„Besta tap ævi minnar“ Það er ekki oft sem að íþróttafólk fagnar eftir að hafa tapað en það gerðu Slóvakar svo sannarlega eftir 5-3 tap gegn Svíum í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í gær. Sport 15. febrúar 2026 09:01
Skandall í krullu og ljót orð látin falla „Þú mátt fokka þér,“ sagði hinn kanadíski Marc Kennedy þegar Svíar sökuðu hann um svindl í krullu á Vetrarólympíuleikunum í gær. Myndband virðist þó sýna að Svíarnir hafi mikið til síns máls. Sport 14. febrúar 2026 20:27
Fékk sig fullsaddan í Noregi og vann sögulegt gull fyrir Brasilíu Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda. Sport 14. febrúar 2026 15:31
Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Jón Erik Sigurðsson fékk væna byltu í síðari ferð dagsins í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum. Hann komst blessunarlega á fætur eftir fallið. Sport 14. febrúar 2026 13:52
Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Allt logar í Svíþjóð eftir að lið landsins í boðgöngu í skíðagöngu kvenna á Vetrarólympíuleikunum missti af gulli. Þetta var „martröð“ og hjörtu eru brotin samkvæmt liðskonu sem féll tvisvar í brautinni. Sport 14. febrúar 2026 13:01
Ólympíufarar notuðu yfir tvo smokka á dag Tíu þúsund smokkar í Ólympíuþorpinu í Cortina á Ítalíu kláruðust á mettíma. Karlkyns keppendur notuðu að meðaltali fleiri en tvo smokka á dag á þremur dögum. Sport 14. febrúar 2026 11:15
Fínasta fyrri ferð Jóns Eriks Jón Erik Sigurðsson mætti til leiks á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í morgun er hann tók þátt í risasvigi í Stelvio brekkunni í Ölpunum. Sport 14. febrúar 2026 10:30
Brottvísun af ÓL stendur: Áfrýjun Úkraínumannsins vísað frá Alþjóðaíþróttadómstóllinn hefur vísað frá áfrýjun Úkraínumannsins Vladyslav Heraskevych eftir að honum hafði verið vísað úr keppni á Vetrarólympíuleikunum. Ákvörðun um brottvísun hans af leikunum stendur því. Sport 13. febrúar 2026 17:25
Smokkarnir kláruðust í Ólympíuþorpinu á þremur dögum Það átti að vera nóg af smokkum í boði í Ólympíuþorpi keppenda í Cortina á Vetrarólympíuleikunum en þeir voru ekki lengi að klárast. Sport 13. febrúar 2026 16:30
Dagur gaf vel í eftir rólega byrjun Dagur Benediktsson lauk 10 kílómetra skíðagöngu með frjálsri aðferð á 24 mínútum og 18,1 sekúndu og var í 69. sæti. Norðmaðurinn Johannes Klæbo vann gullið eftir mikla samkeppni. Sport 13. febrúar 2026 11:58
Sýndi bæði gullið og áverkana á mjöðminni Svissneska skíðakonan Mathilde Gremaud tryggði sér Ólympíugull í skíðafimi kvenna en henni tókst að vinna gullið þrátt fyrir fall á síðustu æfingu fyrir úrslitin. Sport 13. febrúar 2026 10:30
Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Hin sautján ára gamla Choi Ga-on kom í veg fyrir að bandaríska goðsögnin Chloe Kim skráði sig á spjöld sögunnar í snjóbrettaheiminum þegar sú suðurkóreska hristi af sér byltu í byrjun og vann gull í hálfpípu á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Sport 13. febrúar 2026 09:32
Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Finnski skíðastökkþjálfarinn Igor Medved þarf að yfirgefa Ólympíuleikana í Mílanó og Cortina eftir það sem lýst er sem „áfengistengdum vandamálum“. Sport 13. febrúar 2026 09:02
Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Þetta verða heldur betur eftirminnilegir Ólympíuleikar fyrir bandarísku alpaskíðakonuna Breezy Johnson. Sport 13. febrúar 2026 07:31
Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Úkraínumaðurinn Vladyslav Heraskevych hefur áfrýjað til Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS) eftir að honum var vísað úr keppni á magasleða á Ólympíuleikunum á fimmtudag. Sport 13. febrúar 2026 06:20
Gómaður á ÓL eftir sextán ár á flótta Maður á fimmtugsaldri frá Slóvakíu ætlaði sér að horfa á íshokkíleik Slóvakíu og Finnlands á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu en var handtekinn og fluttur í fangaklefa. Hann hafði verið sextán ár á flótta. Sport 12. febrúar 2026 23:01
Norski snillingurinn hjálpaði Svíum að vinna gullverðlaun Frida Karlsson rústaði samkeppninni og vann gullverðlaun fyrir hönd Svíþjóðar í 10 kílómetra skíðagöngu í dag, eftir að hafa fengið góð ráð frá þeim besta í bransanum, norska skíðagöngumanninum Johannes Høsflot Klæbo. Sport 12. febrúar 2026 22:32
„Klúðraði þessu svolítið vel í dag“ „Ég var bara brjáluð,“ segir Kristrún Guðnadóttir um það hvernig var að átta sig á því að hún hefði gert afar dýrkeypt mistök á Vetrarólympíuleikunum í dag. Röng beygja þýddi að hún var dæmd úr keppni, í 10 kílómetra skíðagöngunni. Sport 12. febrúar 2026 15:48
Fæddist fingralaus en vann silfur á Ólympíuleikunum Afrek hinnar kanadísku Florence Brunelle á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina hefur vakið mikla athygli enda yfirsté hún einstakar hindranir og vann verðlaun á stærsta sviðinu. Sport 12. febrúar 2026 13:48
Kristrún dæmd úr leik en Svíar áttu sviðið Skíðagöngukonan Kristrún Guðnadóttir keppti í seinni grein sinni á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í dag, þegar hún keppti í 10 kílómetra göngu með frjálsri aðferð. Hún var hins vegar dæmd úr keppni. Sport 12. febrúar 2026 13:25
Hræðilegt fall á Ólympíuleikunum hjá fyrrum silfurhafa Kínverska snjóbrettakonan, hin 33 ára gamla Liu Jiayu sem vann silfurverðlaun á Ólympíuleikunum 2018, slasaðist alvarlega á Ólympíuleikunum í ár. Sport 12. febrúar 2026 11:03
„Ólympíuverðlaununum var stolið frá mér“ Það var mikil dramatík í þúsund metra skautahlaupi karla á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina í gær. Sport 12. febrúar 2026 10:33
Hent út af ÓL vegna hjálmsins Mikil sorg ríkti við sleðabrautirnar í Cortina á Vetrarólympíuleikunum í dag, þegar tilkynnt var að búið væri að taka keppnisleyfið af hinum úkraínska Vladyslav Heraskevych. Hann hafði neitað að skipta út hjálmi sínum sem sýndi fórnarlömb stríðsins í heimalandinu. Sport 12. febrúar 2026 10:04
Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu. Sport 12. febrúar 2026 09:30
Ólympíumeistarinn sem fer eigin leiðir og keppir undir söng Laufeyjar Hver er Alysa Liu, bandaríska listskautadanskonan sem vann nýlega Ólympíugull? Áhugi Íslendinga á henni hefur aukist til mikilla muna eftir að í ljós kom að hún keppir undir söng íslensku stórstjörnunnar Laufeyjar Lín Jónsdóttur. Sport 12. febrúar 2026 08:03
Stal kreditkorti liðsfélaga og fagnaði gulli fyrir framan hana Julia Simon varð í gær fyrsta franska konan til að vinna gullverðlaun í einstaklingskeppni í 15 kílómetra skíðaskotfimi og fagnaði gullverðlaununum fyrir framan liðsfélaga sinn sem hún stal peningum af. Sport 12. febrúar 2026 07:01
Vonn á batavegi eftir þriðju aðgerðina Lindsey Vonn sendi fylgjendum sínum kveðju á samfélagsmiðlum og segist vera á batavegi en hún hefur gengist undir þrjár aðgerðir eftir að hafa fótbrotnað á Vetrarólympíuleikunum. Sport 11. febrúar 2026 22:58
„Ég skil ekki hvernig fólk getur skrifað svona“ Svíar unnu þrefaldan sigur í sprettkeppni kvenna í skíðagöngu á Ólympíuleikunum í Mílanó og Cortina en sú fjórða í sænska liðinu þurfti á móti að þola níð á netinu. Sport 11. febrúar 2026 15:45
Aðeins þriðji karlinn til að vinna þrjú Alpagreinagull á sömu leikum Ólympíuleikarnir eru nýhafnir en það er þegar orðið ljóst að Svisslendingurinn Franjo von Allmen endar sem ein stærsta stjarna leikanna. Sport 11. febrúar 2026 14:02
Snoop Dogg sagður fá 61 milljón króna í laun á dag Bandaríski rapparinn og skemmtikrafturinn Snoop Dogg er staddur á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina á Ítalíu þar sem hann er „aðalpeppari“ bandaríska landsliðsins, svokallaður heiðursþjálfari liðsins. Sport 11. febrúar 2026 12:32