HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Haaland hunsaði Holland

    Hollywood-stjarnan Tom Holland játaði að það væri auðmýkjandi reynsla að fótboltastjarnan Erling Haaland skyldi hunsa skilaboð hans. Holland sá Haaland á formúlunni í júní og bauð Norðmanninum út að borða en fékk ekkert svar. Haaland viðurkenndi að hafa hunsað skilaboðin því hann vissi ekkert hver Holland væri.

    Lífið
    Fréttamynd

    „Dapur­legt tíma­bil í sögu ríkis okkar“

    Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, var snöggur að skjóta niður pólitískar spurningar er tengjast deilum ríkis hans við Breta um Falklandseyjar. Utanríkisráðherra ríkisins hafði nýtt tækifærið og ýft upp gömul sár í vikunni.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Brjóta lög fót­boltans með sýningunni í hálf­leik

    Sérstök hálfleikssýning í anda Super Bowl, sem haldin verður í hálfleik úrslitaleiks HM í fótbolta á sunnudaginn, mun valda því að hálfleikshléið verður lengra en ætlast er til samkvæmt lögum fótboltans. Erlendir miðlar segja að hléið gæti orðið allt að hálftíma langt.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“

    Harry Kane, fyrirliði enska landsliðsins, hefur vísað til föðurhúsanna hugmyndum um ágreining innan enska landsliðshópsins og fullyrðir að „fullkomin samstaða“ ríki fyrir undanúrslitaleikinn gegn Argentínu á HM annað kvöld.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    „Minn stærsti draumur“

    Pedro Porro skoraði seinna mark Spánverja í sigrinum á Frökkum í undanúrslitaleik HM í kvöld og hann var í skýjunum eftir leikinn.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    David kemur áhugalausri Victoriu til varnar

    Enska knattspyrnugoðsögnin David Beckham hefur komið eiginkonu sinni, kryddpíunni Victoriu Beckham, til varnar eftir að myndir náðust af fjölskyldunni á leik Englands og Noregs á laugardaginn. Á meðan Englendingar ærðust af gleði yfir marki Jude Bellingham þá sat svipbrigðalaus Victoria sem fastast.

    Lífið
    Fréttamynd

    Sakar lækni lands­liðsins um loddaraskap

    Senegal datt úr leik í sextán liða úrslitum HM, þjálfari liðsins var rekinn og nú hefur forseti senegalska knattspyrnusambandsins sakað lækni landsliðsins um að hafa logið um hæfni sína.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Blása lífi í glæður Falklandseyjadeilunnar fyrir stórleikinn

    Á miðvikudagskvöldið mætast England og Argentína í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í knattspyrnu en Pablo Quirno utanríkisráðherra Argentínu stakk niður penna við tilefnið og minnti á að deilunni um Falklandseyjar er hvergi nærri lokið af þeirra hálfu.

    Erlent
    Fréttamynd

    Mynda­vélin hreyfðist ekki og því engin snerting

    Fifa segir að boltinn hafi ekki snert myndavélavír í aðdraganda fyrra marks Englands gegn Noregi í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins vegna þess að myndavélin hreyfðist ekki. Ef boltinn hefði farið í vírinn hefði markið verið dæmt ógilt.

    Fótbolti