Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

GP! Band á Bakkus

Guðmundur Pétursson gítarleikari heldur tónleika á Bakkus Bar í Tryggvagötu á morgun, miðvikudag. Með honum leika Pétur Ben á gítar og selló, Styrmir Haukson á hljóðgerfla og slagverk, Valdi Kolli á bassa og Kristinn Agnarsson á trommur.

Tónlist
Fréttamynd

GusGus og The Weeknd eiga plötur ársins hjá Vasadiskó

Rafsveitin GusGus og kanadíska söngvarinn er kallar sig The Weeknd eiga plötur ársins að mati útvarpsþáttarins Vasadiskó en seinna uppgjör þáttarins fór fram í dag. Plöturnar Arabian Horse og House of Balloons þóttu standa upp úr að mati þáttarstjórnanda en einnig voru plötur Mugison, Bjarkar, Sóleyjar og Lay Low inn á topp 5 á íslenska listanum en plötur Tune-Yards, Lauru Marling,Wu-Lyf og Önnu Calvi á þeim erlenda.

Tónlist
Fréttamynd

Plata frá Bloc Party á árinu

Kele Okereke, söngvari Bloc Party, hefur staðfest að plata sé væntanleg frá hljómsveitinni á þessu ári. Hljómsveitin hefur unnið að plötunni í New York, sem var einmitt sögusvið prakkarastriks sem hljómsveitin setti á svið á árinu. Þá tjáði Okereke fjölmiðlum að hann hefði verið rekinn úr bandinu, sem væri að leita að söngvara. Þetta ku hafa verið spaug og hann er ennþá söngvari hljómsveitarinnar.

Lífið
Fréttamynd

Afslappað og áhugavert

Bandaríski tónlistarmaðurinn Kurt Vile hefur vakið mikla athygli fyrir sína fjórðu plötu. Afslöppuð kassagítarstemning svífur þar yfir vötnum.

Tónlist
Fréttamynd

Nýtt efni frá The xx

The xx hefur sent frá sér prufuupptöku af laginu Open Eyes sem aðdáendur þessarar ensku sveitar geta nálgast á bloggsíðu hennar. Lagið verður á annarri plötu The xx sem er væntanleg á næsta ári. „Við erum byrjuð að taka upp næstu plötu. Við erum líka byrjuð með þetta blogg þar sem við munum segja frá því sem veitir okkur innblástur, sýna ykkur ljósmyndir og spila uppáhaldslögin okkar," sögðu þau á dögunum.

Tónlist
Fréttamynd

John Grant aftur til landsins

Bandaríski tónlistarmaðurinn John Grant ætlar að heimsækja Ísland á nýjan leik í janúar. Síðast kom hann hingað í október vegna Airwaves-hátíðarinnar og var alveg í skýjunum með heimsóknina.

Tónlist
Fréttamynd

Íslenskt á topp fimm

Hljómsveitirnar Of Monsters and Men og Apparat Organ Quartet eru á lista National Public Radio í Bandaríkjunum, NPR.org, yfir þá fimm flytjendur ársins 2011 sem fólk má ekki missa af.

Tónlist
Fréttamynd

Silkimjúkur sólóferill

Bandaríski rapparinn og leikarinn Common hefur gefið út sína níundu hljóðversplötu. Endurminningar hans eru einnig nýkomnar út þar sem hann skrifar um sambandið við móður sína.

Tónlist
Fréttamynd

Reznor aftur tilnefndur til Golden Globe

Trent Reznor, sem er þekktastur fyrir hljómsveit sína Nine Inch Nails, hefur verið tilnefndur til Golden Globe-verðlauna fyrir tónlistina í kvikmyndinni The Girl with the Dragon Tattoo, eftir David Fincher.

Harmageddon
Fréttamynd

Ólöf Arnalds og Skúli á sólstöðutónleikum

Ólöf Arnalds heldur sína aðra sólstöðutónleika á árinu á Café Flóru í Grasagarðinum í Laugardal í kvöld ásamt Skúla Sverrissyni. Ólöf hélt vel heppnaða sumarsólstöðutónleika í Grasagarðinum í júní og snýr nú aftur til leiks á vetrarsólstöðum.

Tónlist
Fréttamynd

Gefur plötu á netinu

Rapparinn Emmsjé Gauti hefur ákveðið að gefa aðdáendum sínum níu laga plötu á netinu sem heitir Í freyðibaði með Emmsjé Gauta.

Tónlist
Fréttamynd

Nicki Minaj með lag ársins

Gagnrýnendur hjá bandaríska tónlistartímaritinu Billboard hafa valið bestu lög ársins 2011. Fáum kemur það vafalítið á óvart að breska söngkonan Adele er þar ofarlega á blaði.

Tónlist
Fréttamynd

Beach Boys snúa aftur

Bandaríska hljómsveitin The Beach Boys ætlar að koma saman á næsta ári í tilefni fimmtíu ára afmælis síns. Tónleikaferð um heiminn er fyrirhuguð auk þess sem ný plata verður tekin upp.

Tónlist
Fréttamynd

Nancy Sinatra nútímans

Lana Del Rey er söngkonan með dimmu röddina sem er að slá í gegn um þessar mundir með laginu Video Games. Fáir vita að hún hefur áður reynt fyrir sér í tónlistarbransanum og er dóttir milljarðamærings.

Tónlist
Fréttamynd

Milljónasamningur Madonnu

Madonna hefur undirritað samning um að gefa út þrjár plötur hjá Interscope Records, undirfyrirtæki Universal Music Group. Talið er að hún fái eina milljón dollara í sinn hlut fyrir hverja plötu, eða um 120 milljónir króna.

Tónlist
Fréttamynd

Geir vinsæll á netinu

Rúm ellefu þúsund manns hafa séð myndband Geirs Ólafssonar við lagið Við hoppum af nýrri barnaplötu hans, Amma er best.

Tónlist
Fréttamynd

Órafmögnuð plata Hellvar

Hellvar heldur tvenna tónleika á Dillon á föstudagskvöld. Þeir fyrri verða órafmagnaðir en á þeim síðari verður stungið í samband og rokkað af krafti. Ástæða tónleikanna er ný plata með hljómsveitinni sem var tekin upp í síðasta mánuði. Hún heitir Noise That Stopped og hefur að geyma órafmagnaðar útgáfur af nýjustu plötu Hellvar, Stop That Noise.

Tónlist
Fréttamynd

Kammertónlist með sál

Florence and the Machine hefur gefið út plötu ársins að mati tímaritsins Q. Ceremonials fór beint á toppinn í Bretlandi.

Tónlist
Fréttamynd

Vinskapurinn hófst á Airwaves

Írska söngkonan Sinéad O"Connor syngur eigin útgáfu af lagi Johns Grant á væntanlegri plötu sinni sem kemur út í febrúar á næsta ári. Platan kallast How About I Be Me (And You Be You)? og kemur út 20. febrúar.

Tónlist
Fréttamynd

Eins og að halda tónleika heima í stofu

"Þetta verða fyrstu alvöru tónleikarnir þar sem við spilum saman svo við hlökkum mikið til," segir Jón Jónsson, tónlistarmaður, sem heldur tónleika ásamt bróður sínum Friðriki Dór á föstudaginn kemur.

Tónlist
Fréttamynd

Spennandi kapphlaup um vinsælustu jólasmáskífuna

Í Bretlandi hafa menn keppst um það í áratugi að eiga vinsælasta lagið yfir jólatímann. Eins og undanfarin ár er sigurvegari X-Factor talinn líklegastur. Kapphlaupið um vinsælasta jólasmáskífulagið í Bretlandi hefur verið í fullum gangi að undanförnu. Mörg lög hafa verið kölluð til en aðeins eitt mun standa uppi sem sigurvegari síðustu vikuna fyrir jóladag.

Tónlist