Grindvíkingar áfram á sigurbraut | Páll Axel með á ný Grindvíkingar gefa ekkert eftir í Iceland Express deild karla í körfubolta og eru áfram með sex stiga forskot á toppnum eftir 34 stiga heimasigur á Fjölni í kvöld, 107-73. Grindavíkurliðið hefur nú unnið fimm deildarleiki í röð og alls tólf af þrettán deildarleikjum sínum í vetur. Körfubolti 27. janúar 2012 20:46
Jovan með Stjörnunni á ný í léttum sigri á Val | Skoraði 13 stig Jovan Zdravevski lék sinn fyrsta leik síðan í október þegar Stjarnan vann auðveldan 25 stiga sigur á botnliði Vals, 96-71, í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. Stjörnumenn komust upp í annað sætið með þessum sigri en Valsmenn hafa hinsvegar tapað öllum þrettán leikjum sínum í vetur. Körfubolti 27. janúar 2012 20:43
Engin kraftaverk á Króknum Frá því að Bárður Eyþórsson sneri til baka í körfuna og settist í brúna á Tindastóls-bátnum hefur gengi liðsins gjörbreyst. Liðið hefur nú unnið tíu af síðustu tólf leikjum sínum og er komið í undanúrslit bikarsins. Körfubolti 27. janúar 2012 07:00
Umfjöllun og viðtöl: KR - Snæfell 93-94 Snæfellingar unnu dramatískan sigur á KR í 13. umferð Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik í Vesturbænum í kvöld. Þar með er sigurgöngu KR-inga á árinu 2012 lokið. Körfubolti 26. janúar 2012 21:05
Fimmta tap Hauka í röð | Njarðvíkingar unnu lokakaflann 14-2 Njarðvíkingar áttu frábæran lokasprett í tíu stiga sigri sínum á Haukum, 85-75, í leik liðanna í 13. umferð Iceland Express deildar karla í körfubolta sem fram fór í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld. Leikurinn var jafn á flestum tölum en Njarðvíkingar unnu síðustu þrjár mínútur leiksins 14-2. Körfubolti 26. janúar 2012 20:58
Þórsarar unnu ÍR-inga í fjórða sinn í vetur Þórsarar úr Þorlákshöfn unnu tólf stiga sigur á ÍR, 88-76, í leik liðanna í 13. umferð Iceland Express deildar karla í körfubolta sem fram fór í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Körfubolti 26. janúar 2012 20:54
KR-ingar hafa ekki tapað bikarleik undir stjórn Hrafns - myndir KR-ingar unnu sinn áttunda bikarsigur í röð og komust áfram í undanúrslit Powerade-bikarsins með því að leggja Snæfell að velli, 111-104, í DHL-höllinni í kvöld. Það þurfti tvær framlengingar til að fá fram úrslit. Körfubolti 23. janúar 2012 23:45
Umfjöllun og viðtöl: KR - Snæfell 111-104 KR tryggði sér sæti í undanúrslitum Poweradebikarsins með sigri á Snæfelli í tvíframlengdum leik 111-104 á heimavelli þar sem Joshua Brown fór á kostum með 49 stig. Körfubolti 23. janúar 2012 21:13
Sjötti sigur Stólanna í síðustu sjö leikjum - myndir Bárður Eyþórsson er að gera flotta hluti með Tindastólsliðið í körfunni en Stólarnir unnu 88-85 útisigur á Stjörnunni í tólftu umferð Iceland Express deildar karla í gær. Þegar Bárður tók við hliðinu í lok október var liðið búið að tapa öllum sínum leikjum. Körfubolti 20. janúar 2012 08:30
Grindavík, KR og Snæfell áfram á sigurbraut - öll úrslitin í körfunni Heil umferð fór fram í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld en seinni umferðin er þar með farin af stað. Grindavík vann dramatískan sigur í Keflavík og er með sex stiga forskot eftir að Tindastóll fór í Garðabæinn og vann Stjörnuna eftir framlengingu. KR-ingar eru farnir að blanda sér í baráttuna um annað sætið eftir sigur í Þorlákshöfn. Körfubolti 19. janúar 2012 21:45
Umfjöllun viðtöl: Stjarnan - Tindastóll 85-88 | eftir framlengingu Tindastóll vann magnaðan sigur, 88-85, á Stjörnunni í Ásgarði í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld en framlengja þurfti leikinn. Stjarnan hafði yfirhöndina nánast allan leikinn en gestirnir náðu að jafna leikinn rétt undir lok venjulegs leiktíma og tryggði sér síðan sigur í framlengingunni. Maurice Miller var frábær fyrir Stólana og gerði 30 stig. Körfubolti 19. janúar 2012 21:19
KR-ingar áfram ósigraðir á árinu 2012 KR-ingar héldu áfram sigurgöngu sinni á árinu 2012 þegar þeir heimsóttu Þórsara í Þorlákshöfn í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. KR-liðið vann leikinn 80-73 og er því búið að vinna alla fjóra leiki sína síðan að liðið endurnýjaðu útlendingasveit sína. Körfubolti 19. janúar 2012 21:08
Björn Steinar tryggði Grindavík sigur í Toyota-höllinni í Keflavík Björn Steinar Brynjólfsson tryggði Grindavík 86-85 sigur á Keflavík í 12. umferð Iceland Express deildar karla í körfubolta í kvöld með því að skora þriggja stiga körfu skömmu fyrir leikslok. Grindvíkingar halda því fjögurra stiga forskoti á toppnum og eru nú komnir með sex stigum meira en Keflavík sem er í 3. sætinu. Körfubolti 19. janúar 2012 21:02
Helgi Jónas og Govens valdir bestir Darrin Govens, leikmaður úr Þór Þorlákshöfn og Helgi Jónas Guðfinsson, þjálfari Grindavíkur voru valdir bestir í fyrri umferð Iceland Express deild karla í körfubolta en KKÍ verðlaunaði fyrir fyrstu ellefu umferðirnar í dag. Körfubolti 18. janúar 2012 15:16
Grindavík þarf ekkert að borga fyrir Pettinella | Er huldumaðurinn pabbi hans? Ryan Pettinella er aftur orðinn leikmaður Grindavíkur í boði ónefnds fjársterks aðila. Grindvíkingar þurfa ekkert að greiða fyrir kappann. Körfubolti 18. janúar 2012 15:16
Þriðji Kaninn til liðs við Hauka Karlalið Hauka í Iceland Express-deildinni hefur bætt við sig þriðja Bandaríkjamanninum fyrir seinni hluta mótsins. Leikmaðurinn heitir Aleek Pauline og er leikstjórnandi. Körfubolti 17. janúar 2012 14:00
Pettinella aftur í Grindavík? Bandaríkjamaðurinn Ryan Pettinella er mögulega aftur á leið til Grindavíkur en hann var valinn besti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð. Körfubolti 17. janúar 2012 13:45
Emil með sigurkörfuna í Stjörnuleiknum - Höfuðborgarsvæðið vann Emil Þór Jóhannsson, leikmaður KR, tryggði liði Höfuðborgarsvæðsins 142-140 sigur á Landsbyggðarliðinu í Stjörnuleik KKÍ sem fram fór í Dalhúsum í Grafarvogi í dag. Heimamaðurinn Nathan Walkup var valinn besti leikmaður vallarins en þetta kom fram á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 14. janúar 2012 17:31
Jón Ólafur vann þriggja stiga keppnina | Snæfellingar sigursælir Snæfellingar eru sigursælir á Stjörnuhátíð KKÍ því Jón Ólafur Jónsson varð þriggja stiga meistarinn eftir nauman sigur á liðsfélaga sínum í þriggja stiga keppninni sem fram fór í hálfleik á Stjörnuleik KKÍ. Þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 14. janúar 2012 16:08
Snæfellingar eiga troðslumeistarann í ár Quincy Hankins-Cole, úr Snæfelli, varð troðslumeistari Stjörnuleiksins 2012 en Stjörnuhátíð KKÍ stendur nú yfir í Dalhúsum í Grafarvogi. Hankins-Cole mætti Nathan Walkup, úr Fjölni, í dag í úrslitum troðslukeppninnar en þetta kemur fram á heimasíðu KKÍ. Körfubolti 14. janúar 2012 15:48
Körfuboltaveisla í Dalhúsunum í dag Hinn árlegi Stjörnuleikur KKÍ fer fram í Dalhúsum í Grafarvogi í dag. Auk Stjörnuleiksins sjálfs mun að venju fara fram þriggja stiga skotkeppni og troðslukeppni. Körfubolti 14. janúar 2012 10:00
Martin: Hinir Kanarnir voru hálf fúlir Martin Hermannsson, KR-ingurinn ungi og öflugi, var ánægður með nýju erlendu leikmennina eftir sigur sinna manna á ÍR í kvöld. Körfubolti 13. janúar 2012 22:18
Umfjöllun og viðtöl: KR - ÍR 112-71 | Snæfell vann Val Áhuga- og skipulagsleysi ÍR varð liðinu að falli í leik þess gegn KR í DHL-höllinni í kvöld en leiknum lauk með stórsigri KR, 112-71. Körfubolti 13. janúar 2012 21:00
Grindavík styrkti stöðu sína á toppnum | myndir Grindavík vann í gær tíunda sigur sinn í ellefu deildarleikjum er liðið lagði Stjörnuna á útivelli, 75-67. Liðið er með fjögurra stiga forystu á toppi deildarinnar. Körfubolti 13. janúar 2012 08:00
Tindastóll aftur á sigurbraut | öll úrslit kvöldsins Tindastóll vann í kvöld sigur á Njarðvík á útivelli, 85-93 en það er fimmti sigur liðsins í síðustu sex leikjum sínum. Þór og Keflavík unnu einnig sína leiki í kvöld. Körfubolti 12. janúar 2012 20:52
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-Grindavík 67-75 Grindvíkingar hristu af sér bikartapið gegn KR í Garðabænum í kvöld. Þeir unnu þá öruggan sigur á Stjörnunni, 67-75, en Stjörnumenn eru ekki að leika vel þessa dagana. Körfubolti 12. janúar 2012 20:41
Vitum ekki hvort að hann geti harkað af sér Stjarnan verður enn á ný án Jovans Zdravevski þegar liðið mætir Grindavík í toppslag Iceland Express-deildar karla í kvöld. Jovan hefur verið einn allra besti leikmaður Stjörnuliðsins undanfarin tímabil en hann hefur nánast ekkert verið með í vetur vegna meiðsla. Körfubolti 12. janúar 2012 06:00
Renato Lindmets kominn aftur til Stjörnumanna Stjarnan hefur fengið liðstyrk fyrir lokabaráttuna í körfuboltanum en karfan.is segir frá því að Renato Lindmets sé mættur á ný í Garðabæinn. Lindmets stóð sig vel með Stjörnunni í fyrra þegar liðið fór alla leið í lokaúrslitin um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 11. janúar 2012 16:26
KR-ingar fyrstu bikarmeistararnir í fjögur ár sem komast í 8 liða úrslit Íslands- og bikarmeistarar KR tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Poweradebikars karla í gær með því að vinna 81-76 sigur á Grindavík í stórskemmtilegum og spennandi leik í DHL-höllinni. KR-ingar enduðu þar með fjögurra ára bið eftir því að bikarmeistarar ársins á undan kæmust í gegn tvær fyrstu umferðir bikarsins. Körfubolti 10. janúar 2012 16:15
KR mætir Snæfelli í bikarnum - 1. deildarlið í undanúrslitin Það er búið að draga í átta liða úrslitum Powerade-bikars karla og kvenna í körfubolta en dregið var í höfuðstöðvum Vífilfells í dag. Stórleikur átta liða úrslitanna verður viðureign bikarmeistara tveggja síðustu ára, KR og Snæfells sem munu mætast í DHL-höllinni. Körfubolti 10. janúar 2012 14:30