Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Baldur Þórhallsson segir mjög mikilvægt að forseti Íslands líti yfir öxlina á þingheimi til að tryggja að þingið fari ekki fram úr sér. Þar séu einkasamtöl forseta og forsætisráðherra lykilatriði. 26.4.2024 16:00
Sprakk úr hlátri Jón Gnarr segist ólíklegur til að beita málskotsréttinum nema í öfgatilfellum eins og ef lægi fyrir Alþingi að leiða dauðarefsingar í lög. Þá myndi hann mótmæla því sem forseti og leggja í hendur þjóðarinnar. 26.4.2024 15:01
Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Halla Hrund Logadóttir vill með framboði sínu til forseta sá þeim fræjum að framtíðin verði ekki bara hennar kynslóðar heldur komandi kynslóða. Framtíðin eigi landið að. 26.4.2024 14:21
Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Katrín Jakobsdóttir segir að bakgrunnur hennar sem stjórnmálamaður muni frekar reynast henni styrkleiki en veikleiki eins og sumir hafi nefnt. Hún verði ekki meðvirk með kunningjum sínum úr stjórnmálum frekar en fyrri forsetar. 26.4.2024 13:53
Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar sagðist öllu vön að mæta á tónleika í Hörpu en það væri öðruvísi að skila inn framboði til forseta. Stórkostleg stund, sagði Helga. 26.4.2024 13:34
Niðri fyrir vegna Útlaganna Egill Helgason, fjölmiðlamaður og íbúi í miðborg Reykjavíkur, er á meðal þeirra sem fussar og sveiar yfir óvæntri og óútskýrðri gullhúðun á styttunni Útlagar við Melatorg í Reykjavík. Sagnfræðingur bendir á að málningin muni veðrast strax af. 26.4.2024 08:57
Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Tólf gengu á fund landskjörstjórnar í Hörpu í Reykjavík fyrir hádegi í dag þar sem þau skiluðu inn framboði til embættis forseta Íslands, auk lista yfir meðmælendur. 26.4.2024 08:26
Farsímatekjur undir væntingum Reiknað er með því að EBIT afkoma Sýnar á fyrsta ársfjórðungi verði umtalsvert minni en samanborið við sama tímabil í fyrra eða sem nemur rúmum 308 milljónum króna. Þetta kemur fram í afkomuviðvörun til Kauphallar. Áætluð EBIT afkoma verður um 120 milljónir króna en var 428 á sama tíma í fyrra. 24.4.2024 17:08
Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Kínversk ferðaskrifstofa á ekki rétt á peningum frá tryggingafélaginu TM vegna rútuslyssins við Kirkjubæjarklaustur í desember 2017. Ferðaskrifstofan hefur þegar greitt foreldrum hinna látnu og taldi sig eiga bótakröfu á TM sem er tryggingarfélag Hópferðabíla Akureyrar. 24.4.2024 16:46
Komu litlum fiskibáti til bjargar Lítill fiskibátur missti vélarafl í mynni Seyðisfjarðar í hádeginu í dag og rak hægt til suðurs. Björgunarskipið Hafbjörg í Neskaupstað var kallað út vegna málsins. 24.4.2024 16:06