

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - KA/Þór 21-24 | Gestirnir tryggðu oddaleik
Eftir sigur KA/Þór í Eyjum er ljóst að ÍBV og KA/Þór þurfa að mætast í oddaleik um sæti í úrslitaeinvíginu í Olís-deild kvenna.

Aron Rafn aftur heim í Hauka
Markvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson kemur heim í sumar og gengur í raðir Hauka. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning við félagið.

Eyjakonur geta í kvöld komist í lokaúrslitin í fyrsta sinn í sextán ár
Valskonur og Eyjakonur geta í kvöld tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Íslandsmóts Olís deildar kvenna í handbolta en bæði liðin eru 1-0 yfir í undanúrslitaeinvígum sínum.

Fór yfir ótrúlegan sjö mínútna kafla Árna Braga
Árni Bragi Eyjólfsson hefur verið heitasti leikmaður Olís-deildar karla eftir síðasta hléið. Hann átti enn einn stórleikinn þegar KA tapaði fyrir Val, 31-27, á mánudaginn.

HK hélt sæti sínu
HK hélt sæti sínu í Olís-deild kvenna með naumum sigri á Gróttu í kvöld, lokatölur 19-17. HK vann þar með einvígi liðanna 2-0 og spilar áfram í deild þeirra bestu á næstu leiktíð.

Kría og Víkingur mætast í úrslitum
Kría tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum umspils um laust sæti í Olís-deild karla í handbolta. Það gerðu Seltirningar með sex marka sigri á Fjölni í oddaleik, lokatölur 31-25.

Víkingar í úrslit
Víkingur vann í kvöld Hörð Ísafjörð í oddaleik um sæti í úrslitaleik umspils Grill66-deildar karla í handbolta, lokatölur 39-32.

Aron gæti mætt Álaborg í úrslitum Meistaradeildarinnar
Aron Pálmarsson og félagar hans í spænska meistaraliðinu Barcelona mæta Nantes í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Dregið var í höfuðstöðvum EHF í dag.

Bjarki Már skoraði níu í tapi Lemgo og lærisveinar Guðmundar biðu afhroð
Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í þýska handboltanum í kvöld. Tvö þeirra máttu þola tap.

Sjáðu fagnaðarlætin eftir að Magdeburg tryggði sér titilinn
Þýska handknattleiksliðið Magdeburg varð í gærkvöld Evrópumeistari er liðið lagði Füchse Berlin með þriggja marka mun í alþýskum úrslitaleik Evrópudeildarinnar, lokatölur 28-25.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Afturelding 27-27 | Mosfellingar náðu í stigið sem til þurfti
Afturelding þurfti stig til að tryggja sæti sitt í úrslitakeppni Olís deildar karla í handbolta. Það kom er liðið gerði 27-27 jafntefli við ÍBV í Vestmannaeyjum í dag.

Finnst við eiga meira skilið úr þessu tímabili
Sebastian Alexandersson var ótrúlegt en satt ekki það glaður er hann mætti í viðtal eftir tólf marka sigur Fram á Gróttu í Olís deild karla í handbolta í dag.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Haukar 24-35 | Deildarmeistararnir keyrðu yfir Selfyssinga
Deildarmeistarar Hauka gerðu góða ferð yfir Hellisheiðina þar sem Selfyssingar biðu þeirra. Nokkuð jafnræði var með liðunum fyrstu 20 mínútur leiksins, en eftir það tóku gestirnir öll völd og unnu að lokum verðskuldaðan 11 marka sigur. Lokatölur 24-35 og Selfyssingar eiga nú í hættu á að missa af heimaleikjarétti í úrslitakeppninni.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Grótta 32-20 | Stórsigur í Safamýri en Fram kemst ekki í úrslitakeppnina
Fram vann virkilega öruggan tólf marka sigur á Gróttu í dag, 32-20 en þeir voru með yfirhöndina alveg frá fyrstu mínútu.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Þór 27-23 | Slakir Stjörnumenn komust upp í 3. sætið
Stjörnumenn unnu sinn annan leik í röð þegar þeir lögðu fallna Þórsara að velli, 27-23, í Mýrinni í 21. og næstsíðustu umferð Olís-deildar karla í dag.

Patrekur: Örugglega lélegasti leikurinn okkar á tímabilinu
Patrekur Jóhannesson, þjálfari Stjörnunnar, var ánægður með sigurinn á Þór, 27-23, í dag en fannst spilamennska sinna manna slök.

Legg mikið upp úr því að við komum á góðri siglingu inn í úrslitakeppnina
Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari Vals var ánægðu með að hans menn hafi unnið mikilvægan sigur á KA. Góður seinni hálfleikur varð til þess að Valur unnu 4 marka sigur 31-27.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - KA 31-27 | Nokkuð öruggt hjá Valsmönnum
Valur vann fjögurra marka sigur á KA er liðin mættust í Olís deild karla í dag. Lokatölur 31-27 heimamönnum í vil.

Þetta er auðvitað bara ekki boðlegt á heimavelli
Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari Selfyssinga var gríðarlega ósáttur við spilamennsku sinna manna þegar liðið tók á móti Haukum í Olísdeild karla í dag.

Ólöf Maren gengur til liðs við Hauka
Markvörðurinn Ólöf Maren Bjarnadóttir hefur samið við Hauka um að leika með liðinu næstu árin. Hún gengur til liðs við Hauka frá uppeldisfélagi sínu KA/Þór.

Holstebro náði á einhvern ótrúlegan hátt að jafna og Álaborg tók forystuna gegn GOG
Undanúrslit dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta hófust í dag. Óðinn Þór Ríkharðsson og félagar í Holstebro náðu jafntefli við Bjerringbro/Silkeborg á meðan Álaborg lagði Viktor Gísla Hallgrímsson og félaga í GOG.

Þriggja vikna hraðmót um titilinn eftir margra mánaða keppni og vinnu
Næst síðasta umferðin í Olís-deild karla í handbolta verður leikin í dag. Haukar hafa haft yfirburði til þessa í deildarkeppninni, en hvers vegna? Gaupi fór á stúfana og ræddi við Aron Kristjánsson, þjálfara liðsins um gott gengi þess á leiktíðinni.

Stórleikur hjá Ómari er Magdeburg sótti gull
Magdeburg hafði betur gegn Füchse Berlin í úrslitaleik EHF-bikarsins en lokatölur urðu 28-25, Magdeburg í vil.

Umfjöllu og viðtöl: Fram - Valur 22-28 | Burst í Safamýri
Valskonur tryggðu sér 1-0 forystu í undanúrslitum um íslandsmeistaratitilinn þegar þær mættu Fram í Safamýrinni 28-22.

Umfjöllun og viðtöl: KA/Þór - ÍBV 26-27 | Seiglusigur Eyjakvenna fyrir norðan
ÍBV vann 27-26 sigur á KA/Þór í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.

HK með pálmann í höndunum
HK er með níu fingur á sæti í Olís deild kvenna á næstu leiktíð eftir 28-18 sigur á Gróttu í fyrri umspilsleiknum.

Fór á kostum og Magdeburg í úrslit
Ómar Ingi Magnússon skoraði sex mörk er Magdeburg tryggði sér sæti í úrslitaleik EHF-keppninnar. Magdeburg vann eins marks sigur á Wisla Plock, 30-29.

Óðinn Þór í úrvalsliðinu í Danmörku
Íslenski landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson hefur verið öflugur í hægra horni Holsterbro í úrslitakeppninni í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Hann var valinn í úrvalslið leikjanna átta.

Tvöfalt fleiri áhorfendur leyfðir á þriðjudag
Frá og með næsta þriðjudegi mega 300 áhorfendur vera í hverju sóttvarnahólfi, í stað 150 áður, á íþróttakappleikjum á Íslandi.

Haukar örugglega í 16-liða úrslit
Haukar tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Coca Cola-bikarsins í handbolta með 32-24 sigri á Selfyssingum á Ásvöllum í kvöld. Haukar mæta nágrönnum sínum í FH í 16-liða úrslitum.