

Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Nokkuð erilsamt virðist hafa verið hjá lögreglunni í gærkvöldi.
Maðurinn sem handtekinn var í nótt í tengslum við bruna á Akureyri hefur verið látinn laus. Þá miðar rannsókn á brunanum vel, samkvæmt Lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Dómsmálaráðherra er ánægð með að landlæknir og Útlendingastofnun ætli að skoða hvernig bæta megi ferla við heilsufarsmat á fólki sem bíði brottflutnings frá landinu. Einstaklingsbundið mat verði að liggja þar á bakvið en mikill fjöldi mála sé afgreiddur á hverju ári.
Búið sé að óska eftir fundi með embætti landlæknis svo hægt verði að fara yfir málið og kanna með hvaða hætti skuli standa að öflun læknisvottorða vegna mála eins og máls óléttu konunnar frá Albaníu sem var vísað úr landi í gær.
Eldsupptök voru á neðstu hæð hússins en ekki fæst staðfest hvort grunur sé um íkveikju.
Maður sem réðst á konu fyrir framan verslun í miðbænum aðfaranótt þriðjudags er enn ekki fundinn.
Starfsmannaleigan Manngildi ehf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta.
Málið er rakið í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglu var á ellefta tímanum í gærkvöldi tilkynnt um slagsmál utandyra í Hlíðunum í Reykjavík.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, segir að meta þurfi hvort breyta þurfi reglum eða verklagi vegna brottvísunar óléttrar konu frá Albaníu í nótt.
Tvítugur karlmaður sem grunaður er um tilraun til manndráps eða mjög grófa líkamsárás á sautján ára kærustu sinni í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt laugardagsins 19. október tjáði lögreglu í kjölfar handtöku að fram hefðu farið dramatísk sambandsslit um nóttina.
Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina viðurkenndi neyslu fíkniefna.
Karlmaður réðst á konu fyrir utan verslun í miðbænum og veitti henni áverka á fjórða tímanum í nótt.
Yfirvöld höfðu engar upplýsingar um að hundrað og fimmtíu kíló af sprengiefni hefðu verið geymd í gámi í Njarðvík. Ekki er útilokað að sprengiefni sé geymt víðar við óviðundandi aðstæður.
Upplýsingar um meiðsli liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Ferðamaður slasaðist við Seljalandsfoss á fimmtudaginn í síðustu viku þegar klakastykki hrundi á hann úr berginu við fossinn.
Að því er fram kemur í dagbók lögreglu aðstoðaði lögregla fólkið, ýmist með því að aka því heim til sín, á slysadeild eða í gistiskýli.
Um helmingur þeirra sem slösuðust í hörðum árekstri tveggja bíla á Reykjanesbraut í gær hafa verið útskrifaðir af slysadeild. Tíu voru fluttir með sjúkrabílum til aðhlynningar á sjúkrahúsi.
Ökumaðurinn sem um ræðir var á stolinni bifreið og hlýddi ekki stöðvunarmerkjum lögreglu.
Skot hlaut úr byssu rjúpnaskyttu á sjötugsaldri og hæfði hann í fótinn.
Sprengiefnið sem fannst í Njarðvík verður flutt á varnarsvæðið í Keflavík og fargað síðar í kvöld.
Lögreglan á Suðurnesjum þarf að grípa til rýmingaraðgerða vegna gamals sprengiefnis sem fannst í gámi á iðnaðarsvæði við íbúðarhverfi í Njarðvík.
Gæsluvarðhald yfir starfsmanni Airport Associates sem grunaður er um aðild að stóru fíkniefnamáli sem kom upp á Suðurnesjum fyrir viku var framlengt í gær um viku auk þess honum er gert að sæta einangrun. Lögmaður mannsins hefur kært úrskurðinn til Landsréttar.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi ökumann sem grunaður er um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra hefur ákært karlmann fyrir ofbeldisbrot í nánu sambandi með því að hafa tvisvar á árinu 2017 ráðist á unnustu sína.
Verjandi mannsins bað jafnframt um þriggja vikna frest til að skila greinargerð.
Landsréttur hefur snúið við úrskurði um að leysa ætti karlmann um tvítugt, sem grunaður er um alvarlega líkamsárás, úr gæsluvarðhaldi. Maðurinn hefur verið handtekinn og færður aftur í gæsluvarðhald til 22. nóvember.
Sex lítrar af amfetamínbasa fundust á geymslugólfi og tvö kíló af kókaíni fundust fyrir ofan loftklæðningu íbúðar eins mannanna sem grunaðir eru um umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins.
Um klukkan fjögur í dag var vegfarandi um Skeiðaveg fyrir því óláni að ný frystikista féll af palli bifreiðar hans.
Starfsmaður á Keflavíkurflugvelli og tveir fyrrverandi starfsmenn flugvallarins eru í gæsluvarðhaldi grunaðir um umfangsmikið fíkniefnasmygl. Eru þeir grunaðir um að hafa smyglað nokkrum lítrum af amfetamínbasa og rúmlega tveimur kílóum af kókaíni til landsins.