Æskulýðsdagur Andvara Mánudaginn 1.maí n.k. verður hinn árlegi æskulýðsdagur Andvara. Lýsi hf. er styrktaraðilinn í ár, fjórða árið í röð og heitir því dagurinn Lýsisdagurinn. Haldið verður Lýsismót fyrir félagsmenn að Andvaravöllum og hefst mótið kl. 12.00. Sport 29. apríl 2006 08:50
Æskan og hesturinn í Reiðhöllinni Svaðastöðum Tvær sýningar verða á Æskan og hesturinn í dag laugardag, kl. 14:00 og kl. 18:00. Um 100 krakkar úr níu hestamannafélögum á Norðurlandi taka þátt í sýningunni. Við hvetjum alla hestamenn og áhugafólk um hestamennsku að koma á sýninguna Sport 29. apríl 2006 08:48
Vinnubrögð meirihlutans algjörlega óviðunandi Vinnubrögð meirihlutans í Kópavogi í málefnum Gustssvæðisins eru algjörlega óviðunandi að mati Samfylkingarmanna í bænum. Kópavogsbær hefur ákveðið að ganga til viðræðna við stjórnarmenn Gusts um að taka yfir kauptilboð þeirra á hesthúsum á svæðinu.Forsaga málsins er sú að í ágúst í fyrra hófu fjárfestar að kaupa upp hesthús á Gustssvæðinu sem svo er kallað og fyrr en varði áttu þeir um 40 prósent húsanna. Innlent 28. apríl 2006 13:46
Alþjóðlegir hestadagar tókust vel Talið er að á annað þúsund manns hafi sótt dagskrá Tekið til kostanna sem var fjölbreytt og stóð frá fimmtudegi til sunnudags. Hápunktur dagskrár var stórsýning á laugardagskvöldið, en þá var húsfyllir í höllinni og mikið stuð. Sport 28. apríl 2006 10:09
Kennslusýning Hólaskóla Reiðkennarabraut Hólaskóla, í samvinnu við hestamannafélagið Fák, stendur fyrir kennslusýningu í reiðhöllinni í Víðidal helgina 6.-7. maí. Nemendur og kennarar skólans bjóða upp á spennandi dagskrá varðandi reiðmennsku og þjálfun frá morgni til kvölds báða dagana. Nánar auglýst síðar. Sport 28. apríl 2006 10:04
Lokamót í meistaradeild VÍS í hestaíþróttum Síðasta mót Meistaradeildar VÍS fer fram í Glaðheimum í Kópavogi fimmtudaginn 4. maí og verður þá keppt í tveimur greinum gæðingaskeiði og 150 m. skeiði. Mótið hefst kl. 19:00 og er aðgangur ókeypis. Mikil spenna ríkir meðal keppenda fyrir síðasta mótið. Talsvert er í húfi fyrir utan heiðurinn þar sem verðlaunafé er líklega það hæsta í hestaíþróttum hingað til eða samtals kr. 2.200.000. Sport 27. apríl 2006 07:25
Úrvalshryssur á sýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands Á sýningu Hrossaræktarsamtaka Suðurlands sem haldin verður í Ölfushöllinni á laugardagin næstkomandi verður úrval bestu ræktunarhrossa suðurlands. Úrvalshryssur frá Dísarstöðum mæta til leika (m.a. Dáð frá Dísarstöðum). Sport 26. apríl 2006 12:34
Myndir frá Hrafnsmessu Komnar eru myndir frá Hrafnsmessu sem haldin var í Ölfushöll á Ingólfshvoli í myndasafn Hestafrétta. Það var Örn Karlsson sem tók myndirnar og fékk Hestafréttir góðfúslegt leifi til að birta þær hér á vefnum. Sport 26. apríl 2006 07:12
Úrslit Líflandsmóts Líflandsmótið var haldið um síðastliðna helgi í Fák í Víðidal og var þátttaka mjög góð. Teitur Árnason á Prinsessu frá Stóra-Hofi vann fimmgang unglinga og einnig tölt unglinga á Stefni frá Breið. Sara Sigurbjörnsdóttir á Kára frá Búlandi vann fjórgang unglinga og það var síðan Ragnar Bragi Sveinsson á Fjalari frá Hvolsvelli sem vann fjórgang barna. Sport 26. apríl 2006 07:09
Upptökur frá Hrafnsmessu á Vef TV Hin magnaða Hrafnssýning sem haldin var í Ölfushöll 19. apríl síðastliðin er nú komin inn á Vef TV Hestafrétta. Alls eru þetta um 50 mínútur að lengd og skiptist í tvo hluta, fyrir hlé og eftir hlé. Við vonum að lesendur okkar hafi gaman af því myndefni sem komið er inn á Vef TV Hestafrétta. Sport 26. apríl 2006 07:05
Opna Reykjavíkurmeistaramótið, skráning hefst á miðvikudag Opna Reykjavíkurmeistaramótið verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 10.-14. maí. Mótið er World Ranking mót og er keppt skv. FIPO reglum. Íþróttadeild Fáks áskilur sér rétt til að fella niður þær greinar sem ekki fæst næg þátttaka í. Þeir keppendur sem hafa skráð sig í viðkomandi grein verða færðir upp um flokk eða flokka. Sport 25. apríl 2006 15:58
Héraðssýning kynbótahrossa á Sörlastöðum í Hafnarfirði Héraðssýning kynbótahrossa á Sörlastöðum í Hafnarfirði hefst 15. maí og stendur til 26. maí. Ef þátttaka verður minni eða meiri en búist er við getur þurft að fækka eða fjölga dögum. Þurfi að bæta við dögum verður þeim bætt framan við. Dæmt verður frá mánudegi til fimmtudags en yfirlitssýning á föstudögum rétt eins og verið hefur undanfarin vor. Sport 25. apríl 2006 15:52
Stórsýning Hestastamanna 5. og 6. mai Stórsýning hestamanna verður haldin helgina 5. og 6. mai í Reiðhöllinni í Víðidal. Miðasala hefst laugardaginn 29. apríl milli klukkan 10 og 14. Það er óhætt að segja að þessi sýning verði áhugaverð því þarna verður Ormur frá Dallandi, Leiknir frá Vakurstöðum, Hlýr frá Vatnsleysu, Sefja frá Úlfljótsvatni og á föstudeginum verður sölusýning fyrir þá sem vantar gæðing, en hún verður haldin á milli klukkan 18 og 20. Sport 25. apríl 2006 15:44
Úrslit Opna töltmóts hestamannafélagsins Hornfirðings Opið töltmót hestamannafélagsins Hornfirðings og SpHorn fór fram í blíðskaparveðri við Stekkhól sl laugardag. Þáttaka var góð í mótinu og menn flestir ágætlega ríðandi. Dómarar á mótinu voru Sigríkur Jónsson, Svanhildur Hall og Magnús Lárusson. Sport 24. apríl 2006 21:01
Rannóknir á félagsgerð hesta í íslenskum stóðum Í dag klukkan 17.15 mun Dr. Hrefna Sigurjónsdóttir prófessor í líffræði við Kennaraháskóla Íslands flytja fyrirlestur sem hún nefnir; Rannóknir á félagsgerð hesta í íslenskum stóðum. Félagsgerð hópa byggist á samböndum á milli einstaklinga hópsins. Því er nauðsynlegt að greina virðingarraðir, þ.e. hver ríkir yfir hverjum og einnig hverjir bindast vináttuböndum. Sport 24. apríl 2006 15:26
Þáttur um Monty Roberts á Vef TV Hestafrétta Einkaveisla var haldin fyrir Monty Roberts í Ármóti hjá Hafliða Halldórssyni daginn eftir sýningu hans sem haldin var á skírdag. Um 70 manns var boðið í þessa veislu og var sýning sett upp fyrir Hestahvíslarann og var þar samankomin rjóminn af knöpum landsins. Sport 24. apríl 2006 15:11
Fysta kynbótasýning ársins Fyrsta kynbótasýningin var haldin síðastasliðin föstudag sem er jafnframst sú fyrsta og var hún haldin á Sauðárkróki. yfirlitssýning var síðan á laugardag. Sport 24. apríl 2006 10:37
Þorsteinn Logi vann Morgunblaðsskeifuna Skeifudagurinn var haldinn hátíðlegur Þann 22. apríl síðastliðin við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þennan dag, eins og verið hefur um áratuga skeið, kynna nemendur í hrossarækt árangur vetrarstarfsins. Þorsteinn Logi Einarsson frá Egilstaðakoti vann Morgunblaðsskeifuna en hún er veitt þeim nemanda sem stendur efstur á verklegum prófum í tamningum og gangtegundum yfir veturinn. Sport 23. apríl 2006 10:48
Staðan í Meistaradeild VÍS Allt er járn í járn í stigasöfnun til Meistaratignar í Meistareild VÍS 2006 og vonlaust að spá fyrir um sigurvegara enda 20 stig eftir í pottinum. Segja má að efstu sex knapar eigi allir möguleika á sigri ef hlutirnar ganga upp eftir tvær vikur í skeiðinu. Einnig má geta þess að hart er barist um laus sæti í Meistaradeildinni að ári en 12 efstu knapar öðlast. Sport 22. apríl 2006 00:50
Fyrsta kynbótasýning ársins Fyrsta kynbótasýning ársins hófst í gær föstudag, en hún var haldin í Skagafirði. Garpur frá Lækjarmóti fékk 10.0 fyrir prúðleika (fax og tagl). Yfirlitssýning fer fram í dag laugardag. Sport 22. apríl 2006 00:35
Þorvaldur Árni sigrar fimmgang í Meistaradeild VÍS Það var Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Þokki frá Kýrholti sem sigruðu fimmganginn í Meistaradeild VÍS í gærkveldi. Viðar Ingólfsson á Riddara frá Krossi náði öðru sæti og Sigurður Sigurðarson á Skuggabaldri endaði í því þriðja. Ísleifur og Svalur frá Blönduhlíð áttu magnaða sýningu, en þeir riðu úr 10. sæti í B úrslitum uppí 4. sæti í A úrslit. Sport 21. apríl 2006 00:19
Hestamaður liggur þungt haldinn á gjörgæslu Maður féll af hestbaki í Fljótshlíðinni síðastliðin laugardag og liggur hann enn þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítala-Háskólasjúkrahúss, með mikla áverka á hálsi. Að sögn vakthafandi læknis er ástand hans stöðugt en honum er haldið í öndunarvél. Ekki er vitað enn hvort hann hefur beðið varanlegan skaða af fallinu. Innlent 19. apríl 2006 15:53
Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði Alþjóðlegir hestadagar í Skagafirði hefjast á morgun sumardaginn fyrsta með reiðkennslusýningu Hólaskóla. Þessi hátíð er haldin ár hvert og dregur að sér mikið af áhorfendum innlendum sem erlendum. Boðið verður uppá fræðsluerindi, kynbótasýningar, töltkeppni og svo er markaðsdagur í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Hestadagarnir standa yfir dagana 20 – 23 apríl. Innlent 19. apríl 2006 11:46
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum. Staðan í deildinni eftir fimm greinar af átta Með góðum sigri í Gæðingafiminni á hestagullinu Ormi frá Dallandi hefur Alti Guðmundsson færst í hóp fremstu knapanna og ljóst að hann mun blanda sér í baráttu um meistaratitlinn. Í úrslitum Gæðingafiminnar fékk Sigurður Sigurðarson 7, 93 í einkunn en Þorvaldur Árni 7,92. Þetta brot 1/100 réð úrslitum um það hvor þeirra leiðir stigasöfnunina að lokinni Gæðingafiminni. Sport 19. apríl 2006 11:40
Enn meira um Skeifudaginn á Hvanneyri Laugardaginn 22. apríl n.k. verður haldinn hinn árlegi Skeifudagur við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þennan dag, eins og verið hefur um áratuga skeið, kynna nemendur í hrossarækt árangur vetrarstarfsins. Morgunblaðsskeifan verður afhent þennan dag en hún er veitt fyrir bestan árangur í tamninga- og reiðkennslunámi vetrarins. Sport 19. apríl 2006 11:25
Hrafnsmessa á morgun Enn bætast við stórstjörnur á Hrafnssýninguna 19.apríl í Ölfushöllinni. Má þar nefna topp klárhestinn og glæsi stóðhestinn Leikni frá Vakursstöðum, knapi á Leikni er hinn ungi Valdimar Bergstad. Bræðurna; Eldjárn frá Tjaldhólum, knapi Guðmundur Björgvinsson og Borða frá Fellskoti, knapi á honum er Brynjar Jón Stefánsson. Það er ekki ofsögum sagt að þeir bræður séu í topp formi, “ glæsihestar”. Síðast en ekki síst má nefna að Hans Kjerulf er lagður af stað suður með hestagullið Laufa frá Kollaleiru og eina moldótta sem lyftir létt yfir vinkilinn. Sport 18. apríl 2006 15:43
Hesta og gæludýrakeppni hjá Íshestum á sumardaginn fyrsta Íshestar standa fyrir hesta og gæludýrakeppni sumardaginn fyrsta í höfuðstöðvum Íshesta í Hafnafirði. Framkvæmd á skemmti- og hátíðardagskrá þennan dag er í höndum Önnu Marínar Kristjánsdóttur fagmanns á sviði hunda og hesta. Dagskráin er með nokkuð hefðbundnu sniði eins og fyrri ár, þ.e.fjölbreytt fjölskyldudagskrá þar sem ýmislegt er í boði, en gaman er að segja frá því að í fyrsta skipti á Íslandi verður haldinn almenn gæludýrakeppni. Innlent 18. apríl 2006 12:50
Þorvaldur og Blíða sigra Þeir allra sterkustu Þorvaldur Árni og Blíða frá Flögu sigruðu keppnina "þeir allra sterkustu" sem haldin var í Skautahöllinni í Laugardal í gærkveldi. Bergir Jónsson og Tjörvi frá Ketilsstöðum sigruðu stóðhestakeppnina. Sport 16. apríl 2006 16:29
Skeifudagur á Hvanneyri Þann 22. apríl verður haldinn hinn árlegi Skeifudagur við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þennan dag, eins og verið hefur um áratuga skeið, kynna nemendur í hrossarækt árangur vetrarstarfsins. Morgunblaðsskeifan verður afhend þennan dag en hún er veitt fyrir bestan árangur í tamninga- og reiðkennslunámi vetrarins. Sport 13. apríl 2006 17:58
Stórsýningin "Þeir allra sterkustu" Nú er verið að leggja síðustu hönd á dagskrá og undirbúning stórsýningarinnar " Þeir allra sterkustu". Aðgöngumiða er verið að selja í versluninni Líflandi og einnig verður selt við innganginn í skautahöllinni á laugardag en húsið opnar kl. 19:00. Sport 12. apríl 2006 17:45