Stjórnarmaður segir ábyrgðinni varpað yfir á listafólkið án aðkomu stjórnar Stjórnarmaður í Ríkisútvarpinu segir að stjórnendur stofnunarinnar hafi varpað allri ábyrgð á þátttöku Íslendinga í Eurovision yfir á listafólkið sem tekur þátt í Söngvakeppninni. Það hafi verið gert alfarið á aðkomu stjórnar hlutafélagsins opinbera. 23.1.2024 22:00
Tyrkneska þingið sættir sig við inngöngu Svía Tyrkneska þingið samþykkti fyrir sitt leyti í kvöld að Svíum yrði veitt innganga í Atlantshafsbandalagið. Veiti Ungverjar einnig samþykki sitt mun samþykki allra aðildarþjóða bandalagsins liggja fyrir. 23.1.2024 20:58
Ekki sannað að afsökunarbeiðni væri frá meintum geranda Karlmaður, sem var ákærður fyrir að nauðga frænku sinni á heimili sínu í júlí 2019, hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hann var ákærður fyrir að hafa við hana samræði og önnur kynferðismök án hennar samþykkis, með því að notfæra sér að hún gæti ekki spornað við verknaðinum vegna áhrifa áfengis. Þá var honum gefið að sök að hafa beitt hana ólögmætri nauðung með því að nýta sér yfirburði sína og traust hennar sem frændi hennar. 23.1.2024 20:31
„Þetta er hálft skref í rétta átt“ Daníel Ágúst Haraldsson, sem var einn fjölda tónlistarmanna sem mótmæltu fyrirhugaðri þátttöku Íslendinga í Eurovision, segist fagna því að yfirmenn Ríkisútvarpsins hafi frestað endanlegri þátttöku fram yfir Söngvakeppni sjónvarpsins. Hann hefði þó viljað sjá skrefið stigið til fulls. 23.1.2024 18:25
Grímuskyldan felld niður Farsóttanefnd Landspítala hefur lagt til við forstjóra spítalans að breyta grímuskyldu sem sett var á 4. janúar síðastliðinn í valkvæða grímunotkun. 23.1.2024 17:40
Ekki refsað fyrir að stinga ungan mann við Breiðholtslaug Ungur karlmaður var í lok síðasta árs sakfelldur fyrir sérlega hættulega líkamsárás, með því að hafa stungið annan ungan mann við Breiðholtslaug árið 2021. Maðurinn krafðist sýknu á grundvelli neyðarvarnar en hvorki var fallist á að neyðarvörn hefði réttlætt stunguna né að hann hefði farið út fyrir leyfileg mörk neyðarvarnar vegna skelfingar eða hræðslu. Honum var þó ekki gerð refsing fyrir líkamsárásina. 22.1.2024 22:01
Opna þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga í Reykjanesbæ Ríkislögreglustjóri, í samstarfi við Rauða krossinn og Grindavíkurbæ, mun opna þjónustumiðstöð á morgun, þriðjudaginn 23. janúar klukkan 14. Þjónustumiðstöðin verður til húsa í húsi Rauða krossins að Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ. Opnunartími verður á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum milli klukkan 14 og 17. 22.1.2024 18:44
Veit ekki hver birti framboðslega mynd af honum en útilokar ekkert Einhverjir ráku upp stór augu í dag þegar Facebook-síða Besta flokksins sáluga var uppfærð í fyrsta skipti í fleiri ár. Þar birtist ansi framboðsleg brjóstmynd af Jóni Gnarr, stofnanda flokksins. Hann segist ekki bera ábyrgð á breytingunni og ekki hafa tekið neina ákvörðun um nokkurs konar framboð. 22.1.2024 17:47
Hlaupi í Grímsvötnum að ljúka Frá því að hlaupið náði hámarki í Gígjukvísl fyrir um það bil viku hefur vatnshæð þar farið lækkandi og er nú orðin svipuð og hún var fyrir hlaup. Talið er að nýr sigketill hafi myndast á svæðinu. 22.1.2024 16:30
Bjarni hellir sér yfir Semu Utanríkisráðherra segir ásakanir Semu Erlu Serdaroglu, aðjúnkts við Háskóla Íslands og stofnanda Solaris, um að hann hefði uppi óhróður um hóp fólks og væri í reynd að hvetja til andúðar og ofbeldis, fráleitar og dæma sig sjálfar. Þá segir hann skemmdarverk hafa verið unnin á utanríkisráðuneytinu í morgun. 22.1.2024 15:50