

Olís-deild karla
Leikirnir

Hreiðar Levý: Hræðsla hjá körfunni í KR
Hreiðar Levý Guðmundsson er vonsvikinn yfir því að karlalið KR í handbolta hafi verið lagt niður.

Yfirgnæfandi líkur á fjölgun liða: Stjarnan og Víkingur næstu lið inn
Víkingar eiga mjög líklega von á góðum fréttum í dag þegar deildaskipan fyrir næsta vetur í handboltanum verður gefin út.

Óskar Bjarni: Ég vissi að þetta yrði svona í þessum leik, varðandi dómgæsluna
Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfara Vals, var eðlilega svekktur eftir tapið fyrir FH í dag. Valsmenn unnu góðan sigur í Hafnarfirði í fyrsta leik liðanna en nú er staðan í einvígi liðanna jöfn.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - FH 25-28 | FH náðu aftur heimaleikjarétti með sigri í Valsheimilinu
Deildarmeistarar FH unnu gríðarlega mikilvægan sigur á Val í Valsheimilinu 28-25. Það þýðir að staðan í einvíginu er jöfn 1-1. Gísli Þorgeir Kristjánsson fór á kostum í liði FH og skoraði 10 mörk.

Fyrirliði KR: Allir sem einn, nema handboltinn
Eins og frá var greint fyrr í dag hefur meistaraflokkur karla í handbolta hjá KR verið lagður niður.

Aðalstjórn Þórs hafnar slitum á samstarfssamningnum
Aðalstjórn Þórs Ak. hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna frétta síðustu daga um slit á samstarfi Þórs og KA í handbolta karla.

KR leggur handboltaliðið niður
KR spilar ekki í Olís-deild karla í handbolta á næsta tímabili þrátt fyrir að hafa unnið sér sæti í deildinni nú í vor.

Aron Dagur á leið til Stjörnunnar
Leikstjórnandinn efnilegi yfirgefur Seltjarnarnesið og spilar með Garðbæingum í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

KR á ekki hús fyrir handboltaliðið sitt og gefur líklega eftir sæti sitt í efstu deild
KR er búið að tryggja sér sæti í efstu deild karla í handbolta í fyrsta sinn í langan tíma en nú lítur út fyrir að liðið muni þurfa að afsala sér sæti sínu vegna aðstöðuleysis í Vesturbænum.

Valsmenn fá einn efnilegasta markvörð landsins frá Víkingi
Einar Baldvin Baldvinsson er búinn að skrifa undir samning við Val og spilar með liðinu í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

Útiliðið hefur unnið fyrsta leikinn í sex af síðustu sjö úrslitaeinvígum
Valsmenn eru komnir í 1-0 í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta eftir fjögurra marka sigur á FH í Kaplakrika í gærkvöldi, 28-24.

Sautján ára strákur fékk 10 í einkunn fyrir fyrsta leikinn á stærsta sviðinu
FH-ingar eru lentir 1-0 undir í úrslitaeinvíginu á móti Val eftir 28-24 tap á heimavelli í fyrsta leik lokaúrslita Olís-deildar karla í Kaplakrika í gær.

KA keypti ekki draumsýnina fyrir norðan
Samstarf KA og Þórs í handbolta karla heyrir sögunni til. Bæði lið hefja leik í 1. deildinni næsta vetur. KA-menn vildu slíta samstarfinu en ekki Þórsarar.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Valur 24-28 | Valur vann fyrstu orrustuna
FH-ingar töpuðu í kvöld sínum fyrsta leik úrslitakeppninni er hörkutólin af Hlíðarenda komu í heimsókn í Kaplakrika.

KA varð aftur KA á fimmtán ára meistaraafmælinu
Tilkynningin um endalok Akureyrarliðsins kemur á merkilegum degi í sögu handboltans á Akureyri.

Goðsagnir í hverri stöðu þegar FH og Valur mættust síðast í úrslitum
FH og Valur mætast í fyrsta leik í úrslitum Olís-deildar karla í Kaplakrika í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 20:15.


Framtíð samstarfs KA og Þórs ræðst á fundi ÍBA
Svo gæti farið að framtíð Akureyrar handboltafélags myndi ráðast á fundi ÍBA, Íþróttabandalags Akureyrar í dag.

FH hefur aðeins fleiri vopn en Valur
Valur og FH eru tvö sigursælustu karlaliðin í sögu íslenska handboltans og í kvöld hefst úrslitaeinvígi þeirra í Olís-deild karla.

Þór vill halda samstarfinu við KA áfram
Ekki liggur ljóst fyrir hvort samstarf KA og Þórs í handbolta karla verði haldið áfram.

Skrifaði undir nýjan samning degi fyrir úrslitaeinvígið
Halldór Jóhann Sigfússon hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við FH.

Tveir nýir markverðir í Mosfellsbæinn
Handboltalið Aftureldingar í karlaflokki hefur samið við þrjá nýja leikmenn. Þetta eru bræðurnir Þorgrímur Smári og Lárus Helgi Ólafssynir og Kolbeinn Aron Ingibjargarson.

Akureyrarliðið ekki enn búið að skrá sig til leiks og HSÍ framlengdi frestinn
Mikil óvissa er uppi um hvort að Akureyrarliðin KA og Þór haldi áfram samstarfi sínu í handboltanum næsta vetur og þessi óvissa hefur haft þau áhrif að Handknattleiksamband Íslands hefur framlengt frestinn til að skrá sig til keppni á Íslandsmótinu 2017-18.

Ætla sér að berjast um titlana
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Gunnarsson mun leika með Stjörnunni í Olís-deild karla næstu tvö árin. Ákvörðunin var tekin í samráði við Geir Sveinsson. Stjörnumenn stefna hátt og ætla að berjast um titla.

Bjarki Már: Ýmislegt sem bauðst
Bjarki Már Gunnarsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Stjörnuna. Hann mun því leika í Olís-deildinni næstu árin.

Bjarki Már mættur í Garðabæinn
Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Gunnarsson skrifaði nú síðdegis undir tveggja ára samning við Olís-deildarlið Stjörnunnar.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - Valur 21-31 | Valsmenn komnir í úrslit eftir öruggan sigur
Valsmenn unnu sannfærandi tíu marka sigur á Fram 31-21 í undanúrslitum Olís-deildar karla í handbolta í kvöld en Valsmenn unnu alla þrjá leiki einvígisins og eru því komnir í úrslitaeinvígið gegn FH.

Davíð snýr sér alfarið að þjálfun
Markvörður Aftureldingar ætlar ekki að spila aftur með liðinu í Olísdeildinni næsta vetur.

Auðvelt hjá ÍR-ingum
ÍR rúllaði yfir KR, 37-28, í fyrsta leik liðanna í úrslitum umspils um sæti í Olís-deild karla.

Andri Heimir rær á önnur mið
Andri Heimir Friðriksson hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Hauka í Olís-deild karla í handbolta.