
Woods er bjartsýnn
Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er fullur sjálfstrausts fyrir US Masters mótið í golfi þó hann sé rétt að komast af stað eftir langt hlé eftir hnéuppskurð.
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.
Stjörnukylfingurinn Tiger Woods er fullur sjálfstrausts fyrir US Masters mótið í golfi þó hann sé rétt að komast af stað eftir langt hlé eftir hnéuppskurð.
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lék lokahringinn á opna portúgalska mótinu á Evrópumótaröðinni á 72 höggum eða einu höggi yfir pari. Hann endaði mótið í 72. sæti og lék holurnar 72 á átta höggum yfir pari.
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson spilaði á fimm höggum yfir pari á þriðja degi opna portúgalska mótinu í dag en mótið er hluti af evrópsku mótaröðinni.
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum niðurskurðinn á Estoril-mótinu í Portúgal þó svo hann hafi ekki spilað sérstaklega vel í dag.
Það gekk lítið upp hjá atvinnukylfingnum Birgi Leifi Hafþórssyni á öðrum degi á opna portúgalska mótinu á Evrópumótaröðinni.
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson frá Akranesi fór vel af stað á Estoril-mótinu sem fram fer í Portúgal. Mótið er liður í Evrópumótaröðinni.
Spænski kylfingurinn Seve Ballesteros segist vera á góðum batavegi eftir margfaldan heilauppskurð, en segir að nú standi hann fram fyrir stærstu áskorun sinni í lífinu - að ná heilsu á ný.
Endurkoma Tiger Woods á golfvöllinn er himnasending fyrir íþróttina. Fólk flykkist að sjónvarpstækjunum til þess að horfa á golf á nýjan leik og það má allt þakka Tiger Woods.
Tiger Woods vann sitt fyrsta golfmót eftir endurkomuna úr hnémeiðslum með eftirminnilegum hætti í gær. Tiger tryggði sér sigurinn á Arnold Palmer Invitational mótinu á Bay Hill með því að setja niður lokapúttið og fá fugl á 18. holunni.
Birgir Leifur Hafþórsson náði ekki að fylgja eftir góðri byrjun á opna Andalúsíu-mótinu í golfi á Spáni og hefur lokið keppni á samtals tveimur höggum yfir pari.
Birgir Leifur Hafþórsson lék í dag á þremur höggum yfir pari á opna Andalúsíu-mótinu í Sevilla á Spáni.
Birgir Leifur Hafþórsson lék á einu höggi yfir pari á öðrum keppnisdegi opna Andalúsíu-mótsins sem fer fram í Sevilla á Spáni. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.
Birgir Leifur Hafþórsson er á einu höggi undir pari eftir fyrstu tíu holurnar á öðrum keppnisdegi á Opna Andalúsíu-mótinu sem fer fram í Sevilla á Spáni. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.
Birgir Leifur Hafþórsson lék mjög vel á fyrsta hring í Opna Andalúsíumótinu á Spáni í dag en þetta sterka mót er hluti af Evrópumótaröðinni.
Birgir Leifur Hafþórsson er þegar þetta er ritað í 5.-11. sæti á móti á Sevilla á Spáni sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.
Svo gæti farið að Tiger Wodds missi toppsæti sitt á stigalista kylfinga í hendurnar á Phil Mickelson á næstu dögum.
Birgir Leifur Hafþórsson náði sínum besta árangri á núverandi tímabili Evrópumótaraðarinnar í golfi er hann varð í 38.-42. sæti á móti á Madeira í Portúgal.
Birgir Leifur Hafþórsson fann ekki fjölina sína á Madeira í dag þar sem hann tekur þátt í móti sem er hluti af evrópsku mótaröðinni.
Hvíti hákarlinn Greg Norman segir að breytingarnar sem búið sé að gera á Augusta-vellinum hafi komið honum algjörlega í opna skjöldu. Norman tekur þátt á Masters í fyrsta skipti síðan 2002.
Birgir Leifur Hafþórsson stendur vel að vígi á móti í Portúgal eftir annan keppnisdag sem fór fram í dag. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.
Birgir Leifur Hafþórsson er í 40.-49. sæti á móti í Portúgal en það er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.
Tiger Woods mun spila á sínu fyrsta móti í Ástralíu í meira en tíu ár síðar á þessu ári er hann tekur þátt í ástralska Masters-mótinu. Þáttaka Tigers í mótinu er þó umdeild enda fær Tiger einstaklega vel greitt fyrir að taka þátt.
Phil Mickelson bar sigur úr býtum á WGC-CA-mótinu á Doral-vellinum í gær. Hann lenti í æsispennandi keppni við Nick Watney sem kom í hús höggi á eftir Mickelson.
Svíinn Henrik Stenson stal senunni á WGC-CA mótinu í dag þegar hann klæddi sig úr öllu nema nærbuxunum á þriðju holu vallarins.
Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson lenti í 13.-16. sæti á opna Villaitana-mótinu á Hi5 mótaröðinni á Spáni en mótinu lauk "Hvítu Ströndinni" á Benidorm í gær.
Tiger Woods kláraði fyrsta hringinn á móti í Flórída á einu höggi undir pari. Hann er sex höggum á eftir efstu mönnum sem eru Phil Mickelson, Retief Goosen, Jeev Milkha Singh og Prayad Marksaeng.
Ástralilnn Geoff Ogilvy fagnaði í gærkvöldi sigri á heimsmótinu í holukeppni sem fór fram í Tucson í Arizona.
Tiger Woods féll úr keppni í annari umferð á Match Play-championship mótinu í gær.
Það var ekki hægt að sjá neitt ryð á Tiger Woods sem snéri til baka á golfvöllinn með glans í gær eftir átta mánaða fjarveru.
Tiger Woods snýr aftur á golfvöllinn í dag eftir að hafa verið fjarverandi í átta mánuði vegna hnémeiðsla.