

Vistaskipti
Fréttir af vistaskiptum fólks innan fyrirtækja, stofnana og ýmissa samtaka.

Sigurlína nýr stjórnarformaður Solid Clouds
Sigurlína Ingvarsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Solid Clouds, framleiðanda fjölspilunartölvuleiksins Starborne.

Sigríður Hrund nýr formaður FKA
Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og eigandi Vinnupalla, var kosin nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Siguríður Hrund var kosin formaður til tveggja ára og tekur við stöðunni af Huldu Ragnheiði Árnadóttur.

Þrettán sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra
Alls bárust þrettán umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis sem auglýst var þann 30. apríl 2021.

Tryggvi áfram formaður í nýskipuðu Hugverkaráði SI
Tryggvi Hjaltason hjá CCP hefur skipaður formaður í nýju Hugverkaráði Samtaka iðnaðarins.

Valeria til Advania
Advania hefur ráðið Valeriu Rivina sem nýjan forstöðumann veflausna. Hún hefur tíu ára stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum og hefur leitt umfangsmikil stafræn umbóta- og þróunarverkefni.

Árni Huldar til KPMG Law
Árni Huldar Sveinbjörnsson hefur hafið störf hjá KPMG Law. Hann starfaði áður sem yfirlögfræðingur Lykils fjármögnunar hf. og nú síðast sem sviðsstjóri viðskiptasviðs Lykils.

Ráðin forstöðumaður markaðsdeildar Póstsins
Kristín Inga Jónsdóttir hefur tekið við starfi forstöðumanns markaðsdeildar Póstsins. Hún hefur starfað hjá Póstinum frá árinu 2019 sem markaðssérfræðingur.

Erfið ákvörðun að hætta hjá Icelandair
Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála hjá Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Eva Sóley hóf störf í byrjun árs 2019 og hefur að sögn félagsins verið í lykilhlutverki við að koma því í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður.

Jóhanna Margrét til Skeljungs
Jóhanna Margrét Gísladóttir, fyrrverandi dagskrárstjóri Stöðvar 2, hefur hafið störf sem verkefnastjóri hjá Skeljungi.

Björn Þorfinnsson nýr ritstjóri DV
Björn Þorfinnsson hefur verið ráðinn ritstjóri DV. Hann tekur við starfinu af Tobbu Marinós sem lét nýlega af störfum.

Hörður tekur við starfi yfirmanns markaðs- og samskiptasviðs Sýnar
Hörður Harðarson hefur verið ráðinn nýr yfirmaður markaðs- og samskiptasviðs Sýnar.

Ráðin lögfræðingur hjá Nasdaq á Íslandi
Adela Lubina hefur verið ráðin sem lögfræðingur á lögfræðisviði hjá Nasdaq kauphöllinni á Íslandi og Nasdaq verðbréfamiðstöð.

Unnur Ásta nýr meðeigandi hjá MAGNA Lögmönnum
Unnur Ásta Bergsteinsdóttir hefur nú gengið í hóp eigenda Magna Lögmanna. Unnur hefur starfað hjá stofunni og forvera þess, Lögmönnum Höfðabakka, frá árinu 2012.

Þóra fer frá Icelandair yfir til Play
Þóra Eggertsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Play. Mun hún bera ábyrgð á að byggja upp fjármálasvið flugfélagsins sem og að leiða skráningu Play á Nasdaq First North Iceland markaðinn.

Maríjon snýr aftur í einkageirann
Maríjon Ósk Nóadóttir hefur verið ráðin til almannatengslafyrirtækisins Kvis og kemur til með að sinna fjölmiðla- og lögfræðiráðgjöf hjá fyrirtækinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kvis.

Sigurður nýr forstöðumaður hjá Landsvirkjun
Sigurður Markússon hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns nýsköpunardeildar á Viðskiptaþróunar- og nýsköpunarsviði Landsvirkjunar.

Fimm ráðin til Arnarlax
Arnarlax ráðið þau Jón Garðar Jörundsson, Kjersti Haugen, Johnny Indergård, Hjörtur Methúsalemsson og Rúnar Inga Pétursson til starfa innan félagsins.

Ásdís Hjálmsdóttir er nýr formaður íþróttamannanefndar ÍSÍ
Ný Íþróttamannanefnd ÍSÍ hefur verið kosin og nefndin valdi sér nýjan formann á fyrsta fundi sínum á dögunum.

Grjótharður KR-ingur verður framkvæmdastjóri hjá Play
Georg Haraldsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs flugfélagsins Play. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem segir að hann taki til starfa á næstu vikum.

Óli Jóns kominn yfir til Birtingahússins
Ólafur Jónsson hefur verið ráðinn til Birtingahússins þar sem hann mun sinna ráðgjöf og þróunarvinnu í tengslum við netmarkaðsmál fyrir viðskiptavini félagsins.

Kristín Hrefna til Origo
Kristín Hrefna Halldórsdóttir hefur verið ráðin til Origo þess að leiða teymi gæðalausna hjá fyrirtækinu.

Ingibjörg til liðs við KOM
Ingibjörg Hjálmfríðardóttir hefur verið ráðin til KOM sem verkefnastjóri hjá nýrri ráðstefnudeild KOM ráðgjafar.

Erla Ósk færir sig um set í hótelbransanum
Erla Ósk Ásgeirsdóttir hefur látið af störfum sem forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Icelandair hótelum eftir rúmlega sex ára starf. Hún tekur við sem forstöðumaður mannauðsmála hjá The Reykjavík Edition, hóteli við hliðina á Hörpu.

„Okkur er einfaldlega hent út með skít og skömm“
Mikil reiði ríkir meðal kórfélaga og velunnara Mótettukórsins vegna þess hvernig mál hafa þróast í Hallgrímskirkju sem endaði með starfslokum Harðar Áskelssonar tónlistarstjóra kirkjunnar til fjörutíu ára.

Fjögur ráðin til Kviku eignastýringar
Andri Stefan Guðrúnarson, Helen Ólafsdóttir, Pétur Richter og Sigurður Pétur Magnússon hafa öll verið ráðin til Kviku eignastýringar.

Samskipti við sóknarnefnd kólnandi þar til fraus í hylnum
Brotthvarf tónlistarstjóra Hallgrímskirkju, Harðar Áskelssonar, er tónelskum áfall.

Ráðinn listrænn stjórnandi hjá H:N
Magnús Hreggviðsson hefur verið ráðinn til H:N Markaðssamskipta sem listrænn stjórnandi.

Tekur við sem fjármála- og rekstrarstjóri Aha.is
Ísak Gunnarsson hefur verið ráðinn í starf fjármála- og rekstrarstjóra aha.is.

Guðjón ráðinn birtingastjóri
Guðjón A. Guðmundsson hefur verið ráðinn í starf birtingastjóra birtingafyrirtækisins Datera. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri VERT markaðsstofu síðustu ár.

Aðalsteinn hættir hjá RÚV: „Ég er ekki að hætta í rannsóknarblaðamennsku“
„Að vinna á RÚV og í umhverfinu þar, sem er gott að svo rosalega mörgu leyti, er samt orðið þannig að það hefur meiri áhrif á mitt daglega líf en ég kæri mig um,“ segir blaðamaðurinn Aðalsteinn Kjartansson, sem tilkynnti á Facebook fyrir stundu að í dag væri síðasti vinnudagurinn hans hjá Ríkisútvarpinu.