Ástráður skipaður ríkissáttasemjari Ástráður Haraldsson hefur verið skipaður í embætti ríkissáttasemjara til fimm ára frá og með 18. júlí næstkomandi. Sex sóttu um starfið en hæfnisnefnd taldi að tveir umsækjendur væru mjög vel hæfir til að gegna embættinu. Innlent 14. júlí 2023 15:15
Auður og Gísli sækja um erfitt starf Níu einstaklingar sóttu um starf forstöðumanns nýrrar ríkisstofnunar sem mun bera heitið Land og skógur. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra mun skipa í embættið að undangengnu mati hæfisnefndar. Innlent 14. júlí 2023 11:22
Settur forstjóri glímir við þrjú um stöðuna Fjórar umsóknir bárust um embætti forstjóra Skipulagsstofnunar. Þriggja manna hæfisnefnd mun meta umsækjendur í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Innlent 10. júlí 2023 15:32
Skipuð dómari við Landsrétt Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að gera tillögu til forseta Íslands um skipun Ásgerðar Ragnarsdóttur, setts landsréttardómara, í embætti Landsréttardómara frá 21. ágúst 2023. Innlent 7. júlí 2023 14:40
Hrókeringar í utanríkisþjónustunni Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur tekið ákvörðun um flutning forstöðumanna sendiskrifstofa í utanríkisþjónustunni sem taka formlega gildi á næstunni. Innlent 7. júlí 2023 14:06
Helga ráðin skrifstofustjóri íþróttaborgarinnar Helga Friðriksdóttir hefur verið ráðin skrifstofustjóri íþróttaborgarinnar á menningar- og íþróttasviði Reykjavíkurborgar. Nær fimmtíu umsóknir til starfsins bárust. Viðskipti innlent 7. júlí 2023 13:29
Einu umsækjendurnir um embætti dómara við Landsrétt metnir jafnhæfir Dómnefnd telur að Ásgerður Ragnarsdóttir, settur landsréttardómari, og Kjartan Bjarni Björgvinsson héraðsdómari séu bæði mjög vel hæf til að gegna embætti dómara við Landsrétt og ekki verði gert á milli milli hæfni þeirra tveggja. Innlent 4. júlí 2023 20:31
Telma stýrir ÍMARK Telma Eir Aðalsteinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri ÍMARK, samtaka markaðsfólks á Íslandi. Viðskipti innlent 4. júlí 2023 10:04
Gunnar Hörður til Brussel frá ríkislögreglustjóra Gunnar Hörður Garðarsson, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, hyggst kveðja félaga sína hjá embættinu en hann hefur þess í stað störf í Brussel við samskiptadeild uppbyggingarsjóðs EES. Viðskipti innlent 3. júlí 2023 10:46
Yfirmaður fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka lætur af störfum Atli Rafn Björnsson, sem hefur stýrt fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka frá árinu 2019, hefur látið af störfum en hann er þriðji stjórnandinn sem hættir eftir að félagið samþykkti að greiða tæplega 1,2 milljarða sektargreiðslu vegna brota á lögum og innri reglum sínum við sölu á hlutum í sjálfum sér í útboði bankans í fyrra. Innherji 2. júlí 2023 23:34
Ásmundur Tryggvason hættur hjá Íslandsbanka Ásmundur Tryggvason, framkvæmdastjóri á sviði fyrirtækja og fjárfesta hjá Íslandsbanka, hefur ákveðið að stíga til hliðar. Kristín Hrönn Guðmundsdóttir hefur verið ráðin í hans stað. Viðskipti innlent 1. júlí 2023 18:59
Hildur Ragnars skipuð forstjóri Þjóðskrár Íslands Hildur Ragnars hefur verið skipuð í embætti forstjóra Þjóðskrár Íslands frá morgundeginum. Umsækjendur um embættið voru átta en þrír drógu umsókn sína til baka. Innlent 30. júní 2023 16:34
Stefán Þór til First Water Stefán Þór Winkel Jessen hefur verið ráðinn sem tæknistjóri fiskeldisfyrirtækisins First Water, sem áður hét Landeldi. Stefán tekur meðfram því sæti í framkvæmdastjórn félagsins sem hann hefur starfað hjá síðan í lok síðasta árs. Viðskipti innlent 30. júní 2023 15:27
Mardís, Tracey og Elísabet ráðnar til atNorth Mardís Heimisdóttir, Tracey Pewtner og Elísabet Árnadóttir hafa allar verið ráðnar til starfa hjá gagnavers- og ofurtölvufyrirtækinu atNorth. Viðskipti innlent 30. júní 2023 10:55
Erling lætur af störfum hjá Ljósleiðaranum Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Ljósleiðarans hefur óskað eftir því við stjórn Ljósleiðarans að láta af störfum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Viðskipti innlent 29. júní 2023 16:29
Grétar, Hafdís og Jón til liðs við LSR Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) hefur ráðið þrjá nýja starfsmenn, tvö á svið stafrænnar þróunar og reksturs og einn á eignastýringarsvið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lífeyrissjóðnum. Viðskipti innlent 29. júní 2023 11:50
Hafsteinn, Jón Gunnar og Sigríður Gyða til LearnCove Hafsteinn Sigurðsson, Jón Gunnar Stefánsson og Sigríður Gyða Héðinsdóttir hafa öll verið ráðin til starfa hjá nýsköpunarfyrirtækisins LearnCove. Viðskipti innlent 27. júní 2023 13:12
Gerla nýr formaður Myndstefs Myndhöfundurinn Guðrún Erla Geirsdóttir, betur þekkt sem Gerla, er nýr formaður höfundarréttarsamtakanna Myndstefs. Tekur hún við af Ragnari Th. Sigurðssyni ljósmyndara. Viðskipti innlent 26. júní 2023 18:17
Hannes segir sig úr bæjarstjórn Kópavogs Hannes Steindórsson, fasteignasali, ætlar að segja af sér sem bæjarfulltrúi í Kópavogsbæ á bæjarstjórnarfundi á morgun til að einbeita sér að fasteignasölu og barnauppeldi. Fyrr í mánuðinum seldi hann allan hlut sinn í fasteignasölunni Lind. Innlent 26. júní 2023 15:06
Skipuð skrifstofustjóri menningar og fjölmiðla Arna Kristín Einarsdóttir, dagskrár- og skipulagsstjóri við Sinfóníuhljómsveit og tónlistarhús Gautaborgar, hefur verið skipuð í embætti skrifstofustjóra menningar og fjölmiðla í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Innlent 26. júní 2023 10:32
Sævar kosinn formaður Hugarafls Sævar Þór Jónsson lögmaður hefur verið kosinn formaður aðalstjórnar samtakanna Hugarafls. Sævar starfar sem lögmaður. Þetta kemur fram í tilkynningu. Innlent 24. júní 2023 16:27
Björk Eiðsdóttir vinnur fyrir Björgólf Thor Björk Eiðsdóttir, blaðamaður og fyrrverandi ritstjóri helgarblaðs Fréttablaðsins, hefur ráðið sig til starfa hjá Björgólfi Thor Björgólfssyni, viðskiptamanni. Viðskipti innlent 23. júní 2023 22:59
Formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar ætlar að víkja fyrir yngra fólki Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti samhljóða að veita Friðjóni Einarssyni, formanni bæjarráðs og oddvita Samfylkingarinnar lausn frá næstu áramótum. Hann segir kominn tíma til að draga sig í hlé og að hleypa nýju og fersku fólki að. Innlent 22. júní 2023 10:33
Gylfi Þór aflar fjár fyrir Rauða krossinn Gylfi Þór Þorsteinsson hefur tekið tímabundið við sem teymisstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs Rauða krossins á Íslandi en hann var nýlega ráðinn sem teymisstjóri Mannvina hjá félaginu. Innlent 20. júní 2023 18:33
Óðinn ráðinn framkvæmdastjóri Festi fasteigna Óðinn Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Festi fasteigna ehf.. Hann mun hefja störf þann 1. september. Viðskipti innlent 20. júní 2023 16:57
Auður hættir sem framkvæmdastjóri Landverndar Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar, hefur sagt starfi sínu lausu hjá samtökunum. Auður hefur sinnt starfinu frá árinu 2018. Viðskipti innlent 20. júní 2023 11:33
Sex sóttu um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Sex sóttu um embætti forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sem auglýst var laust til umsóknar í maí. Meðal þeirra eru Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, maður ársins 2021, og Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga. Innlent 16. júní 2023 17:54
Kjörræðismaður Rússlands hættir hjá Kaupfélaginu Ólafur Ágúst Andrésson, kjörræðismaður Rússa á Íslandi og forstöðumaður kjötafurðasviðs Kaupfélags Skagfirðinga, hefur ákveðið að láta af störfum hjá Kaupfélagi Skagfirðinga eftir 27 ára starf fyrir félagið. Viðskipti innlent 16. júní 2023 17:29
Ráðin í starf fjármálastjóra Kaldalóns Sigurbjörg Ólafsdóttir hefur verið ráðin í starf fjármálastjóra Kaldalóns hf. Hún hefur undanfarin ár gegnt starfi forstöðumanns fasteigna- og innviðateymis Arion Banka. Viðskipti innlent 16. júní 2023 14:15
Fyrrverandi forstjóri Microsoft í Danmörku í stjórn Carbfix Ný stjórn Carbfix hf. hefur verið skipuð og er nýr stjórnarformaður hennar Nana Bule, sem var forstjóri Microsoft í Danmörku og á Íslandi þar til fyrr á þessu ári. Viðskipti innlent 15. júní 2023 14:51