Ingibjörgu Sólrúnu blandað í ævintýralegt samsæri Ingibjörg Sólrún Gísladóttir er lykilmaður í samsæri Sameinuðu þjóðanna um að stela kosningunum í Írak, ef marka má urmul samsæriskenninga á netinu. Hún hendir gaman að og segist dást að sköpunargleði höfundanna. Innlent 1. desember 2021 21:00
Börnum á stríðshrjáðum svæðum fjölgar hratt Rétt um 200 milljónir barna búa á stríðshrjáðum svæðum í þrettán þjóðríkjum. Heimsmarkmiðin 30. nóvember 2021 10:25
Banatilræði við forsætisráðherra Írak misheppnaðist Mustafa al-Kadhimi forsætisráðherra Íraks lifði af banatilræði sem gert var gegn honum á heimili hans í morgun. Sjö öryggisverðir slösuðust í árásinni en notast var við tvo vopnaða dróna í henni. Erlent 7. nóvember 2021 08:01
Trump sparkar í látinn mann Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fer ófögrum orðum um Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér sólarhring eftir andlát Powell. Sakar hann Powell um fjölda mistaka og að hafa ekki verið raunverulegur repúblikani. Erlent 19. október 2021 14:02
Colin Powell látinn vegna Covid-19 Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er látinn af völdum fylgikvilla Covid-19. Hann var 84 ára gamall. Erlent 18. október 2021 12:17
Gengið til kosninga eftir sleitulaus mótmæli Kjörstaðir voru opnaðir í Írak í morgun eftir háværa kröfu mótmælenda um að flýta þingkosningum vegna spillingar í landinu. Kosningar áttu að fara fram á næsta ári en eftir sleitulaus og ofbeldisfull fjöldamótmæli allt frá árinu 2019 var þeim flýtt um sex mánuði. Erlent 10. október 2021 16:46
Alþjóðakerfið eftir 11. september 2001: Bandaríkin grófu undan eigin stöðu með viðbrögðunum Strax að kvöldi 11. september 2001 voru George W. Bush og hans fólk viss um að Al-Qaeda stæði bak við árásirnar mannskæðu. Þjóðaröryggisráðið kom saman, en þar var einhugur um að Bandaríkin þyrftu að svara fyrir sig. Al-Qaeda og Osama Bin Laden hefðu skákað í skjóli Talibana í Afganistan í áraraðir en nú yrði gripið til aðgerða. Enginn greinarmunur yrði gerður á milli Al-Qaeda og Talibana og önnur ríki skyldu láta sér það að kenningu verða. Erlent 11. september 2021 11:11
Tuttugu og tvær fjölskyldur sameinaðar það sem af er ári Í dag er alþjóðadagur þeirra horfnu. Mestur fjöldi týndra einstaklinga er frá Afganistan, Írak, Sómalíu, Sýrlandi og Eritreu. Heimsmarkmiðin 31. ágúst 2021 13:01
Hópur afgansks flóttafólks fastur við landamæri Póllands og Hvíta-Rússlands Mannréttindadómstóll Evrópu hefur beðið pólsk og lettnesk stjórnvöld um að hjálpa flóttafólki, sem er fast á landamærunum, við að komast í öruggt skjól. Flestir flóttamannanna eru frá Afganistan og Írak. Erlent 25. ágúst 2021 22:57
Auka olíuframleiðslu til að lækka verð OPEC-ríkin og bandamenn þeirra undir forystu Rússlands hafa ákveðið að auka framleiðslu hráolíu um tvær milljónir tunna á dag fyrir árslok. Þetta er gert til að mæta aukinni eftirspurn þegar áhrif Covid-19 á hagkerfi heimsins dvína. Erlent 19. júlí 2021 07:38
Eldur á Covid-deild varð tugum að bana Fleiri en fimmtíu eru látin eftir að eldur blossaði upp inni á einangrunardeild fyrir Covid-sjúklinga á spítala í íröksku borginni Naririya. Erlent 13. júlí 2021 06:57
Minnst 82 látin eftir eldsvoða á sjúkrahúsi fyrir Covid-19 sjúklinga Minnst 82 eru látin og meira en 100 særð eftir eldsvoða á sjúkrahúsi nokkru í Bagdad, höfuðborg Íraks, sem sérstaklega hafði verið útbúinn til að sinna covid-19 sjúklingum. Upptök eldsvoðans eru rakin til sprengingar súrefniskúts á sjúkrahúsinu. Erlent 25. apríl 2021 10:43
Stórtækustu böðlarnir utan Kína í Miðausturlöndum Fjögur af þeim fimm ríkjum sem tóku flesta af lífi í fyrra eru Miðausturlönd. Saman stóðu Íran, Egyptaland, Írak og Sádi-Arabía fyrir nærri því níu af hverjum tíu aftökum sem vitað er um með vissu í heiminum samkvæmt skýrslu mannréttindasamtakanna Amnesty International. Erlent 21. apríl 2021 13:43
Páfinn ætlar að stappa stálinu í kristna Íraka sem hafa átt undir högg að sækja Frans Páfi leggur leið sína til Íraks í dag þar sem hann mun hitta kristna Íraka. Þeim hefur fækkað gífurlega á undanförnum árum vegna ofbeldis í landinu og af ótta við ofbeldi gegn þeim. Innlent 5. mars 2021 08:47
Eldflaugum skotið að bandarískri herstöð í Írak Minnst tíu eldflaugum hefur verið skotið að herstöð í vesturhluta Íraks þar sem bandarískir hermenn og írakskir halda til. Írakski herinn segir árásina ekki hafa valdið miklum skaða. Erlent 3. mars 2021 08:32
Einn dó og átta særðust í eldflaugaárás á herstöð Bandaríkjamanna Einn lét lífið og minnst átta eru særðir eftir að eldflaugum var skotið að herstöð í Írak, þar sem bandarískir hermenn halda til, í gærkvöldi. Sá sem dó var verktaki og einn bandarískur hermaður er meðal hinna særðu en hann fékk heilahristing. Erlent 16. febrúar 2021 13:15
Æðsti leiðtogi ISIS í Írak drepinn Æðsti leiðtogi hryðjuverkasamtakanna ISIS í Írak, Jabbar Salman Ali Farhan al-Issawi, var drepinn í borginni Kirkuk í norður-hluta Íraks. Erlent 30. janúar 2021 21:32
ISIS lýsir yfir ábyrgð á árásinni í Bagdad Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa sagst bera ábyrgð á árásinni á markað á Tayaran-torgi í íröksku höfuðborginni Bagdad í gær þar sem tveir menn sprengdu sjálfa sig í loft upp. Að minnsta kosti 32 létu lífið í árásinni og á annað hundrað særðist. Erlent 22. janúar 2021 08:24
21 látinn eftir tvær sprengjuárásir í Bagdad Að minnsta kosti 21 er látinn eftir að tvær sjálfsvígssprengjuárásir voru gerðar í íröksku höfuðborginni Bagdad í morgun. Erlent 21. janúar 2021 09:44
Óttast áhrif fækkunar í herliði Bandaríkjamanna Tilkynnt hefur verið að Bandaríkjamenn muni fækka í herliði sínu í Írak og Afganistan um 2.500 á næstu vikum. Erlent 18. nóvember 2020 13:53
Bítlar ISIS á leið til Bandaríkjanna Þeir Alexanda Kotey og El Shafee Elsheikh, tveir síðustu meðlimir alræmds hóps vígamanna Íslamska ríkisins sem gengu undir nafninu Bítlarnir, eru í haldi bandarískra hermanna í Írak. Erlent 6. október 2020 11:55
Fækkar í herliðinu í Írak um 2.200 Fjöldi bandarískra hermanna í Írak fer því úr um 5.200 í um þrjú þúsund. Erlent 9. september 2020 11:41
Styrkir til mannúðaraðstoðar á vegum Hjálparstarfs kirkjunnar Utanríkisráðuneytið hefur veitt Hjálparstarfi kirkjunnar styrki til mannúðaraðstoðar, annars vegar vegna átakanna í Sýrlandi og hins vegar í Írak, samtals 30 milljónir króna. Heimsmarkmiðin 7. maí 2020 12:22
109 bandarískir hermenn hlutu áverka í loftárásum Írana Bandarísk hermálayfirvöld hafa nú viðurkennt að alls hafi 109 bandarískir hermenn orðið fyrir einhvers konar áverkum á heila þegar íranski herinn gerði loftárás á bandaríska herstöð í Írak í janúar. Erlent 11. febrúar 2020 06:42
Írakar hafa loks fundið nýjan forsætisráðherra Barham Salih, forseti Írak, hefur skipað nýjan forsætisráðherra landsins rúmum tveimur mánuðum eftir Adil Abdul-Mahdi sagði af sér embætti Erlent 2. febrúar 2020 10:38
Þremur eldflaugum skotið á bandaríska sendiráðið í Bagdad Sendiráðið er að finna á græna svæðinu svokallaða, en sem öryggisgæsla er mikil. Erlent 26. janúar 2020 22:57
34 bandarískir hermenn hlutu heilaáverka eftir árás Írana Umrædd árás var gerð í hefndarskyni fyrir dráp Bandaríkjamanna á háttsetta íranska hershöfðingjanum Qasem Soleimani. Erlent 25. janúar 2020 10:01
Segja nýjan leiðtoga ISIS vera einn af stofnendum samtakanna Íslamska ríkið hefur fundið nýjan leiðtoga. Sá heitir Amir Mohammed Abdul Rahman al-Mawli al Salbi og er einn af stofnmeðlimum hryðjuverkasamtakanna. Erlent 21. janúar 2020 06:43
Segja nú að ellefu bandarískir hermenn hafi særst í árás Írana Áður hafði það verið gefið út að enginn hafi særst í árásum Írana 8. janúar og að eignartjón hafi verið minniháttar. Erlent 17. janúar 2020 07:30
Tveimur eldflaugum var skotið að flugvélinni Hermenn í Íran skutu tveimur eldflaugum að úkraínskri farþegaþotu sem verið var að fljúga frá Teheran í síðustu viku. Eldflaugunum var skotið með tuttugu og þriggja sekúndna millibili og frá herstöð skammt frá flugvellinum. Erlent 15. janúar 2020 10:02