

Fréttir af skóla- og menntamálum á Íslandi.
Íslendingar hafa um árabil stutt við bakið á stelpum í skólum í samstarfshéraðinu Buikwe í Úganda. Stuðningurinn nær til 1200 stúlkna í 21 skóla.
Starfsmaður í Melaskóla hefur greinst með kórónuveirusmit en í gær voru ellefu starfsmenn sendir heim vegna gruns um kórónuveirusmit í skólanum.
Þriðjungur skólabarna í heiminum gat ekki stundað fjarnám þegar loka þurfi skólum í faraldri kórónuveirunnar. Verst er staða barna í Afríku sunnan Sahara en helmingur þeirra hefur engan aðgang að fjarkennslu.
Neyðarástand ríkir í menntamálum um allan heim sakmvæmt Skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Lokanir skóla vegna COVID-19 hafi áhrif á menntun 1,5 milljarða barna í 190 löndum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu myndaði þrjátíu brot ökumanna í námunda við Hólabrekkuskóla í gær.
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar segir vonbrigði að ekki hafi tekist að ráða í öll stöðugildi á leikskólum borgarinnar þegar atvinnuleysi er að aukast.
Ellefu starfsmenn Melaskóla voru í dag sendir heim vegna gruns um kórónuveirusmit en maki eins starfsmanns í Melaskóla greindist með veiruna.
Starfsmaður Melaskóla í Reykjavík er í sóttkví eftir að maki hans reyndist smitaður af kórónuveirunni. Átta starfsmenn til viðbótar hafa verið beðnir um að vera heima í dag.
„Það var grátið,“ segir Sigríður Anna Guðjónsdóttir, skólastjóri Ísaksskóla, um viðbrögð barna í skólanum þegar þau mættu eftir sumarfrí og sáu að vinsæll fótboltavöllur á skólalóðinni var horfinn.
Enn hefur ekki verið ráðið í 76 grunnstöðugildi í 63 leikskólum á vegum Reykjavíkurborgar og sömuleiðis um fjörutíu stöðugildi í 36 grunnskólum.
Leikskólinn Álfaborg á Svalbarðsströnd verður lokaður fram á föstudag meðan beðið er greiningar á sýnum vegna COVID-19.
Átta starfsmenn leikskólans Ægisborgar í Vesturbæ Reykjavíkur hafa verið sendir í sóttkví.
Tveir starfsmenn þriggja skóla og einn starfsmaður Hins hússins á höfuðborgarsvæðinu virðast allir hafa smitast af kórónuveirunni í hópsýkingu á Hótel Rangá. Á sjötta hundrað nemenda komast ekki í skóla eða frístund vegna þess. Sýkingin er rakin til Akraness.
„Ég tel að það sé mjög eðlilegt að áður en þeir komi til starfa fái þeir skimun þannig að þeir hafi öryggi fyrir því að það sé ekki neitt smit í þeim,“ segir Helgi Grímsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
Hátt í 47.000 grunnskólabörn hófu nýtt skólaár í morgun en við óvenjulegar aðstæður. Skólasetningin í ár litast mjög af faraldrinum sem geisar og áskorunum tengdar honum. Starfsfólk tveggja borgarrekinna grunnskóla og eins sjálfstæðs rekins grunnskóla þurfa að sæta tveggja vikna sóttkví.
Starfsmaður Hins hússins sem greindist með kórónuveiruna síðastliðinn fimmtudag smitaðist á Hótel Rangá í liðinni viku. Starfsmaður Álftamýrarskóla og Hvassaleitisskóla smitaðist einnig á Hótel Rangá. Starfsemi skólanna og Hins hússins hefur raskast töluvert vegna smitanna.
Núna eru kennarar að fara hefja næsta skólatímabil og byrjaðir eða eru að undirbúa sig með tillit til einhverri óvissu varðandi skipulag sóttvarnaraðgerða.
Rúmlega þrjátíu starfsmenn Hins hússins eru í sóttkví eftir að starfsmaður greindist með kórónuveiruna á fimmtudaginn síðastliðinn.
Nú eru skólarnir óðum að hefjast og flestir foreldrar farnir að huga að skólatöskum. Að velja og stilla töskuna rétt hefur mikilvægt forvarnargildi þegar kemur að heilsu og líðan barnsins.
Starfsár Listaháskólans hefst á morgun og það með óhefðbundnum hætti sökum COVID-19 faraldursins. Skólinn verður settur í fjögur skipti af Fríðu Björk Ingvarsdóttur rektor.
Skólastarf raskast hjá ríflega sex hundruð börnum í fjórum skólum á höfuðborgarsvæðinu eftir að starfsmenn skólanna greindust með kórónuveiruna. Eitt smitanna má rekja til Hótel Rangár þar sem umfangsmikil hópsýking kom upp í vikunni.
Kórónuveirusmit er komið upp á leikskólanum Huldubergi í Mosfellsbæ. Ákvörðun hefur verið tekin um að loka leikskólanum í samstarfi við rakningarteymi samhæfingarstöðvar almannavarna.
Kórónuveirusmit hafa komið upp í þremur skólum á höfuðborgarsvæðinu og þarf að fresta skólasetningu. Ríflega fimm hundruð nemendur eru í skólunum þremur.
Röskun verður á skólahaldi í þremur skólum Reykjavíkurborgar eftir að kórónuveirusmit greindust í starfsfólki.
Allir starfsmenn Barnaskólans í Reykjavík hafa verið sendir í sóttkví eftir að kennari greindist smitaður. Skólasetning fór fram í gær en þar sem viðkomandi aðili var ekki þar hafa engir nemendur eða foreldrar þurft í sóttkví.
Leikskólanum Hálsaskógi í Breiðholti var lokað í dag.
Nemendum og starfsfólki Háskóla Íslands hefur verið tilkynnt að rafræn kennsla verði lögð til grundvallar á komandi önn, þó með möguleika á staðkennslu ef aðstæður leyfa.
Þingmaður Samfylkingarinnar furðar sig á áætlun félagsmálaráðherra um að heimila atvinnulausum að fara í nám án þess að þeir missi atvinnuleysisbætur.
Í norðanverðum Grafarvogi er verið að gera miklar breytingar á skólahaldi. Þessar breytingar voru keyrðar í gegn síðasta haust þvert á vilja íbúa. Breytingar sem miða að því að spara í borgarkerfinu.
Einn af hverjum tuttugu hinsegin nemendum hefur orðið fyrir líkamsárás í skólum vegna persónueinkenna. Þetta kemur fram í könnun sem Samtökin 78 framkvæmdu á líðan hinsegin ungmenna í skólum.