Dálítil él norðan- og austantil en annars bjart að mestu Atli Ísleifsson skrifar 11. febrúar 2026 07:08 Reikna má með frosti á landinu í dag, tvö til sjö stig. Veðurstofan Veðurstofan gerir ráð fyrir að það verði norðaustan átta til þrettán metrar á sekúndu með dálitlum éljum á norðan- og austanverðu landinu. Annars verður bjart að mestu á landinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að það verði frost á landinu, tvö til sjö stig. „Á morgun verður norðlæg átt 3-8, en aðeins hvassara austast á landinu. Áfram dálítil él norðan- og austantil, en léttskýjað sunnan heiða. Samt líkur á dálitlum éljum syðst eftir hádegi. Frost 2 til 10 stig, kaldast inn til landsins. Á föstudag gera spár ráð fyrir breytilegri átt. Stöku él á víð og dreif og áfram frost um mest allt land. Um helgina er útlit fyrir fremur hægar breytilegar áttir. Sums staðar dálítil snjókoma og áfram kalt í veðri,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s, en 8-13 með austurströndinni. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, einkum við ströndina. Léttskýjað að mestu sunnan heiða, þó líkur á éljum allra syðst á landinu um kvöldið. Frost 3 til 13 stig, mest inn til landsins. Á föstudag: Breytileg átt 3-8. Él við norðurströndina, en yfirleitt þurrt og bjart veður annars staðar. Víða talsvert frost. Á laugardag: Austlæg átt 3-10 og skýjað að mestu. Dálítil él fyrir norðan og austan, en þurrt sunnan- og vestantil. Frost víða á bilinu 4 til 14 stig. Hvessir suðvestantil seinnipartinn. Á sunnudag: Austlæg átt 8-15, en hægari norðaustantil. Víða léttskýjað, en líkur á stöku éljum syðst á landinu. Áfram kalt í veðri. Á mánudag: Austanátt, dálítil snjókoma eða slydda og hiti nálægt frostmarki á sunnan- og vestanverðu landinu, en léttskýjað og frost 2 til 8 stig norðan- og austantil.Á þriðjudag: Útlit fyrir austlæga átt. Snjókoma eða slydda með köflum sunnan- og vestantil. Lengst af þurrt norðaustanlands, en stöku él við sjóinn. Frost 0 til 10 stig, kaldast norðaustantil, en frostlaust við suðurströndina.
Veður Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Skýjað með köflum „Góðar líkur“ á því að margir sjái til sólar Rofar til og allt að tuttugu stig suðvestanlands Vara við allhvössum vindi á Snæfellsnesi Sólin gæti litið við í borginni um helgina Gæti kólnað fyrir austan þegar líður á vikuna Hæð langt suður í hafi dælir hlýju lofti til landsins Bongóblíða um nánast allt land og rofar til í borginni um stund Bjart austantil en skýjað og svalt við vesturströndina Líkur á stöku skúrum fyrir austan Viðvaranir vegna hvassviðris Rigning og hvasst öðrum megin en sól og bjart hinum megin Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Verður íslenska hitametið slegið á morgun? Ekki að vænta mikilla breytinga í veðri Mest 27 gráður en Reykvíkingar þurfa að bíða Væta vestantil en hlýjast fyrir austan Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Gular veðurviðvaranir í kortunum Bjart og allt að tuttugu og fimm stig á Austurlandi Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Dregur úr vætu síðdegis og hiti að átján stigum Hitatölurnar hækka fyrir austan Varhugaverðar hviður á Suðurlandi Víða allhvass vindur og úrkomubakki nálgast Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Allt að sautján stiga hiti Bjart og hlýtt sunnan heiða Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Hlýjast fyrir austan Sjá meira