„Það má reikna með því að það fari allt á flot“ Gular viðvaranir taka aftur gildi annað kvöld. Hlý lægð kemur þá til landsins með mikilli rigningu. Búast má við asahláku og mikilli bleytu. Eftir það tekur við köld lægð með stormi. Veður 31. janúar 2024 21:01
Vegir víða lokaðir vegna veðurs Vegum víða hefur verið lokað vegna veðurs. Meðal þeirra eru helstu stofnleiðir til og frá höfuðborgarsvæðinu líkt og Mosfellsheiði og Kjalarnes. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. Innlent 31. janúar 2024 15:34
Vaktin: Vestan stormur olli truflunum á suðvesturhorninu Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, á Faxaflóa og á Suðausturlandi. Innlent 31. janúar 2024 13:04
Reykjanesbrautinni gæti verið lokað en ófremdarástand ólíklegt Reykjanesbrautin er á óvissustigi sem þýðir að mögulega gæti þurft að loka henni. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er þó ólíklegt að vandræðaástand myndist þar líkt og hefur gerst áður. Innlent 31. janúar 2024 11:47
Flestum flugferðum frestað og enginn á vellinum Flestum flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli hefur verið frestað í dag. Komur og brottfarir verða ekki fyrr en síðdegis og eða í kvöld og nótt, eftir að óveður sem spáð hefur verið á suðvesturhorninu er gengið yfir. Þá hefur röskun orðið á innanlandsflugi. Innlent 31. janúar 2024 11:34
Pallborðið: Veðurstofan sökuð um að brjóta lög og deila ekki gögnum Veðurstofa Íslands safnar gríðarlegu magni gagna um veðurfar, jarðhræringar, vatnafar og loftslag, svo eitthvað sé nefnt. Sérfræðingar segja stofnunina hins vegar trega til að deila umræddum gögnum. Innlent 31. janúar 2024 11:03
Margir vegir á óvissustigi vegna veðurs Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula veður viðvörun í dag 31. janúar fyrir vestanvert landið og eru því margir vegir á óvissustigi á milli 9:00 og 20:00 og gætu lokast með stuttum fyrirvara. Þetta kemur fram inn á vef Vegagerðarinnar. Innlent 31. janúar 2024 10:29
Varar við að bílar muni sitja fastir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að erfitt ástand gæti myndast á götunum á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegi vegna skafrennings og hvassviðrisins. Hann segir allar líkur á að einhverjir bílar muni festast. Innlent 31. janúar 2024 10:21
Gengur í hvassviðri eða storm sunnantil eftir hádegi Veðurstofan gerir ráð fyrir vestlægri átt og éljagangi þar sem mun ganga í hvassviðri eða storm sunnanlands eftir hádegi. Gular viðvaranir taka gildi eftir hádegi á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa, Suðurlandi og Suðausturlandi vegna hvassviðrisins. Líkur eru á samgöngutruflunum. Veður 31. janúar 2024 07:11
Fólk sleppi því að vera á ferðinni um miðjan dag á morgun Búast má við hríðarbyl víða um land á morgun. Útlit er fyrir að veðrið gangi fyrst yfir Reykjanesskagann, færist svo að höfuðborgarsvæðinu og loks með ströndinni austur fyrir Eyjafjöll. Viðbúið er að færð versni á skömmum tíma og skyggni verði lítið. Veðurfræðingur mælir með því að fólk reyni að sleppa því að vera á ferðinni á meðan veðrið gengur yfir. Innlent 30. janúar 2024 19:24
Loka aftur Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu Veginum um Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð, milli Ísafjarðar og Súðavíkur, verður aftur lokað í kvöld. Honum var lokað í gær eftir að snjóflóð féll á veginn. Innlent 30. janúar 2024 19:00
Engin verðmætabjörgun í Grindavík á morgun Íbúum og fyrirtækjum í Grindavík verður ekki gefinn kostur á að fara inn til Grindavíkur á morgun líkt og til stóð. Ástæðan er gul veðurviðvörun sem gefin hefur verið út á svæðinu, þar sem vestan hvassviðri eða stormur með dimmum éljum mun ganga yfir. Innlent 30. janúar 2024 15:33
Vara við aðstæðum í Reynisfjöru næstu daga Lögreglan á Suðurlandi vill vekja athygli á slæmri veðurspá sem hefur áhrif á aðstæður á Suðurlandi næsta sólahringinn. Sérstaklega er bent á að aðstæður í Reynisfjöru geti reynst mjög varhugaverð. Innlent 30. janúar 2024 15:32
Kalla eftir jarðgöngum: Flestir íbúar hafa fests í snjóflóði eða rétt sloppið Súðavíkurhlíð var lokað fyrirvaralaust í gær eftir að snjóflóð féll á veginn. Sveitarstjóri segir bíla hafa verið báðu megin við flóðið og kallar eftir jarðgöngum til að auka öryggi íbúa. Innlent 30. janúar 2024 13:41
Vonskuveður gæti komið í veg fyrir verðmætabjörgun á morgun Verðmætabjörgun í Grindavík hefur gengið vel það sem af er degi, að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum. Stefnt er að því að um 400 íbúar geti vitjað heimila sinna og eigna í dag, en hugsanlega þarf að gera breytingar á áætlun morgundagsins þar sem veðurspá er afar slæm. Innlent 30. janúar 2024 12:00
Spá stormi með dimmum éljum á morgun Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir í fjórum landshlutum suðvestan og vestanlands á morgun. Spáð er stormi með dimmum éljum. Innlent 30. janúar 2024 10:20
Svöl suðvestanátt í dag en stormur á morgun Hægfara lægð er nú á Grænlandshafi og beinir hún til okkar svalri suðvestlægri átt þar sem víða má gera ráð fyrir tíu til átján metrum á sekúndu. Spáð er dimmum éljum og að hvassast verði í éljahryðjum. Veður 30. janúar 2024 07:12
Lokað milli Ísafjarðar og Súðavíkur vegna snjóflóðs Veginum milli Ísafjarðar og Súðavíkur hefur verið lokað eftir að stórt snjófljóð féll úr Súðavíkurhlíð. Vegurinn verður ekki opnaður fyrr en í fyrsta lagi í fyrramálið. Innlent 29. janúar 2024 21:16
Sex eldingar á fimm mínútum í Bláfjöllum Að minnsta kosti sex eldingum laust niður á Bláfjallasvæðinu á fimm mínútna tímabili skömmu eftir klukkan 13 í dag. Þær fylgdu éljabakka sem nú er farinn hjá, svo ólíklegt þykir að þær verði fleiri á svæðinu. Eldingakerfi Veðurstofu Íslands hefur mælt um sextán eldingar frá því klukkan 9 í morgun. Innlent 29. janúar 2024 14:25
Von á allhvössum vindi víða um land Útlit er fyrir sunnanátt á landinu í dag og má búast við að stinningskaldi eða allhvass vindur verði algengur vindstyrkur. Veður 29. janúar 2024 07:13
Búið að opna heiðina Búið er að opna Holtavörðuheiði á nýjan leik en henni var lokað á öðrum tímanum vegna veðurs. Innlent 27. janúar 2024 13:32
Holtavörðuheiði gæti lokast með stuttum fyrirvara Óvissustig er í gildi á Holtavörðuheiði. Vegagerðin varar við að hún gæti lokast með stuttum fyrirvara meðan versta veðrið gengur yfir í dag. Innlent 27. janúar 2024 10:49
Búist við lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum Fyrripartinn í dag mun allhvass vindur með dimmum éljum ganga yfir, fyrst á sunnanverðu landinu, og síðan vestantil. Búast má við lélegu skyggni og erfiðum akstursskilyrðum í éljunum. Innlent 27. janúar 2024 08:23
„Þetta var hörku hvellur“ Þreifandi bylur var á höfuðborgarsvæðinu í morgun og lítið sem ekkert skyggni. Lögreglufulltrúi segir umferð hafa gengið mjög hægt í morgun og eitthvað um árekstra. Gular viðvaranir eru í gildi vegna veðurs. Innlent 26. janúar 2024 12:02
Fimmtán vagnar í tjóni í glerhálku í gær Fimmtán vagnar Strætó lentu í tjóni í mikilli og skyndilegri hálku sem myndaðist seinnipartinn í gær. Tjónið er allt frá því að vera smá nudd í brotna rúðu. Þrír vagnar voru í viðgerð í morgun af þeim fimmtán sem lentu í tjóni. Innlent 26. janúar 2024 11:33
Þreifandi bylur og ekkert skyggni Þreifandi bylur og ekkert skyggni er á suðvesturhorninu, meðal annars höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi. Lögregla segir lítið ferðaveður, um sé að ræða stórhættuleg veðurskilyrði. Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á höfuðborgarsvæðinu, Faxaflóa og á Suðurlandi. Innlent 26. janúar 2024 10:04
Kyrrstæð lægð dælir til okkar éljalofti Nærri kyrrstæð lægð á Grænlandshafi mun dæla til okkar éljalofti úr suðvestri í dag. Smálægð mun fara allhratt norðaustur yfir land og það mun snjóa víða frá henni um tíma og vindur ganga í suðvestan tíu til átján metrum á sekúndu. Veður 26. janúar 2024 07:15
Fjórir á sjúkrahúsi eftir árekstra Þung umferð er um alla borgina um þessar mundir og fjöldinn allur af umferðaróhöppum. Vakthafi hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir fjóra hafa verið flutta á sjúkrahús í kjölfar árekstra. Enginn hlaut alvarlega áverka. Innlent 25. janúar 2024 18:31
Erfið akstursskilyrði og mikið um óhöpp Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri umferðardeildar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir akstursskilyrði á höfuðborgarsvæðinu erfið. Reykjavíkurborg segir glerhálku víða. Öll snjómoksturstæki séu á stofnbrautum. Innlent 25. janúar 2024 16:56
Versta óveður í höfuðborginni í allan vetur Veðurfræðingur segir að óveðrið í höfuðborginni í nótt hafi verið það versta sem skollið hefur á borgarbúum í allan vetur en afar hvassir vindar, þrumur og eldingar einkenndu veðrið. Veður 25. janúar 2024 13:31