

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Luca Doncic kemur vel undan sumri
Luka Doncic hefur verið við stífar æfingar undanfarið með einkaþjálfara undanfarið en hann undbýr sig fyrir landsliðsverkefni með Slóveníu. Fram undan eru sjö æfingaleikir áður en liðið mætir til leiks á HM.

NBA lið að hluta til til sölu fyrir litlar 8 milljónir dollara
Það er dýrt að kaupa lið í NBA deildinni. Síðasta lið til að skipta um eigendur var Phoenix Suns en kaupverðið var 4 milljarðar dollara. En nýlegar lagabreytingar hjá deildinni hafa nú gert áhugasömum smákaupendum auðveldara fyrir.

Steph Curry fór holu í höggi á stjörnugolfmóti
Körfuboltamaðurinn Steph Curry sýndi það og sannaði í gær að hann er ekki bara góð skytta á körfuboltavellinum.

Ísland leikur um ellefta sætið eftir tap gegn Ítölum
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri mátti þola 12 stiga tap gegn Ítalíu á Evrópumótinu í körfubolta í dag, 98-86. Leikurinn var liður í umspili um 9.-16. sæti A-deildar Evrópumótsins og nú er ljóst að Ísland mun leika um 11. sætið.

Urban Oman til Keflavíkur
Keflvíkingar eru byrjaðir að safna vopnum fyrir komandi tímabil, en þeir hafa samið við slóvenska framherjann Urban Oman um að leika með liðinu í vetur í Subway-deild karla.

James Harden staðráðinn í að hefja leik með Clippers í haust
Sagan endalausa um möguleg félagaskipti James Harden heldur áfram en hann er nú sagður staðráðinn í að hefja komandi tímabil sem leikmaður Los Angeles Clippers.

San Antonio munu fara sér að engu óðslega með Wembanyama og mínúturnar hans í vetur
San Antonio Spurs liggur ekkert á að gera hinn 19 ára Victor Wembanyama að fullmótaðari NBA stjörnu. Hann mun væntanlega hvíla einn leik af tveimur í vetur þegar liðið á leiki tvö kvöld í röð.

Hitti úr 25 af 27 þriggja stiga skotum sínum og sló metið | myndskeið
Bandaríska körfuboltakonan Sabrina Ionescu sló í gærkvöldi metið í þriggja stiga keppni fyrir stjörnuleikinn bæði í WNBA og NBA en hún setti þá niður 25 af 27 skotum sínum fyrir utan þriggja stiga línuna.

Ísland á tvo stráka meðal þeirra sex stigahæstu í Evrópumótinu
Tveir leikmenn íslenska tuttugu ára landsliðsins eru meðal sex stigahæstu leikmanna Evrópukeppni U20 liða sem stendur nú yfir í Heraklion á Krít.

Frábær þriðji leikhluti skilaði stórsigri
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 20 ára og yngri vann öruggan 26 stiga sigur er liðið mætti Svartfjallalandi í umspili um 9.-16. sæti A-deildar Evrópumótsins í körfubolta í dag, 99-73.

Milka: Ég yrði hvort sem er alltaf hataður af einhverjum
Domynikas Milka skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Njarðvík og mun því færa sig á milli erkifjendanna í Reykjanesbæ. Milka hefur spilað með nágrönnunum í Keflavík undanfarin fjögur tímabil.

Staðfestir að hann mæti til leiks á næsta tímabili
LeBron James staðfesti í nótt að hann ætlar að spila í NBA-deildinni á næsta tímabili. James hafði áður ýjað að því að hann myndi leggja skóna á hilluna.

Stefnir á endurkomu eftir baráttu við þunglyndi
Hinn 31 árs gamli Dion Waiters stefnir á endurkomu í NBA-deildina en hann hefur ekki spilað í henni síðan hann var hluti af meistaraliði Los Angeles Lakers sumarið 2020. Hann hefur glímt við þunglyndi og segir mikilvægt fyrir fólk að tala við einhvern.

Milka óvænt til Njarðvíkur
Eftir þrjú ár með Keflavík í Subway-deild karla í körfubolta hefur miðherjinn Domynikas Mikla ákveðið að breyta til og semja við nágrannalið Njarðvíkur. Frá þessu greindi Njarðvík nú rétt í þessu.

Skelfilegur þriðji leikhluti varð Íslandi að falli
Ísland er úr leik á Evrópumóti karla skipað leikmönnum 20 ára og yngri í körfubolta Liðið beið lægri hlut gegn heimamönnum í Grikklandi í 16-liða úrslitum, lokatölur 83-75.

NBA fór ekki alveg alla leið í nýju flopp-reglunni
NBA deildin í körfubolta hefur nú samþykkt tvær reglubreytingar fyrir komandi keppnistímabil.

Helgi Freyr tekur við kvennaliði Tindastóls
Helgi Freyr Margeirsson hjálpaði karlaliði Tindastóls að vinna Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn á síðasta tímabili og nú hefur hann fengið aðalþjálfarastarf hjá félaginu.

Evrópureisa Söru Rúnar heldur áfram: England, Rúmenía, Ítalía og núna Spánn
Íslenska landsliðskonan Sara Rún Hinriksdóttir er búin að finna sér nýtt lið til að spila fyrir á næstu leiktíð.

„Þeir ætla mér leiðtogahlutverk og ég á að vera aðalleikstjórnandi“
Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, segist vera að taka stærsta skrefið á ferlinum með því að ganga í raðir PAOK í Grikklandi.

Tilbúnir að bíða í marga mánuði með að ákveða framtíð Lillard
NBA stórstjarnan Damian Lillard óskaði eftir því að vera skipt frá Portland Trail Blazers á dögunum og vill hann komast til Miami Heat.

Pressan kom ekki frá Pavel: Tindastóll fékk loksins tækifæri og greip það
Pavel Ermolinskij, þjálfari Íslandsmeistara Tindastóls, fagnar því að félagið sé tilbúið að stíga stórt skref og taka þátt í Evrópukeppni næsta vetur.

Frakkar fóru illa með íslenska liðið
Frakkland sýndi Íslandi í tvo heimana þegar liðin mættust í riðlakeppni Evrópumótsins í körfubolta karla skipuðu leikmönnum 20 ára og yngri á Krít í Grikklandi í dag.

Fyrsta troðsla Griner eftir fangelsisvistina í Rússlandi
Brittney Griner er farin að láta til sín taka í WNBA-deildinni í körfubolta eftir að þurfta að dúa í næstum því tíu mánuði í rússnesku fangelsi.

Allt annað að sjá Wembanyama í leik númer tvö
Victor Wembanyama leit ekki út eins og undrabarn í fyrsta leik sínum í Sumardeildinni en það var allt annað upp á teningnum í nótt.

74 ára og fékk meira en tíu milljarða króna samning
Gregg Popovich er ekkert að fara að hætta á næstunni þótt að hann nálgist áttræðisaldurinn.

Elvar Már til Grikklands
Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur samið við PAOK í Grikklandi. Hann kemur til liðsins frá Rytas Vilnius í Litáen.

Missti tyggjóið á völlinn en tók það upp og stakk því aftur upp í sig
Körfuboltakonan Sami Whitcomb trúir greinilega á fimm sekúndna regluna því það sannaði hún í leik með Seattle Storm í WNBA deildinni um helgina.

Tindastóll tekur þátt í Evrópubikar FIBA
Íslandsmeistarar Tindastóls í körfuknattleik hafa ákveðið að taka þátt í Evrópukeppni á næsta tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu sem körfuknattleiksdeild Tindastóls sendi frá sér.

Dæmið snerist við hjá strákunum
Íslenska landsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri tapaði í dag með tveimur stigum gegn Þýskalandi í A-deild Evrópumótsins sem fram fer á Krít.

Franska undrið byrjar ekki vel: Aðeins 15 prósent skotnýting
Victor Wembanyama skoraði níu stig í sínum fyrsta leik fyrir San Antonio Spurs í sumardeild NBA-deildarinnar í körfubolta. Hitti hann aðeins úr 15 prósent skota sinna og átti vægast sagt erfitt uppdráttar.