„Ég ýtti bara aðeins við honum“ Oliver Ekroth, fyrirliði Víkings, segir atvik líkt og það sem varð milli hans og Arons Sigurðarsonar, fyrirliða KR, í síðasta leik liðanna vera hluti af leiknum. Liðin mætast aftur í dag og Víkingur verður meistari með sigri. Íslenski boltinn 19. september 2026 09:03
Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli Fram fékk Víking R. í heimsókn á Lambhagavöllinn í fyrstu umferð úrslitakeppni neðri hluta Bestu deild kvenna í kvöld. Víkingar fara sennilega svekktari heim í kvöld með stigið en liðin skildu jöfn 2-2. Íslenski boltinn 18. september 2026 20:50
„Algjör óþarfi fyrir dómarann að vera búa til svona úlfalda úr mýflugu“ Víkingur heimsótti Fram á Lambhagavöllinn í kvöld þegar fyrsta umferð úrslitakeppni Bestu deild kvenna hélt áfram göngu sinni. Það er þéttur pakki í neðri hlutanum og var Einar Guðnason þjálfari Víkinga ósáttur með að fara ekki með meira en stig heim. Sport 18. september 2026 20:39
Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik KR-ingar eru klárir fyrir annan risaleik við Víkinga á skömmum tíma, í Bestu deildinni í fótbolta, og hafa engan áhuga á að sjá gestina fagna Íslandsmeistaratitli á morgun. Myndavélakerfi hefur verið sett upp á Meistaravöllum eftir skemmdarverkin fyrir síðasta leik liðanna. Íslenski boltinn 18. september 2026 13:01
Haukar á toppinn og jafntefli á Selfossi Æsispennandi leikir voru í Olís-deild karla í handbolta í dag þegar næstum heil umferð fór fram. Haukar rétt unnu Aftureldingu og Selfoss og Stjarnan þurftu að deila saman stigum. Handbolti 16. september 2026 21:49
„Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ „Þetta er það besta sem ég hef séð til þeirra í dálítið langan tíma,“ sagði Bjarni Guðjónsson um 4-1 sigur Víkings á Keflavík í Bestu deild karla. Víkingur stefnir hraðbyri að Íslandsmeistaratitlinum og félagið fær mikið hrós vegna umgjarðar. Íslenski boltinn 16. september 2026 13:31
Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu Víkingar gætu mögulega orðið Íslandsmeistarar annað árið í röð á laugardaginn, eftir að þeir unnu 4-1 sigur gegn Keflavík í Bestu deild karla í gær. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 15. september 2026 09:03
„Get ekki beðið eftir leiknum í Frostaskjóli“ Róbert Orri Þorkelsson átti góðan leik í hjarta varnar Víkings þegar liðið vann sannfærandi 4-1 sigur á Keflavík í Fossvoginum. Hann kórónaði frammistöðuna með stórglæsilegu marki í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 14. september 2026 21:31
Uppgjörið: Víkingur - Keflavík 4-1 | Annað skref í átt að titlinum Víkingur endurnýjaði níu stiga forskot liðsins á toppi Bestu deildar karla í fótbolta þegar aðeins tólf stig eru í pottinum. Liðið vann öruggan 4-1 sigur á Keflavík í Víkinni. Íslenski boltinn 14. september 2026 21:05
Sautján mörk Gunnars dugðu skammt Fram lagði Val í ótrúlegum leik, 47-40, í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Fram deilir toppsætinu með KA sem lagði Víking. Handbolti 11. september 2026 21:06
Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Um klukkan 21 annað kvöld ætti að koma í ljós hvort það verður Afturelding eða Breiðablik sem verður fulltrúi Íslands í 1. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar næsta sumar. Leið þess liðs inn í Evrópudeildina er orðin enn torfærari en áður en leið Íslandsmeistaranna virðist mun greiðfærari. Íslenski boltinn 10. september 2026 13:32
„Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Vonbrigðin eru gífurleg í Víkinni samkvæmt sérfræðingum Stúkunnar eftir að Víkingi Reykjavík mistókst að koma sér í deildarkeppni í Evrópu. Hins vegar er í augsýn stór áfangi sem skilgreinir frábær lið. Íslenski boltinn 10. september 2026 07:02
Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Sérfræðingar Bestu markanna á Sýn Sport voru sammála gagnrýni Einars Guðnasonar, þjálfara Víkings Reykjavíkur á leikjaniðurröðun og leiktíma í lokaumferð Bestu deildar kvenna fyrir skiptingu en Katrín Ásbjörnsdóttir vildi ekki kvitta upp á mat hans á leikstaðnum í leik Stjörnunnar og Víkings í gær. Íslenski boltinn 8. september 2026 21:44
Sjáðu mörkin í Dalnum og í höllinni sem „KSÍ ætti ekki að leyfa“ Aðeins eitt mark skilur að Breiðablik og FH á toppi Bestu deildar kvenna í fótbolta og fallbaráttan er ekki síður hreint lygilega jöfn, eftir síðustu leikina fyrir tvískiptingu deildarinnar. Mörkin úr leikjunum má sjá á Vísi. Íslenski boltinn 8. september 2026 10:03
Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur R. 1-2 | Spyrntu sér frá botninum Víkingar unnu sinn þriðja leik í röð í Bestu deildinni í kvöld og spyrntu sér því frá botninum. Lagði liðið Stjörnuna að velli í Miðgarði í Garðabænum 1-2 og kom sigurmarkið undir blálokin. Íslenski boltinn 7. september 2026 22:50
„Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Einar Guðnason, þjálfari kvennaliðs Víkings Reykjavíkur í fótbolta var sáttur með mikilvægan 2-1 sigur síns liðs gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í kvöld en vandaði mótastjórn ekki kveðjurnar í viðtali eftir leik. Íslenski boltinn 7. september 2026 22:10
Uppgjörið: Víkingur – Fram 2-2 | Tíu Framarar náðu í stig Fram náði í stig gegn Íslandsmeisturum Víkings í Víkinni í lokaumferð Bestu deildar karla í fótbolta fyrir skiptingu. Fram endar því fyrir ofan KR í öðru sæti deildarinnar fyrir lokakaflann í haust. Íslenski boltinn 6. september 2026 16:00
Afturelding vann síðari hálfleikinn sem var leikinn tveimur dögum eftir þann fyrri Afturelding vann nýliða Víkings í fyrstu umferð Olís-deildar karla í dag. Síðari hálfleikur leiksins var spilaður klukkan 13 í dag. Handbolti 6. september 2026 13:56
Leikur Aftureldingar og Víkings kláraður á morgun Leikur Aftureldingar við Víking í Olís-deild karla í handbolta verður kláraður á morgun, tæpum tveimur sólarhringum eftir að hann hófst. Flauta þurfti hann af vegna rafmagnsleysis. Handbolti 5. september 2026 14:07
Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, deildi myndskeiði af Oliver Ekroth, fyrirliða Víkings, að hlaupa harkalega utan í sig er Víkingur fagnaði marki sínu gegn KR í 1-1 jafntefli liðanna á dögunum. Íslenski boltinn 5. september 2026 10:00
Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði mjög illa í leik KR og Víkinga á Meistaravöllum í vikunni. Um var að ræða mjög ljótt opið beinbrot. Bein Sveins stóð einfaldlega út úr upphandleggnum á honum og því fylgdi töluverð blæðing. Sveinn gekkst undir aðgerð á miðvikudaginn og verður töluvert frá keppni vegna meiðslanna. Við hittum Svein í Víkinni. Íslenski boltinn 5. september 2026 09:02
Rafmagnið af í Mosó og seinni hálfleikur spilaður síðar Áðeins tókst að ljúka fyrri hálfleik í fyrsta leik tímabilsins hjá Aftureldingu og Víkingi í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, áður en rafmagnslaust varð í Mosfellsbæ. Handbolti 4. september 2026 21:46
Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Sveinn Gísli Þorkelsson, leikmaður Víkinga, handleggsbrotnaði skelfilega í leik KR og Víkinga í Vesturbænum í gærkvöldi. Íslenski boltinn 2. september 2026 11:01
Vatnhamar til Vejle Færeyingurinn Gunnar Vatnhamar hefur verið afhjúpaður sem nýr leikmaður danska liðsins Vejle. Fótbolti 2. september 2026 09:26
Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Mikil gleði var hjá stuðningsmönnum Víkings, líkt og þeim sem studdu KR, á stórleik gærkvöldsins í Bestu deild karla. Gestirnir smygluðu þó inn trommu sem olli vandræðum. Íslenski boltinn 2. september 2026 08:01
Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings Á fimmta þúsund manns gerðu sér ferð á Meistaravelli í kvöld til þess að fylgjast með stórleik KR og Víkings Reykjavíkur í Bestu deild karla í fótbolta. Leikurinn hin mesta skemmtun, taugarnar þandar og dramatíkin mikil í leikslok. Íslenski boltinn 1. september 2026 23:02
„Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Ég finn virkilega mikið til með honum,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, eftir að enn einn leikmanna hans meiddist í kvöld þegar Sveinn Gísli Þorkelsson handleggsbrotnaði í stórleiknum gegn KR. Íslenski boltinn 1. september 2026 21:32
„Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ármann Ingi Finnbogason skoraði stórkostlegt mark fyrir Víkinga gegn KR í kvöld og þó að það hafi ekki dugað til sigurs átti hann sinn þátt í því að nú eru Víkingar með átta stiga forskot á toppi Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 1. september 2026 21:15
Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Íslandsmeistara Víkings Reykjavíkur, kaus að svara ekki mati Aron Sigurðarsonar, fyrirliða KR, á hans liði eftir leik Víkings og KR í Bestu deildinni í kvöld. Ummæli Arons væru ekki svaraverð, það væri ekki mikið vit í því sem hann hefur verið að láta út úr sér í aðdraganda leiksins. Íslenski boltinn 1. september 2026 21:06
„Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ „Við sýndum mikinn styrk með því að koma til baka og ná okkur í stigið. Halda okkur fyrir ofan Fram. Við megum ekki gleyma að Fram er þarna líka og akkúrat núna er Fram keppinautur okkar,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 1-1 jafnteflið í toppslagnum við Víkinga í kvöld. Íslenski boltinn 1. september 2026 20:58