

Körfubolti
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Endurkoma Doncic til Madrid í beinni á Stöð 2 Sport í kvöld
Það styttist í NBA deildina í körfubolta og í kvöld mun Dallas Mavericks liðið hita upp fyrir tímabilið með skemmtilegum hætti.

Bjó til myndir með liðum Subway deildarinnar með hjálp gervigreindar
Subway deild karla í körfubolta er farin af stað en fyrstu umferðinni lauk á Álftanesi á sunnudagskvöldið. Körfuboltaáhugamaðurinn Gunnar Freyr Steinsson hitaði upp fyrir komandi tímabil með því að fá gervigreindina með sér í lið.

Finnst skrítið að hún sé enn á Íslandi: „Bleikur fíll sem enginn vill tala um“
Njarðvíkurkonur hafa spilað fyrstu leiki sína í Subway deild kvenna án þess að hafa bandarískan leikmann í sínu liði. Staðan á bandaríska leikmanni Njarðvíkurliðsins var til umræðu í Körfuboltakvöldi kvenna í gær.

Skaut á Brady: „Það var mikið að þú drullaðir þér á leik“
Leikmaður Las Vegas Aces gat ekki stillt sig um að skjóta á Tom Brady þegar hann mætti á leik liðsins í úrslitum WNBA.

Kolbrún María sló met Helenu Sverris: Yngst til að skora 31 stig
Stjörnustúlkan Kolbrún María Ármannsdóttir varð um helgina yngsti leikmaðurinn í efstu deild kvenna í körfubolta til að skora 31 stig eða meira í einum og sama leiknum.

Segir að Stólarnir hljóti að hafa áhyggjur að missa Drungilas á skelfilegum tíma
Olnbogaskot Tindastólsmannsins Adomas Drungilas í æfingarleik á móti Stjörnunni var til umræðu í Subway Körfuboltakvöldi en afleiðingin af því var að Stjörnumaðurinn Kevin Kone lá á eftir tvíkjálkabrotinn.

Framlengingin: Á að sameina Keflavík og Njarðvík?
Strákarnir í Körfuboltakvöldi reyndu að svara stóru spurningunum í Framlengingunni í þætti föstudagsins. Þar spurði Stefán Árni Pálsson, stjórnandi þáttarins, meðal annars um það hvort sameina ætti Keflavík og Njarðvík.

„Get nú ekki sagt það að maður sé að verða ríkur“
Stefán Árni Pálsson, stjórnandi Körfuboltakvölds, fór og hitti körfuboltadómarann Davíð Tómas Tómasson, Dabba T, í síðasta þætti og ræddi um nýhafið tímabil í Subway-deild karla.

Öruggt hjá Keflavík og Þór fór illa með Snæfellinga í nýliðaslagnum
Keflavík og Þór Akureyri unnu örugga sigra í leikjum kvöldsins í Subway-deild kvenna í körfubolta. Keflvíkingar unnu 30 stiga útisigur gegn Breiðablik og Þórsarar unnu 39 stiga risasigur gegn Snæfelli.

Pavel: Umhverfið hjálpaði okkur
Pavel Ermolinskij, þjálfari Tindastóls, var afar ánægður með sigurinn og þá sérstaklega varnarleikinn.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Valur 91-83 | Íslandsmeistararnir tapa öðrum leiknum í röð
Íslandsmeistarar Vals töpuðu öðrum leik sínum í röð þegar þær mættu til Grindavíkur í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi framan af en Grindvíkingar tóku forystuna snemma í seinni hálfleiknum og sigldu þriðja sigri sínum örugglega heim að endingu.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Álftanes - Tindastóll 65-70 | Meistararnir mörðu nýliðana
Íslandsmeistarar Tindastóls unnu nauman fimm stiga sigur er liðið heimsótti Álftanes í fyrstu umferð Subway-deildar karla í körfubolta í kvöld. Lokatölur 65-70.

„Sjálfstraust, getur ekki keypt eða fundið það, ef þú ert með það þá ert með það"
Ragnar Ágúst Nathanaelsson átti góðan leik þegar Hamar fékk Keflavík í heimsókn í 1. umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Keflavík vann á endanum leikinn en lenti svo sannarlega í vandræðum með nýliðana. Frammistaða Ragnars var til umræðu í Körfuboltakvöldi.

Tryggvi Snær frábær í sigri Bilbao
Tryggvi Snær Hlinason lét heldur betur til sín taka undir körfunni í sigri Bilbao á Murcia í spænsku úrvalsdeild karla í körfubolta.

Varin skot talin flottustu tilþrif 1. umferðar Subway-deildar karla
„Tilþrifin“ voru á sínum stað í síðasta þætti Körfuboltakvölds. Alls voru tíu atvik valin, hveert öðru glæsilegra.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Njarðvík 49-72 | Njarðvík burstaði Hauka að Ásvöllum
Njarðvík vann afar sannfærandi 72-49 sigur þegar liðið sótti Hauka heim í Ólafssal á Ásvelli í þriðju umferð Subway-deildar kvenna í dag.

„Hrikalega ánægður að koma hérna í uppáhalds húsið mitt og taka tvö stig“
Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur í Subway-deild kvenna, var gríðarlega sáttur með frammistöðu sinna kvenna sem lögðu Hauka nokkuð örugglega í Ólafssal í dag en lokatölur leiksins urðu 49-72.

Orri þurfti að sætta sig við tap
Orri Gunnarsson, landsliðsmaður í körfubolta, skoraði sjö stig fyrir lið sitt Swans Gmunden þegar liðið laut í lægra haldi fyrir BK IMMOunited Dukes í austurrísku efstu deildinni í kvöld.

Stjörnukonur sóttu sinn fyrsta sigur
Stjarnan vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu er liðið tók á móti Fjölni í Subway-deild kvenna í körfubolta í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - Valur 81-96 | Valur kom til baka og vann í Þorlákshöfn
Valur hafði betur gegn Þór Þorlákshöfn í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld þökk sé endurkomu í þriðja leikhluta.

KR vann fyrsta leik sinn í 1.deildinni
KR nældi í tvö stig í sínum fyrsta leik í 1.deildinni í körfubolta í kvöld er liðið lagði Skallagrím í Borgarnesi

„Væri eitthvað skrýtið ef ég væri í skýjunum einhverra hluta vegna“
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, gat leyft sér að brosa eftir góðan 15 stiga sigur gegn Þór Þorlákshöfn í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Valsliðið lenti 18 stigum undir í öðrum leikhluta, en snéri taflinu við í seinni hálfleik.

Hipsumhaps og Dikta sameinast í nýju stuðningsmannalagi Álftnesinga
Það er allt fyrst á Álftanesi í ár og þar á meðal er nýtt lag sem varð til eftir samvinnu tveggja manna úr vinsælum hljómsveitum á Íslandi.

Golden State Warriors fær kvennalið samþykkt í WNBA
Golden State Warriors mun tefla fram liði í WNBA-deildinni frá og með árinu 2025. WNBA hefur samþykkt umsókn Warriors og ákveðið þar með að fjölga liðum í deildinni.

Hörðustu Njarðvíkingar horfa til sameiningar við Keflavík
Keflavík og Njarðvík eiga tvö af sigursælustu körfuboltafélögum landsins og viðureignir liðanna eru tveir af hápunktum hvers tímabils. Þess vegna vekja vangaveltur frá fyrrum formanni körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur athygli.

„Áttum ekki sérstakan leik en virði stigin“
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Njarðvíkur, var ánægður með stigin tvö en var svekktur með frammistöðu liðsins eftir þriggja stiga sigur gegn Stjörnunni.

Umfjöllun og viðtöl: Grindavík - Höttur 87 - 104 | Frábær sigur gestanna
Höttur gerði sér lítið fyrir og lagði mikið breytt lið Grindavíkur í 1. umferð Subway-deildar karla í körfubolta. Gestirnir voru einfaldlega miklu betri en heimamenn og virtust hafa leikinn í hendi sér svo til allan tímann.

„Við bara vorum sjálfum okkur verstir“
Grindvíkingar fóru flatt í fyrsta leik haustsins í Subway-deild karla í kvöld þegar liðið tapaði á heimavelli gegn Hetti 87-104. Heimamenn mættu fáliðaðir til leiks en Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari liðsins, sagði að hans menn hefðu í raun grafið sína eigin gröf að þessu sinni.

Ívar Ásgrímsson: Töpuðum boltanum alltof oft
Ívar Ásgrímsson, þjálfari Breiðabliks, var að vonum svekktur eftir stórt taps síns liðs gegn Haukum í Subway deild karla í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Stjarnan 91-88 | Njarðvík hafði betur í hörkuleik
Njarðvík hafði betur gegn Stjörnunni í 1. umferð Subway-deildar karla. Leikurinn var í járnum og þrátt fyrir að Njarðvík hafi verið töluvert betri í fjórða leikhluta fékk Arnþór Freyr Guðmundsson tækifæri til að jafna en klikkaði. Leikurinn endaði með sigri Njarðvíkur 91-88.