Sex fluttir á slysadeild eftir árás í Borgarholtsskóla Sex voru fluttir á slysadeild á öðrum tímanum í dag eftir að árás var gerð í Borgarholtsskóla. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í samtali við Vísi. Einn var leiddur út úr skólanum í járnum. Innlent 13. janúar 2021 13:03
Ógnaði starfsmönnum skyndibitastaðar með eggvopni Maður ógnaði starfsmönnum á skyndibitastað í austurhluta borgarinnar með eggvopni um kl. 19.30 en náði engum fjármunum. Hann hefur verið handtekinn. Innlent 12. janúar 2021 23:02
Óttast að vera send aftur til Ítalíu þar sem hún hafi verið seld í mansal Kona frá Nígeríu sem sótt hefur um alþjóðlega vernd á Íslandi óttast að verða send aftur til Ítalíu þar sem hún hafi verið fórnarlamb mansals. Óttast er að stór hluti kvenna frá Nígeríu sem óskað hefur eftir vernd hér á landi hafi einnig verið seldar í mansal. Innlent 12. janúar 2021 19:17
Ölvuð í Heiðmörk með ársgamalt barn í bílnum Lögregluþjónar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðisins handtóku í dag par í Heiðmörk vegna gruns um ölvunarakstur. Parið verður í fangageymslu í nótt og verða þau yfirheyrð á morgun. Innlent 11. janúar 2021 22:51
Féll niður vök á Hafravatni Upp úr hádegi í dag var manneskju bjargað sem hafði fallið niður vök á Hafravatni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 10. janúar 2021 13:04
Ógnaði manni með skærum í Kópavogi Alls voru níutíu mál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan fimm í nótt. Sex voru jafnframt vistaðir í fangaklefum samkvæmt dagbók lögreglu. Innlent 10. janúar 2021 07:46
Réðust á og rændu skutlara Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar tveggja aðila sem grunaðir eru um að hafa ráðist á og rænt svokallaðan skutlara í Hafnarfirði í nótt. Innlent 9. janúar 2021 16:48
Var ekki í síbrotagæslu þrátt fyrir langan sakaferil og mörg nýleg brot Verjandi manns sem var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi í héraðsdómi Reykjavíkur í gær segir að skjólstæðingur sinn hafi tekið ákvörðun um næstu skref en vilji ekki gefa upp hver hún sé á þessari stundu. Þá hefur ekki komið fram hvort ríkissaksóknari hyggst áfrýja málinu til Landsréttar eður ei. Innlent 9. janúar 2021 14:00
Lögðu hald á plöntur og búnað til fíkniefnaframleiðslu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni í Hafnarfirði skömmu eftir klukkan tíu í gærkvöldi vegna framleiðslu fíkniefna. Samkvæmt dagbók lögreglu var lagt hald á plöntur og búnað til framleiðslunnar. Innlent 9. janúar 2021 07:32
Maðurinn var stórhættulegur og kerfið brást Kona sem varð fyrir stórhættulegri hnífstunguárás að tilefnislausu á heimili sínu síðasta sumar af hálfu síbrotamanns telur kerfið hafa brugðist. Maðurinn hafi fengið að ganga laus þrátt fyrir að hafa stuttu áður framið alvarlega líkamsárás, frelsissviptingu og fjölda annarra brota. Hann var dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir brotin í Héraðsdómi í dag. Innlent 8. janúar 2021 19:01
Börn fengið greiðslur frá útlöndum fyrir kynferðislegar myndir Tvær tilkynningar bárust ábendingalínu Barnaheilla í desember um að erlendir aðilar hafi greitt íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Framkvæmdastjóri heimilis- og skóla segir að foreldrar verði að vera vakandi fyrir þessari þróun. Innlent 7. janúar 2021 20:01
Ekið á gangandi vegfarendur í Reykjanesbæ Ekið var á gangandi vegfarendur í Reykjanesbæ laust fyrir hádegi í dag. Tveir voru fluttir á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi til aðhlynningar, að því er segir í tilkynningu frá lögreglu á Suðurnesjum. Innlent 7. janúar 2021 16:26
Íslenskum börnum greiddar fimm til tíu þúsund krónur fyrir kynferðislegar myndir Hátt í tíu mál voru kærð til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í desember þar sem karlmenn greiddu allt niður í 13 ára íslenskum börnum fyrir kynferðislegar myndir af þeim. Börnin fengu greiddar á bilinu fimm til tíu þúsund krónur fyrir myndina í gegnum forrit í símanum. Innlent 7. janúar 2021 07:01
Skutu flugeldum á endurnar á Tjörninni Íbúum við Tjörnina er brugðið en ungir menn hafa sést þar við þann ljóta leik að kveikja á flugeldum og kínverjum og beina að fuglalífi sem þar er. Innlent 6. janúar 2021 13:59
Manndrápsmál fellt niður vegna andláts ákærða Manndrápsmál á hendur karlmanni um þrítugt sem ákærður var fyrir að myrða móður sína og stinga sambýlismann hennar í Hafnarfirði í apríl í fyrra verður formlega fellt niður í Héraðsdómi Reykjaness á næstunni. Ástæðan er sú að ákærði er látinn. Innlent 5. janúar 2021 10:40
Afgreiðslustúlku á Hlemmi ógnað og hún elt inn á starfsmannarými Súrdeigsbakaríið Brauð & Co hefur lokað útibúi sínu við Hlemm Mathöll. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir ástæðuna meðal annars þá að ekki sé unnt að tryggja öryggi starfsmanna á Hlemmi. Innlent 5. janúar 2021 09:01
Þremur bifhjólum stolið í Vesturbænum Laust fyrir klukkan hálfellefu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um að þremur bifhjólum hefði verið stolið í Vesturbæ Reykjavíkur, allt frá sama heimilinu. Innlent 5. janúar 2021 06:28
Meintur áhugakylfingur stelur söfnunarbauki úr Melabúðinni Pétur Alan Guðmundsson kaupmaður er furðu lostinn eftir að maður nokkur gerði sér lítið fyrir og hafði á brott með sér söfnunarbauk Hringsins sem hafði verið komið fyrir í Melabúðinni. Innlent 4. janúar 2021 10:16
Varað við mikilli hálku á höfuðborgarsvæðinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við mikilli hálku á götum og gangstéttum borgarinnar í dagbók sinni í morgun. Innlent 4. janúar 2021 06:22
Vöknuðu við mikinn hvell og glerbrot um öll gólf Haukur Már Haraldsson, íbúi í Víkurhverfi í Grafarvogi og eiginkona hans, vöknuðu upp af værum svefni í nótt við mikinn hvell. Einhver hafði kastað grjóthnullungi í gegn um rúðuna í stofuglugganum á íbúð þeirra sem er á annarri hæð. Innlent 3. janúar 2021 14:31
Velti bíl og flúði af vettvangi Ökumaður bíls sem valt í Hafnarfirði flúði af vettvangi en var handtekinn skömmu síðar. Innlent 3. janúar 2021 13:25
Mikið um ónæði vegna flugeldasprenginga Lögregla sinnti alls 84 verkefnum á klukkutímunum tólf á milli klukkan sautján síðdegis í gær þangað til klukkan fimm í nótt. Þar af voru 25 útköll vegna tilkynninga um hávaða og ónæði vegna flugeldasprenginga á öllu höfuðborgarsvæðinu. Innlent 3. janúar 2021 07:20
Handtekinn grunaður um stórfellda líkamsárás Einn var handtekinn í gærkvöld grunaður um stórfellda líkamsárás í miðborg Reykjavíkur. Innlent 2. janúar 2021 07:22
Sprengdu flugelda í gufubaðsaðstöðu sundlaugar í Kópavogi Einhver eignaspjöll urðu í sundlaug í Kópavogi í nótt en búið var að sprengja flugelda í gufubaðsaðstöðu laugarinnar. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki er ljóst í hvaða sundlaug flugeldasprengingarnar fóru fram. Innlent 1. janúar 2021 18:58
Reyndi að brjótast inn hjá Gilbert úrsmið Tilraun var gerð til að brjótast inn í verslun Gilberts úrsmiðs á Laugaveginum á mánudagsmorgunn. Þjófnum gekk ekki betur en svo að hann náði að brjóta rúðuna, sem er skotheld, að hluta áður en þjófavarnakerfið fór í gang og hrakti hann á brott. Innlent 1. janúar 2021 18:04
Eftirlýstur maður gaf sig fram á nýársnótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast þessa liðna nýársnótt ef marka má dagbókarfærslu hennar sem send var fjölmiðlum. Talsvert var um ölvunarakstur og hávaðakvartanir, samkvæmt lögreglu. Innlent 1. janúar 2021 08:34
Skotglaðir trufluðu í öllum hverfum Mjög bar á tilkynningum um hávaða eða ónæði vegna flugeldasprenginga í öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins í gærkvöldi og í nótt, að því er segir í dagbók lögreglu. Hið sama var uppi á teningnum í fyrrinótt. Innlent 31. desember 2020 08:22
Fara yfir upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna sem mættu í Ásmundarsal Hafin er formleg rannsókn lögreglu á höfuðborgarsvæðinu á viðburði í Ásmundarsal á Þorláksmessukvöld, hvar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra var viðstaddur. Lögregla mun m.a. fara yfir upptökur úr búkmyndavélum lögreglumanna sem mættu á staðinn. Innlent 30. desember 2020 11:56
Hávaði og ónæði vegna flugelda um allt höfuðborgarsvæðið Mikið var um tilkynningar til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt vegna hávaða eða ónæði vegna flugelda sprenginga. Bárust tilkynningar úr öllum hverfum höfuðborgarsvæðisins að því er segir í dagbók lögreglu. Innlent 30. desember 2020 06:33
Vistaður í fangageymslu eftir líkamsárás Líkamsárás átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur á níunda tímanum í gær. Einn var handtekinn grunaður um líkamsárás og hótanir og var hann vistaður í fangageymslu lögreglu fyrir rannsókn málsins. Sá sem varð fyrir árásinni fór á bráðadeild til aðhlynningar, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki vitað um áverka. Innlent 27. desember 2020 07:29