Auknar bætur til fórnarlamba Chernobyl Viktor Jútsjenkó, forseti Úkraínu, minntist í gær fórnarlamba kjarnorkuslyssins og bauð fjölskyldum þeirra auknar bætur. Hversu miklar þær verða, sagði hann þó ekkert um. Minningarathöfnin var haldin nærri kjarnakljúfnum sem slysið varð í og hefur 26. apríl verið yfirlýstur sorgardagur í Úkraínu. Erlent 27. apríl 2006 08:45
Tuttugu ár frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl í Úkraínu Í dag er þess minnst að tuttugu ár eru frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl í Úkraínu. Minningargöngur fóru fram víða um Úkraínu í gærkvöld og var klukkum hringt klukkan tuttugu og þrjár mínútur yfir eitt að staðartíma, sem er nákvæm tímasetning slyssins. Austurlandið.is 26. apríl 2006 09:00
Tsjernóbil verður ferðamannastaður Úkraínumenn reyna nú að lappa upp á ferðamannaiðnaðinn í landinu og hafa brugðið á það ráð að breyta Tsjernóbil-kjarnorkuverinu í ferðamannastað. Átján ár eru liðin frá því að kjarnorkuslys varð í Tsjernóbil en verinu var ekki lokað fyrr en árið 2000. Geislavirkni í verinu er 200 sinnum hærri en leyfilegt er en ferðamenn geta gist í verinu í nokkra daga án þess að veikjast. Erlent 22. júlí 2004 00:01