði síðustu daga líkt og annars staðar á Austur- og Norðurlandi. 1.7.2021 09:54
Þriggja ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn barni vinahjóna Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur vina sinna. 30.6.2021 16:16
Ronaldo trónir á toppi peningalista Instagram Knattspyrnukappinn Christiano Ronaldo getur rukkað mest allra í heiminum fyrir kostaða Instagram-færslu. Samkvæmt greiningu HopperHQ getur hann krafist allt að 1,6 milljón bandaríkjadala fyrir hverja færslu. 30.6.2021 15:40