

Olís-deild kvenna
Leikirnir

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - Valur 28-24
Stjarnan vann magnaðan sigur, 28-24, á Val í undanúrslitum N1-deildar kvenna í handknattleik og jöfnuðu þar með einvígið 1-1. Stjarnan hafði yfirhöndina nánast allan leikinn og áttu sigurinn fyllilega skilið. Rakel Dögg Bragadóttir skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna í leiknum en Þorgerður Anna Atladóttir var með tíu hjá Val.

Stella er ekki brotin
Besti leikmaður kvennaliðs Fram, Stella Sigurðardóttir, meiddist í leiknum gegn ÍBV í gær og var óttast að hún væri alvarlega meidd.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍBV 25-24 | 1-0 fyrir Fram
Fram er komið í 1-0 á móti ÍBV í undanúrslitaeinvígi liðanna í úrslitakeppni N1 deildar kvenna í handbolta. Fram vann fyrsta leikinn með einu marki, 25-24, eftir spennandi leik í Safamýrinni í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Stjarnan 27-23 | 1-0 fyrir Val
Valur sigraði Stjörnuna 27-23 í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum N1 deildar kvenna í handbolta í kvöld. Stjarnan yfir í hálfleik 13-12 en Valur réð lögum á lofum á vellinum í seinni hálfleik og vann sanngjarnt.

Valur í undanúrslitin
Nú er ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum úrslitakeppni N1-deildar kvenna. Valur tryggði sæti sitt þar eftir sigur á Haukum í Hafnarfirði í dag, 32-21.

Fram, ÍBV og Stjarnan komin áfram
Þremur leikjum af fjórum er lokið í úrslitakeppni N1-deildar kvenna í dag. Fram, ÍBV og Stjarnan tryggðu sér öll sæti í undanúrslitunum.

ÍBV vann eftir framlengdan leik
Fyrsta leik kvöldsins í úrslitakeppni N1-deildar kvenna er lokið. ÍBV vann þá sigur á FH, 29-26, eftir framlengingu.

Ætlum að sýna hvað við getum
Úrslitakeppni N1-deildar kvenna hefst í kvöld en þá fara fram fyrstu leikirnir í 8-liða úrslitum.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - HK 32-15
Stjarnan er komin með 1-0 forystu í einvígi sínu gegn HK í úrslitakeppni N1-deildar kvenna eftir afar sannfærandi sigur á heimavelli í kvöld.

Stella: Skemmtilegasti tími ársins
Stella Sigurðardóttir, leikmaður Fram, er ánægð með að úrslitakeppni N1-deildar kvenna sé loksins að hefjast. Fram mætir Gróttu í sinni rimmu í fjórðungsúrslitunum og er fyrsti leikurinn klukkan 19.30 í kvöld.

Jenný á þetta fyllilega skilið
Stefán Arnarson er ánægður með frammistöðu markvarðar síns hjá Val, Guðnýju Jennýju Ásmundsdóttur, sem í gær var valin besti leikmaður seinni hluta tímabilsins í N1-deild kvenna.

Guðný Jenný valin best
Guðný Jenný Ásmundsdóttir, markvörður Vals, var í dag valin besti leikmaður N1-deildar kvenna fyrir frammistöðu sína á seinni hluta tímabilsins.

HSÍ búið að raða upp leikjum í úrslitakeppnunum þremur
Handknattleikssamband Íslands hefur nú gefið út hvenær leikirnir í úrslitakeppni N1 deild karla og kvenna fara fram sem og leikirnir í umspili um sæti í N1 deild karla. Úrslitakeppni kvenna hefst fimmtudaginn 4. apríl, úrslitakeppni N1 deildar karla hefst laugardaginn 13. apríl og umspilið hefst þriðjudaginn 9. apríl.

Annar sigur á Svíum
Helgin var góð hjá íslenska kvennalandsliðinu í handknattleik en það vann tvo góða sigra á Svíum. Þann síðari í dag, 30-27.

Frábær sigur á Svíum
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann glæstan sigur á sterku liði Svía í dag er liðin mættust í Austurbergi. Þetta var fyrri vináttulandsleikur þjóðanna um helgina.

Stella með tilboð frá SönderjyskE
Landsliðskonan Stella Sigurðardóttir úr Fram er með tilboð frá danska úrvalsdeildarliðinu SönderjyskE undir höndum. Þetta kemur fram á Sport.is.

Einar inn fyrir Gústaf
Einar Jónsson, þjálfari karlaliðs Fram í handknattleik, verður aðstoðarmaður Ágústs Jóhannssonar með íslenska kvennalandsliðið.

Florentina kölluð inn í landsliðið
Ágúst Þór Jóhannsson landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna hefur kallað Florentinu Stanciu, markvörð ÍBV, inn í æfingarhóp landsliðsins þar sem hún er orðinn íslenskur ríkisborgari. Þetta kemur fram á heimasíðu HSÍ.

Löng bið eftir úrslitakeppninni hjá stelpunum
Deildarkeppni N1-deildar kvenna lauk um helgina og nú verða liðin sem komust í úrslitakeppnina að bíða í tæpar þrjár vikur þar til þau spila næsta.

Þessi lið mætast í úrslitakeppni N1-deildar kvenna
Lokaumferð N1-deildar kvenna lauk nú síðdegis og er því ljóst hvaða lið munu mætast í úrslitakeppninni sem hefst þann 4. apríl næstkomandi.

Stórsigur ÍBV á deildarmeisturunum
ÍBV vann öruggan ellefu marka sigur á nýkrýndum deildar- og bikarmeisturum Vals, 33-22, í fyrsta leik dagsins í lokaumferð N1-deildar kvenna í handbolta.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Fram 22-25 | Valur bikarmeistari
Valur varð í dag bikarmeistari kvenna annað árið í röð. Þær unnu þá Fram í stórskemmtilegum leik í Laugardalshöllinni.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Fram 21-32 | Fram mætir Val í úrslitum bikarsins
Fram vann afar sannfærandi ellefu marka sigur, 21 - 32, á Gróttu í seinni undanúrslitaleiknum Símabikarsins í Laugardalshöllinni í dag. Það verða því Valur og Fram sem mætast á morgun í úrslitaleik Símabikarsins.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Valur 19-27 | Bikarmeistararnir í úrslit
Nýkrýndir deildarmeistar í N1- deild kvenna, Valur, sigraði ÍBV í undanúrslitum Símabikarsins í Laugardalshöllinni í dag. Þær fara því í úrslitaleikinn sem háður verður á morgun. En seinna í dag kemur það í ljós hvort þær mæta liði Fram eða Gróttu.

Passi í boði á alla leikina á úrslitahelgi Símabikarsins
Bikarúrslitaleikir allra flokka í Símabikarnum í handbolta fara fram í Laugardalshöllinni um næstu helgi en í fyrsta sinn eru undanúrslitaleikir hjá körlum og konum spilaðir á sömu helgi og sjálfir bikarúrslitaleikirnir.

Myndband: Valur deildarmeistari
Valsstúlkur tryggðu sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í N1-deild kvenna. Liðið vann þá öruggan sigur á HK, 33-28.

Hrafnhildur Skúladóttir: Sætur titill
Hrafnhildur Skúladóttir var virkilega ánægð með Deildarmeistaratitilinn sem Valur tryggði sér í dag þegar liðið bara sigur úr býtum gegn HK, 33-28, á Hlíðarenda í kvöld.

Úrslit dagsins í N1-deild kvenna
Fjórir leikir fóru fram í N1-deild kvenna í dag. Voru öll úrslit dagsins eftir bókinni.

Sautján marka sigur Framkvenna
Framkonur náðu Valskonum að stigum á toppi N1 deildar kvenna í handbolta eftir 17 marka sigur á Aftureldingu, 33-16, á Varmá í Mosfellsbænum í kvöld. Valskonur halda toppsætinu á betri árangri í innbyrðisviðureignum og eiga auk þess leik inni.

Öruggt hjá Val og Fram - öll úrslit kvöldsins
Valur og Fram, tvö efstu lið N1-deildar kvenna í handbolta, unnu bæði örugga heimasigra í leikjum sínum í kvöld en öllum fimm leikjum umferðarinnar er nú lokið og hér fyrir neðan má finna markaskorara liðanna í kvöld.