Hitamál - Saga loftslagsins Ég er annar af ritstjórum loftslag.is ásamt Sveini Atla Gunnarssyni, en heimasíðan var stofnuð árið 2009 og hefur í gegnum tíðina safnað saman helstu mýtum um loftslagsbreytingar, þ.e. þær breytingar sem verða vegna aukins styrks gróðurhúsalofttegunda (mest koldíoxíð - CO2) af mannavöldum. Skoðun 28.12.2025 10:01
Keyptu aðstoð vegna leiðréttingar landsframlags og hringferðar ráðherra Kostnaður umhverfis- orku, og loftslagsráðuneytisins vegna kaupa á þjónustu frá almannatenglum og auglýsingastofum hefur numið hátt í einni milljón króna á þessu ári, sem er um fjögur hundruð þúsund krónum minna en ráðuneytið varði í slíka þjónustu í fyrra. Ráðuneytið naut meðal annars aðstoðar slíkra sérfræðinga í tengslum við hringferð ráðherra um orkumál í fyrra og vegna leiðréttingar á landsákvörðuðu framlagi Íslands gagnvart Parísarsamningnum. Innlent 27.12.2025 15:43
„Fara þarf í raunverulegar aðgerðir“ „Fara þarf í raunverulegar aðgerðir, sem skila raunverulegum árangri í loftlagsmálum”, segir formaður Bændasamtakanna og bætir við að það hafi verið jákvæð skref í vetur þegar veittur var fjárfestingastuðningur til ylræktarbænda til að draga úr orkukostnaði. Innlent 27.12.2025 13:05
Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Kanadíska sprotafyrirtækið Evio hefur kynnt þróun tvinn-rafmagnsflugvélar, Evio 810, til notkunar á styttri flugleiðum í flokki 50 til 100 sæta flugvéla. Stefnt er á fyrsta reynsluflug árið 2029 og að hún komist í reglulegan flugrekstur í byrjun næsta áratugar. Erlent 14. desember 2025 07:17
Falskur finnst mér tónninn Um daginn ritaði ég nokkur orð, undir titlinum “Skamm! (-sýni)”. Fékk í framhaldinu spurningar um skógrækt og ritaði því snöggvast nokkur orð til viðbótar. Skoðun 13. desember 2025 08:16
Er þín fasteign útsett fyrir loftslagsbreytingum og náttúruvá? Íslenskum bönkum ber skylda til að meta raunlæga áhættu á fasteignasafni sínu, bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði, og upplýsa um möguleg áhrif slíkrar áhættu á eignasafnið. Skoðun 9. desember 2025 14:33
Skamm! (-sýni) Á gróðursnauðu Íslandi er lykilatriði að binda og bæta sem hraðast jarðveginn sem annars ýmist fýkur á haf út, eða endar í lungum okkar. Einnig er mikið rætt um bindingu kolefnis, t.d. í formi endingargóðs plöntumassa. Skiptir þar mestu að binda sem mest af kolefni hratt, samhliða því að draga úr losun þess. Okkar stórkostlega en fátæka flóra hentar því miður ekki alltaf best til verksins. Skoðun 8. desember 2025 16:32
Önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga Í nóvember mældist önnur mesta rýrnun Hofsjökuls frá upphafi mælinga. Rúmmál jökulsins hefur á 38 árum rýrnað úr um 200 rúmkílómetrum í um 165 rúmkílómetra, sem jafngildir um 17 prósenta minnkun. Flatarmálið hefur dregist saman um 15 prósent á sama tímabili og er nú komið niður fyrir 790 km2. Innlent 5. desember 2025 12:19
Allir í limbói vegna fyrirhugaðra breytinga á vörugjaldi Forstjóri Brimborgar segir landsmenn í ákveðnu limbói vegna boðaðra breytinga á vörugjöldum bíla þar sem engin formleg niðurstaða liggi fyrir. Gríðarleg aukning var í nýskráðum bílum í nóvember og nýskráning rafbíla fjórfaldaðist. Hann telur að á næsta ári verði áttatíu prósent nýskráðra bíla rafbílar. Viðskipti innlent 1. desember 2025 20:17
Rekja aukna bílasölu til komandi vörugjaldahækkunar Óvenjumargir fólksbílar voru nýskráðir í nóvember og tengir Bílgreinasamband Íslands það við boðaða hækkun á vörugjaldi á jarðefnaeldsneytisknúnar bifreiðar. Breytingin muni líklega auka hlutfall hreinorkubíla á kostnað jarðefnaeldsneytisknúinna. Viðskipti innlent 1. desember 2025 14:22
Orkuöryggi sagt standa tæpt gangi ný orkuspá eftir Tvísýnt er um hvort framboð á raforku mæti eftirspurn á þessum áratug ef ný orkuspá stjórnvalda gengur eftir. Orkuskipti ganga hægar en áður var gert ráð fyrir, mikil óvissa er um notkun stórnotenda og verulegri aukningu er spáð í notkun jarðvarma. Viðskipti 1. desember 2025 11:20
Norskt fyrirtæki veðjar á rafknúna sjóflugvél Norskt sprotafyrirtæki, Elfly Group, er að þróa tveggja hreyfla sjóflugvél sem verður eingöngu rafknúin. Flugvélinni er ætlað að bera níu farþega eða eitt tonn af frakt. Hún á að geta lent bæði á sjó og á flugvöllum á landi og vera einstaklega hljóðlát. Erlent 30. nóvember 2025 10:00
„Lægsti samnefnari“ sagður niðurstaðan á COP30 Niðurstöðu COP30-loftslagsráðstefnunnar í Brasilíu er lýst sem „lægsta möguleg samnefnara“. Óljós markmið um stóraukin framlög til aðlögunar þróunarríkja að loftslagsbreytingum og útfösu og hert losunarmarkmið er að finna í ályktun sem opnar í fyrsta skipti á möguleikann að hlýnun fari tímabundið yfir viðmið Parísarsamkomulagsins. Erlent 24. nóvember 2025 13:22
„Útvötnuð“ loftslagsályktun samþykkt eftir harðar deilur Samþykkt náðist um lokaályktun loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu eftir mikla málamiðlun. Orðalag ályktunarinnar er umdeild enda er þar hvergi kveðið á um að draga þurfi úr notkun jarðefnaeldsneytis. Erlent 23. nóvember 2025 16:50
Hafa áhyggjur af fjármögnun loftslagsaðgerða stjórnvalda Nauðsynlegt er að ráðast í ítarlega greiningu á áhrifum loftslagsaðgerða stjórnvalda til þess að hægt sé að forgangsraða þeim, að mati verkefnisstjórnar stjórnvalda sem lýsir áhyggjum af fjármögnun aðgerðanna. Forgangsaðgerðir ríkisstjórnarinnar eiga að draga úr losun um ríflega hálfa milljón tonna koltvísýrings næsta hálfa áratuginn. Innlent 21. nóvember 2025 14:09
Ísland sagt meðal ríkja sem mótmæla útvatnaðri ályktun COP30 Ágreiningur ríkir nú um orðalag lokaályktunar loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu þar sem svo virðist að hvergi verði minnst á nauðsyn þess að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis. Tæplega þrjátíu ríki mótmæltu áformum gestgjafanna harðlega í gærkvöldi, Ísland þeirra á meðal. Erlent 21. nóvember 2025 09:04
Hvernig geta fyrirtæki orðið sjálfbær? Sjálfbærni er einn af þeim þáttum sem Creditinfo horfir til þegar metið er hvaða fyrirtæki fá vottunina Framúrskarandi fyrirtæki. En hvað felst í sjálfbærni og hvað geta fyrirtæki gert til að verða sjálfbærari í dag en í gær? Framúrskarandi fyrirtæki 21. nóvember 2025 08:31
Skildi vegabréfið eftir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, var að hefja erindi á COP30 ráðstefnunni þegar eldur brast út. Í flýti við að komast út skildi sendinefnd Íslands eftir vegabréf og allan farangurinn. Tvísýnt var hvort þau næðu flugferðinni heim á miðnætti, og þá með allan farangurinn. Að lokum fengu þau að sækja farangurinn sem varð eftir og vegabréf ráðherra. Innlent 20. nóvember 2025 20:41
„Ég hélt það væri skotárás í gangi“ Eldur kviknaði á loftslagsráðstefnunni COP30 í Brasilíu en enginn hlaut varanlegan skaða af. Forseti Ungra umhverfissinna var viðstödd ráðstefnuna þegar eldurinn kviknaði en hélt fyrst að um skotárás væri að ræða. Allir ráðstefnugestir eru óhultir en eldsupptökin liggja ekki fyrir. Innlent 20. nóvember 2025 20:19
Feta einstigi milli metnaðar og raunsæis í loftslagsmarkmiði Markmið íslenskra stjórnvalda um samdrátt í losun er krefjandi en þau reyna að finna jafnvægi á milli raunsæis og metnaðar, að sögn loftslagsráðherra. Samningamenn Íslands á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna hafi farið að heiman með þau skilaboð að krefjast afgerandi samdráttar í losun. Innlent 20. nóvember 2025 08:02
RAX hlýtur verðlaun Konunglega ljósmyndafélagsins Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson, betur þekktur sem RAX, hlaut verðlaun Konunglega ljósmyndafélagsins 2025 í flokkunum Umhverfisáhrif. Dómnefndin telja myndir hans sýna einstök tengsl íbúa á norðurslóðum og umhverfis þeirra. Lífið 19. nóvember 2025 16:15
Vestfirðir til þjónustu reiðubúnir Atvinnustefna stjórnvalda er nú til kynningar en markmiðið er að tryggja kröftugan vöxt útflutnings sem byggir á atvinnugreinum með háa framleiðni og sjálfbæra nýtingu auðlinda. Þannig verður hægt að auka útflutningstekjur, stykja áfallaþol hagkerfisins og verja lífskjör þjóðarinnar. Skoðun 18. nóvember 2025 19:01
Eðlisfræði - ekki pólitík Við stöndum nú á því augnabliki í mannkynssögunni þar sem ákvarðanir okkar næstu árin munu ákvarða hvernig heimur barna okkar og barnabarna mun líta út. Vísindin eru óumdeilanleg. Tíminn til að halda 1,5 gráðu markinu á lífi er að renna út og það miklu hraðar en flestir gera sér grein fyrir. Skoðun 18. nóvember 2025 08:02
„Loftslagsbanki“ veitir Veitum fimmtán milljarða króna lán Fjárfestingarbanki Evrópu, sem kallaður er loftslagsbanki Evrópusambandsins, og Orkuveitan hafa undirritað lánasamning að fjárhæð 100 milljónir evra, ádráttarbært til næstu tveggja ára. Fjármagnið mun nýtast til uppbyggingar innviða hjá dótturfélagi Orkuveitunnar, Veitum. 100 milljónir evra eru um 14,8 milljarðar króna. Viðskipti innlent 17. nóvember 2025 12:00