
Boltaleikurinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, orðaði það svo í Fréttablaðinu í gær að ekki væri hægt að klára samninga um Icesave-skuldina vegna „pólitíska ástandsins á Íslandi“. Formaðurinn vísaði meðal annars til áhrifa landsdómsmálsins, fjöldamótmæla, átaka um skuldamál heimilanna og deilna um niðurskurð í heilbrigðiskerfinu. Það er rétt hjá Sigmundi Davíð að pólitíska ástandið á Íslandi er vont. Ríkisstjórnin er sjálfri sér sundurþykk um ýmis mál. Stórar og mikilvægar ákvarðanir sitja á hakanum.