Maðurinn er kominn í leitirnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Sigurði Nökkva Aðalsteinssyni, 24 ára. Hann er 182 sentímetrar á hæð, grannvaxinn og með ljóst, stutt hár. 24.7.2021 07:41
Fólki sem finnst rigningin góð ætti að geta notið dagsins Suðlæg átt verður á landinu í dag, víða 5-10 m/s og súld eða rigning með köflum. Á norðaustanverðu landinu verður úrkomulítið fram eftir degi en þar má búast við sæmilega öflugum síðdegisskúrum að því er segir hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands í morgun. Hiti verður á bilinu 10 til 22 stig og sem fyrr hlýjast á Austurlandi. 24.7.2021 07:29
Höfnuðu á ljósastaur og sökuðu hvor annan um að hafa ekið bílnum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti tveimur tilkynningum um innbrot í póstnúmeri 105 í Reykjavík með fjórtán mínútna millibili í gærkvöldi. Þá voru ökutæki stöðvuð víða á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt þar sem grunur er um að ökumaður hafi verið undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. 24.7.2021 07:17
Hafði upp á stærstum hluta þýfisins af sjálfsdáðum Gunnar Sean Eggertsson, vélfræðingur á Patreksfirði, dó ekki ráðalaus þegar BMW Alpina B-10 bíll hans frá árinu 1991 var strípaður í upphafi árs. Hann lagðist í mikla rannsóknarvinnu sem varð til þess að hann endurheimti stóran hluta þýfisins þótt þjófurinn hafi bíllykilinn enn í sínum fórum. Kom hann lögreglu á snoðir um það sem virkar sem umfangsmikinn þjófnað og útflutning á þýfi. 17.7.2021 07:01
200 milljóna króna gjaldþrot Ostabúðarinnar á Skólavörðustíg Skiptum í þrotabúi Þriggja grænna osta, sem rak veitingastaðinn Ostabúðina við Skólavörðustíg 8 frá 2015-2019, er lokið. Rúmlega sjö milljónir króna fengust greiddar upp í forgangskröfur. 16.7.2021 09:08
Sjö vilja verða forstjóri á Akureyri Sjö umsóknir bárust til heilbrigðisráðuneytis um embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en umsóknarfrestur rann út þann 12. júlí síðastliðinn. Greint er frá nöfnum umsækjenda á vef heilbrigðisráðuneytisins. 16.7.2021 08:31
Flateyri komin í tísku hjá Íslendingum „Mig langaði að prófa að fara á verbúð,“ segir Sunna Reynisdóttir aðspurð hvernig áratuga ástarsamband þeirra Magnúsar Eggertssonar er til komið. Hjónin reka saman Bryggjukaffi á Flateyri við Önundarfjörð þar sem gestagangur í sumar hefur farið fram úr björtustu vonum heimafólks. 16.7.2021 08:15
Ný könnun MMR og Moggans: Níu flokkar á þingi og ríkisstjórnin félli Ríkisstjórnin nýtur stuðnings meirihluta þjóðarinnar en næði ekki meirihluta á Alþingi í haust ef marka má nýja könnun MMR fyrir Morgunblaðið. Níu flokkar ná fólki á þing. Fylgi flokka dreifist það mikið að þrír flokkar gætu ekki náð meirihluta þingmanna og myndað meirihlutastjórn. 16.7.2021 06:50
Ölvunarónæði og hávaði í miðborginni Næturvaktin hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hefur oft verið erilsamari ef marka má fréttaskeyti lögreglu til fjölmiðla í morgun. Vestan Elliðaár var það aðallega í miðborginni sem lögregla sinnti erindum. 16.7.2021 06:26
Tíu greindust með Covid-19 innanlands í gær Tíu greindust með Covid-19 innanlands í gær og voru fimm utan sóttkvíar. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is. 15.7.2021 10:58