Berghildur Erla, Sunna Karen og Kompás tilnefnd til Blaðamannaverðlauna Umfjallanir fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um barnaheimilið á Hjalteyri, lífslokameðferðir af hálfu læknis á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og undirheima Íslands þar sem lýst er baráttu við skatt- og bótasvik eru allar tilnefndar til blaðamannaverðlauna Blaðamannafélags Íslands í ár. Innlent 25. mars 2022 08:55
Oxy-notkun Íslendinga eykst og fimmta hver kona notar ópíóíða Ávísunum ópíóíða hefur fjölgað milli síðustu tveggja ára, í fyrsta sinn síðan árið 2017. Fleiri leystu út lyfjaávísanir á ópíóíða í fyrra heldur en árið 2020 og meirihluti leysti út oftar en einu sinni. Nýjasti Talnabrunnur Landlæknis er tileinkaður notkun ópíóíða. Innlent 21. mars 2022 14:33
Sárt að vera útskúfað af dóttur sinni Örn Svavarsson, sem lengstum hefur verið kenndur við Heilsuhúsið, fordæmir þann heilaþvott sem hann segir viðgangast í Vottum Jehóva og þá útskúfun sem tíðkast í söfnuðinum sem Örn segir grimma aðferð sem ætti ekki að líðast í nútímasamfélagi. Dóttir hans er í Vottunum og hefur lokað á öll samskipti við föður sinn. Innlent 19. mars 2022 09:37
Mikið inngrip að svipta trúfélag sóknargjöldum Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar-og menntamálanefndar Alþingis segir útskúfunarmál í söfnuði Votta Jehóva, sem gerð voru skil í Kompás í gær, vekja þingheim til umhugsunar. Innlent 15. mars 2022 13:30
Safnaðarmeðlimum Smárakirkju hefur fækkað um þriðjung Forstöðukona Smárakirkju segir áskanir um rasisma og fordóma innan safnaðarins eiga ekki við nein rök að styðjast. Hún hefði sjálf viljað vera svört og í kirkjunni hafi starfað þeldökkur maður. Það hefur fækkað um þriðjung í söfnuðinum síðan 2014. Innlent 14. mars 2022 18:38
Sigurbjörg í Smárakirkju hefði kosið að vera svört Sigurbjörg Gunnarsdóttir, forstöðumaður Smárakirkju, hafnar því að kynþáttafordómar eða fordómar gagnvart hinsegin fólki þrífist innan safnaðarins. Hún segist hefði kosið sjálf að vera svört, eins og Whitney Houston, og segir svart fólk líka eldast betur. Þetta kom fram í guðsþjónustu í Smárakirkju í gær. Innlent 14. mars 2022 13:54
Útskúfað úr ríki Guðs og standa ein eftir Ung kona sem var rekin úr söfnuði Votta Jehóva, hefur ekki fengið að hitta fjölskylduna sína í átta ár. Fyrrverandi meðlimir Vottanna lýsa gífurlegu andlegu ofbeldi eftir útskúfun, harðræði gegn börnum í söfnuðinum og hvernig það skorti fagleg úrræði og aðstoð eftir að hafa hætt í sértrúarsöfnuði. Þær kalla eftir því að ofbeldið, sem hefur verið látið viðgangast áratugum saman, hætti og að ríkið stígi inn í. Innlent 14. mars 2022 07:00
Engin úrræði fyrir þolendur ofbeldis og útskúfunar í ríkisstyrktum trúfélögum Engin fagleg úrræði eru til staðar fyrir fólk sem hættir í sértrúarsöfnuðum á Íslandi og segja margir fyrrverandi meðlimir að mikil þörf sé á slíku. Þingmaður segir skorta eftirlit með starfsemi trúarhreyfinga og að sóknargjöld séu barn síns tíma. Fyrrverandi meðlimir Votta Jehóva lýsa andlegu ofbeldi eftir útskúfun og harðræði gegn börnum í söfnuðinum. Innlent 13. mars 2022 19:31
Vísbendingar um undanþágur fyrir of ungar brúðir vegna trúar Þingmaður Pírata hefur fengið ábendingar um að beiðnir um undanþágur til dómsmálaráðuneytisins vegna of lágs giftingaraldurs hafi komið til vegna trúarlegra ástæðna. Margir kristnir söfnuðir líta á kynlíf fyrir hjónaband sem synd og því giftast safnaðarmeðlimir oft nokkuð ungir. Von er á skýrslu um undanþágurnar á næstu vikum. Innlent 9. mars 2022 19:01
Smárakirkja hafnar því að vera sértrúarsöfnuður Stjórn Smárakirkju, áður Krossins, segir að unglingaleiðtogi sem beitti viðmælanda Kompáss kynferðisofbeldi á meðan hún var í kirkjunni hafi aðeins starfað hjá Smárakirkju í um þrjá mánuði. Honum hafi verið vísað úr þjónustu vegna úreltra viðhorfa og óeðlilegra stjórnunarhátta. Innlent 9. mars 2022 12:06
Leiðtogar Frelsisins enn virk í kristilegu starfi hér á landi Stofnendur sértrúarsafnaðarins Frelsisins, kristilegrar miðstöðvar, eru enn virk í kristilegu starfi hér á landi. Hvorugt hefur viljað svara fyrir það sem gekk á í söfnuðinum á þeim sex árum sem hann var starfandi. Pastorsfrúin fyrrverandi sat um tíma í fangelsi í Bandaríkjunum en hefur nú stofnað nýtt kristilegt starf á Íslandi. Innlent 9. mars 2022 11:50
Flúðu trúarofbeldi í sértrúarsöfnuðum á Íslandi Mörg þúsund Íslendingar hafa tilheyrt sértrúarsöfnuðum. Ein sterkustu einkenni hópanna eru strangt skipulag, mikið kennivald og félagslegt taumhald sem er vaktað af valdamiklum leiðtoga. Fólk sem hættir í söfnuðunum upplifir flest depurð, kvíða og áfallastreitu eftir dvölina og mörg hafa orðið fyrir alvarlegu ofbeldi. Í Kompás köfum við ofan í hugtakið trúarofbeldi og ræðum við fyrrverandi meðlimi sértrúarsafnaða. Innlent 8. mars 2022 07:01
Ofbeldi, kúgun og lygar þrífast vel í íslenskum sértrúarsöfnuðum Fólk sem hættir í sértrúarsöfnuðum upplifir flest depurð, kvíða og áfallastreitu eftir dvöl sína í söfnuðunum. Strangar reglur, andlegt og líkamlegt ofbeldi, fordómar og lygar eru rauður þráður í reynslu margra fyrrverandi meðlima. Fjallað verður um sértrúarsöfnuði á Íslandi í Kompás í kvöld. Innlent 7. mars 2022 17:38
Ánetjaðist ópíóíðum til að losna við krónískan sársaukann Kona sem var greind með endómetríósu um tvítugt hafði enga aðra leið til að lina sársaukann en að nota morfínlyf í fjölda ára. Hún notaði stóra skammta af Parkódín Forte, Tramól, Oxycontin og Ketógan, en þurfti á endanum að fara í meðferð til að hætta. Krónískir verkjasjúklingar þurfa oft að nota sterka ópíóíða árum saman í bið eftir aðgerð eða greiningu. Innlent 27. janúar 2022 18:35
Þingmenn krefjast viðbragða stjórnvalda vegna ofneyslu ópíóíða Þingmenn tveggja stjórnarandstöðuflokka ræddu á Alþingi hinn nýja ópíóíðafaraldur undir dagskrárliðnum störfum þingsins. Þingmaður Pírata segir notkun ávanabindandi lyfja á Íslandi svo mikla, eins og fram hefur komið í fréttum, að stjórnvöld verði að grípa til aðgerða strax. Þingmaður Flokks fólksins segir biðlista eftir aðgerðum einn aðal sökudólginn. Innlent 27. janúar 2022 11:36
3.000 Íslendingar fá ávísað mörgum ávanabindandi lyfjum á sama tíma Aldrei hafa fleiri Íslendingar leyst út jafn margar tegundir af ávanabindandi lyfjum heldur en í fyrra. Íslenskur almenningur notar sömuleiðis mun meira af tauga- og geðlyfjum en fólk annars staðar á Norðurlöndum. Innlent 25. janúar 2022 23:01
Íslendingar nota mest af hættulegum lyfjum Íslendingar nota langmest af tauga- og geðlyfjum af öllum Norðurlandaþjóðunum. Fíknigeðlæknir segir það séríslenskt, og mjög banvænt, að blanda saman mörgum ávanabindandi lyfjum en halda sig ekki við eitt kjörefni. Þetta gerir afeitrun og meðferð sömuleiðis flóknari og fólk fellur frekar vegna þess að freistingarnar eru út um allt. Innlent 25. janúar 2022 12:00
Nýr ópíóíðafaraldur: „Í stöðugri lífshættu nokkrum sinnum á dag” Tuttugu og eitt þúsund Íslendingar eru langtímanotendur ávanabindandi lyfja. Lyfjatengd andlát eru algengust á Íslandi af Norðurlöndunum og hafa þau aldrei verið fleiri en á fyrri helming síðasta árs. Innlent 25. janúar 2022 07:00
Margfalt fleiri nota Oxycontin nú en fyrir tíu árum Um 3.500 manns eru nú skráðir neytendur ópíóíðans Oxycontin. Þeir voru um 500 fyrir áratug. Lyfjatengd andlát hafa aldrei verið fleiri en á fyrri helmingi síðasta árs. Innlent 24. janúar 2022 18:45
Sunna Valgerðardóttir í Kompás Sunna Valgerðardóttir er nýr liðsmaður fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem hún mun sinna fréttamennsku á öllum miðlum. Sunna mun einnig hafa umsjón með fréttaskýringaþættinum Kompás ásamt Erlu Björgu Gunnarsdóttur, ritstjóra fréttastofu, og Kolbeini Tuma Daðasyni fréttastjóra. Innlent 3. desember 2021 15:53
Krefjast 12 milljóna króna af Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar Hin nítján ára gamla Margrét Þ. E. Einarsdóttir og faðir hennar Einar Björn Tómasson hafa stefnt Seltjarnarnesbæ vegna vanrækslu barnaverndar bæjarfélagsins í máli Margrétar. Margrét krefst þess að Seltjarnarnesbær greiði henni níu milljónir króna í miskabætur og Einar krefst þriggja milljóna króna í miskabætur. Innlent 22. júní 2021 12:57
„Ömurlegt að ár eftir ár geti þessi maður haldið ótrauður áfram“ Ung kona, sem lýsir því hvernig hún varð fyrir stöðugu áreiti eldri manns þegar hún var barn, segir kerfið taka þátt í ofbeldinu með því að líta í aðra átt. Sami maður fái að halda ótrauður áfram að áreita barnungar stúlkur. Innlent 14. júní 2021 19:16
Grunur um leka á viðkvæmum gögnum til sakborninga um afléttingu bankaleyndar og hleranir Grunur er um að gífurlega viðkvæmum gögnum, sem varða meðal annars afléttingu bankaleyndar og hleranir, hafi verið lekið til sakborninga sem grunaðir eru um að hafa stundað skipulagða glæpastarfsemi. Um er að ræða á annan tug dómsúrskurða sem lögregla, bankastarfsmenn og starfsmenn héraðsdóms höfðu aðgang að. Innlent 2. júní 2021 18:35
Hnepptu meintan stórsmyglara í varðhald með aðstoð spænsku lögreglunnar Lögreglan á Suðurnesjum telur sig vera með höfuðpaur í umfangsmiklu fíkniefnamáli í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var framseldur til Íslands frá Spáni í marsmánuði. Fjórir til viðbótar voru handteknir vegna málsins sem lögregla flokkar sem skipulagða glæpastarfsemi. Innlent 21. maí 2021 18:11
Þingmenn þungt hugsi eftir umfjöllun Kompáss: „Vægast sagt sláandi“ Þingmönnum var mörgum hverjum mikið niðri fyrir þegar skipulögð glæpastarfsemi var rædd á þinginu í dag. Upphafsmaður umræðunnar var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins sem telur ástæðu til að óttast að Íslendingar séu að missa tökin á skipulagðri glæpastarfsemi. Innlent 18. maí 2021 16:15
Áætla að þrír til sjö milljarðar tapist árlega vegna tryggingasvika Áætlað er að þrír til sjö milljarðar tapist árlega vegna tryggingasvika á Íslandi. Vísbendingar eru um að fólk líti tryggingasvik ekki eins alvarlegum augum og önnur fjármunabrot, samkvæmt nýlegri könnun samtaka fjármálafyrirtækja. Innlent 13. maí 2021 13:28
Segir að Íslendingurinn í Rauðagerðismálinu muni leita réttar síns „Þetta er enn eitt augljósa dæmið um hvernig lögreglan fer stundum offari í rannsóknum sínum og yfirlýsingum,“ segir Steinbergur Finnbogason lögmaður um rannsókn lögreglu á Rauðagerðismálinu. Innlent 11. maí 2021 16:56
Þrír karlar og ein kona ákærð í Rauðagerðismálinu Þrír karlar og ein kona hafa verið ákærð í Rauðagerðismálinu. Þetta herma heimildir fréttastofu en fjórmenningarnir eru allir ákærðir fyrir 221. grein almennra hegningarlaga sem fjallar um manndráp og á það að hafa verið unnið í samverknaði. Innlent 11. maí 2021 15:57
Reyna að fá sem mest úr hverri plöntu því sektað er fyrir fjölda en ekki magn Lögreglan hefur upprætt tæknivæddar kannabisverksmiðjur hér á landi þar sem markmiðið er að fá sem mest magn úr einni plöntu. Það er gert vegna þess að sektað er fyrir hverja plöntu, en ekki magn. Innlent 10. maí 2021 14:39
Glæpahópar flytji inn konur til að stunda vændi Lögregla telur að skipulagðir glæpahópar á Íslandi sendi konur til landsins í þeim eina tilgangi að stunda vændi. Viðskipti með fólk er eitt það arðbærasta í skipulagðri glæpastarfsemi að sögn lögreglufulltrúa. Innlent 6. maí 2021 16:06