Áttmenningar ákærðir fyrir milljónasvik á Ábyrgðasjóði Sjö karlmenn og ein kona eru ákærð fyrir að hafa með ólögmætum hætti haft fjármuni af Ábyrgðarsjóði launa. Talið er að heildarávinningur af brotunum nemi um sautján milljónum króna. Fólkið er ýmist ákært fyrir brotin eða hlutdeild í þeim. Á meðal hinna ákærðu eru feðgar og mæðgin. 19.7.2021 11:38
Grunaður morðingi svipti sig lífi í norsku fangelsi Þrítugur karlmaður lést á sjúkrahúsi í Osló á föstudag. Hann var fluttur á sjúkrahús síðasta mánudag eftir að hafa reynt að taka eigið líf í fangelsi. Hann hafði verið ákærður fyrir morðið á Marianne Hansen í Hallerud þann 8. júní síðastliðinn. 19.7.2021 08:55
Auka olíuframleiðslu til að lækka verð OPEC-ríkin og bandamenn þeirra undir forystu Rússlands hafa ákveðið að auka framleiðslu hráolíu um tvær milljónir tunna á dag fyrir árslok. Þetta er gert til að mæta aukinni eftirspurn þegar áhrif Covid-19 á hagkerfi heimsins dvína. 19.7.2021 07:38
Sóttvarnarreglum hefur verið aflétt á Englandi Flestum sóttvarnarreglum á Englandi hefur nú verið aflétt. Engar fjöldatakmarkanir eru við lýði lengur, næturklúbbar opnuðu aftur á miðnætti og reglur á veitingastöðum og börum hafa verið afnumdar. 19.7.2021 07:02
Hrækt framan í öryggisvörð í miðbænum Upp úr klukkan átta í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um mann sem var að áreita gangandi vegfarendur auk viðskiptavina og starfsfólk verslunar í miðbænum. Maðurinn hrækti einnig framan í öryggisvörð verslunarinnar. Þetta og fleira segir í dagbók lögreglu. 19.7.2021 06:26
Salka Sól og Arnar Freyr eiga von á sínu öðru barni Tónlistarfólkið Arnar Freyr Frostason og Salka Sól Eyfeld á von á sínu öðru barni. 18.7.2021 19:01
Gosmóðan er komin aftur Nokkur gosmengun mælist nú yfir höfuðborgarsvæðinu. Gosmóðan sem nú svífur yfir kemur ekki beint frá gosstöðvunum í Fagradalsfjalli heldur er um eldri gasmökk að ræða sem hefur verið fyrir utan landið. 18.7.2021 15:57
Boris Johnson er hættur við að sleppa sóttkví Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak fjármálaráðherra voru útsettir fyrir smiti eftir að þeir funduðu með Sajid Javid heilbrigðisráðherra, sem reyndist smitaður af Covid-19. Upphaflega ætluðu ráðherrarnir tveir ekki að fara í sóttkví. 18.7.2021 14:40
Báðar verslanir Nexus lokaðar vegna smitaðs starfsmanns Í morgun kom upp að einn starfsmaður myndasöguverslunarinnar Nexus hefði greinst smitaður af Covid-19. Þetta segir í tilkynningu frá Nexus á Facebook. 18.7.2021 14:28
Markmiðið er ekki að vernda blygðunarkennd ferðamanna Dagný Hrönn Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Sky Lagoon segir miklar umræður hafa átt sér stað innan fyrirtækisins eftir að ungri konu var vísað upp úr lóninu fyrir að vera bera að ofan í gær. Hún hefur óskað eftir lögfræðiaðstoð. 18.7.2021 13:53