Tiger í tómu tjóni á fyrsta degi á PGA-mótinu Tiger Woods byrjaði skelfilega á PGA-meistaramótinu í golfi sem fram fer í Johns Creek í Georgíu-fylki í Bandaríkjunum. Woods lék fyrstu 18 holurnar á 77 höggum eða sjö höggum yfir pari og er hann eins og er í 100. sæti á mótinu. Golf 11. ágúst 2011 17:55
McIlroy flytur til Bandaríkjanna - þreyttur á ágengum aðdáendum Norður-Írinn Rory McIlroy sér sig knúinn til þess að flytja til Bandaríkjanna. Hann segir ágenga norður-írska aðdáendur ástæðuna fyrir því að hann geti ekki lengur búið í heimalandinu. Golf 10. ágúst 2011 09:00
Ummæli Williams vekja mikla athygli Það mætti halda að kylfusveinninn Steve Williams hafi unnið Bridgestone-golfmótið um helgina. Athygli fjölmiðla er ekki síður á kylfusveininum en kylfingnum Adam Scott sem spilaði frábært golf og stóð uppi sem sigurvegari. Golf 9. ágúst 2011 13:30
Tiger Woods ræður æskuvin sinn sem kylfusvein til bráðabirgða Tiger Woods mætir til leiks á WGC-Bridgestone mótið í golfi á fimmtudaginn eftir tæplega þriggja mánaða fjarveru frá golfvellinum. Woods, sem nýverið rak kylfusvein sinn Steve Williams, hefur fengið æskuvin sinn til þess að bera golfpokann á mótinu. Golf 2. ágúst 2011 23:30
Afmælisdagur sem gleymist ekki Nökkvi Gunnarsson úr Nesklúbbnum fagnaði 35 ára afmælisdeginum með því að vinna Einvígið á Nesinu í gær. Hann er fyrsti heimamaðurinn sem vinnur mótið í heil tólf ár en Nesklúbbsfólk hefur margoft þurft að horfa upp á sína kylfinga rétt missa af sigri. Nö Golf 2. ágúst 2011 06:00
Nökkvi: Ég kom sjálfum mér eiginlega á óvart Nökkvi Gunnarsson hélt upp á 35 ára afmælið sitt með því að vinna Einvígið á Nesinu í dag. Hann tryggði sér sigurinn með því að vinna Inga Rúnar Gíslason í bráðabana. Golf 1. ágúst 2011 21:00
Ingi Rúnar: Það er allt öðruvísi að spila á svona móti Ingi Rúnar Gíslason úr Golfklúbbnum Kili varð annar í Einvíginu á Nesinu í dag eftir frábæra spilamennsku og harða keppni við Nökkva Gunnarsson sem tryggði sér sigur í bráðabana. Golf 1. ágúst 2011 20:49
Tseng vann Opna breska kvennamótið Yani Tseng frá Taívan sigraði Opna breska kvennamótið í golfi um helgina og varð um leið yngsta konan til að vinna fimm risamót í golfi. Golf 1. ágúst 2011 20:00
Nökkvi vann Einvígið á Nesinu Nökkvi Gunnarsson NK vann einvígið á Nesinu 2011. Hann tryggði sér sigur í bráðabana á lokaholunni en í öðru sæti var Ingi Rúnar Gíslason GKJ. Golf 1. ágúst 2011 16:58
Bara einn hefur unnið Einvígið tvö ár í röð - hvað gerir Birgir Leifur? Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í 15. sinn á Nesvellinum í dag. Keppendur léku níu holu höggleik í morgun og klukkan eitt hefst svo Einvígið (shoot-out). Einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast um sigurinn á 18. holu. Golf 1. ágúst 2011 12:00
Einvígið á Nesinu á morgun - Birgir Leifur verður með Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í fimmtánda skipti á Nesvellinum á morgun mánudaginn 1. ágúst. Nesklúbburinn hefur nú tilkynnt um það hverjir verða með í mótinu í ár. Golf 31. júlí 2011 13:00
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig er best að slá úr sandinum? Margir kylfingar óttast það mest að þurfa að slá boltann úr sandglompu þegar þeir leika golf. Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, sýnir réttu aðferðina við þetta högg. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs, sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 30. júlí 2011 20:00
Rory McIlroy stimplaður sem óþroskuð dekurrófa Rory McIlroy stendur í ströngu eftir að hann skrifaði allt sem hann hugsaði í Twitterfærslu um sjónvarpsþul sem starfar á Golf Channel. Bandaríkjamenn eru allt annað en ánægðir með hversu hreinskilinn Norður-Írinn var í þessari færslu og kylfingurinn hefur nú fengið „stimpil“ sem „óþroskuð og barnaleg dekurrófa“. Golf 30. júlí 2011 17:00
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á slá boltann í sveig frá vinstri til hægri? Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, er með mörg högg í "pokahorninu“ og í þessu atriði sýnir hann hvernig hann ber sig að þegar hann slær boltann í sveig frá vinstri til hægri. Þetta boltaflug er oftast kallað "feid“ eða "slæs“ á meðal kylfinga. Golf 30. júlí 2011 11:00
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að undirbúa sig fyrir höggið? Birgir Leifur Hafþórsson segir hér frá því hvernig hann skiptir undirbúningnum fyrir hvert högg í tvo þætti. Atvinnukylfingurinn útskýrir hugtökin "play box“ og "think box“ en Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari er með Birgi í þessu innslagi úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 29. júlí 2011 12:00
Tiger Woods mætir til leiks á ný eftir 3 mánaða hvíld Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods tilkynnti í gær að hann ætlaði sér að vera með á Bridgestone meistaramótinu sem hefst á fimmtudaginn í næstu viku. Woods hefur ekkert keppt í golfi undanfarnar 11 vikur vegna meiðsla í hné og hásin. Á þessum tíma hefur hann misst af tveimur stórmótum, opna bandaríska meistaramótinu og opna breska. Golf 29. júlí 2011 10:00
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að slá hátt og lágt með sömu kylfunni? Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, sýnir hér hvernig hægt er að slá ólík högg með sömu kylfu. Hann sýnir með einföldum hætti hvernig kylfingar geta slegið hátt og lágt högg með sömu kylfunni. Golf 28. júlí 2011 13:45
Golfskóli Birgis Leifs: Röðun hreyfinga í framsveiflunni Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, fer hér yfir röðun hreyfinga í framsveiflunni. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Rétt röð hreyfinga á mjöðmum, höndum og öxlum er eitt af lykilatriðum í golfsveiflunni og Birgir Leifur sýnir hér hvaða áherslur hann leggur sjálfur á í þessum atriðum. Golf 27. júlí 2011 16:45
Tíu ára einhentur golfstrákur sýnir snilldartakta - myndband Tíu ára gamall enskur strákur, Leo Millar, hefur vakið athygli í heimalandinu og víðar fyrir golfleik. Þegar Millar fæddist kom í ljós að á hann vantaði alla fingur á hægri hendina en hann lætur það ekki aftra sér frá því að slá golfbolta og stunda aðrar íþróttir. Með hjálp stoðtækjasmiða hefur Millar fengið sérstakt "grip“ á hægri hendina og eftir að hafa stundað æfingar í aðeins sjö vikur er Millar farinn að slá golfboltann hátt í 200 metra. Golf 27. júlí 2011 14:45
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að taka stefnuna í högginu? Birgir Leifur Hafþórsson fer hér yfir hvernig best er að stilla sér upp fyrir högg. Atvinnukylfingurinn bendir á algengustu villurnar sem áhugamenn gera þegar þeir stilla sér upp fyrir högg og taka þar með ranga stefnu frá upphafi. Atriðið er úr Golfskóla Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 27. júlí 2011 11:45
Steve Williams allt annað en sáttur við Tiger Woods Steve Williams, sem nýverið var sagt upp störfum sem kylfuberi hjá Tiger Woods, segir að virðing hans á bandaríska kylfingnum hafi ekki verið upp á marga fiska eftir að upp komst um framhjáhald Woods í lok árins 2009. Golf 27. júlí 2011 11:00
Páll Magnússon biður golfáhugamenn afsökunar Páll Magnússon útvarpsstjóri og Haukur Örn Birgisson varaforseti Golfsambands Íslands voru í spjalli hjá Heimi og Kollu Í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Útvarpsstjóri útskýrði hvers vegna útsending frá Íslandsmótinu í höggleik hefði verið rofin á sunnudag og bað golfáhugamenn afsökunar. Golf 26. júlí 2011 11:30
Kristján Þór: Ég gaf þessu sénsinn Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ lék vel á lokadeginum á Íslandsmótinu í höggleik, 69 höggum, þremur höggum undir pari og gerði hann atlögu að Axel Bóassyni sem var efstur fyrir lokahringinn. Kristján fagnaði Íslandsmeistaratitlinum í Vestmannaeyjum árið 2008 en hann hefur endað í öðru sæti á tvö síðustu ár á Íslandsmótinu í höggleik. Golf 24. júlí 2011 23:42
Axel Bóasson: Búinn að bíða lengi eftir að ná loksins stóra sigrinum Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili sýndi snilldartakta á lokaholunni á Íslandsmótinu í höggleik í golfi sem lauk í dag á Hólmsvelli í Leiru. Axel lék sér að því að slá með 8-járni af um 180 metra færi í öðru höggi inná flötina og setti hann púttið í fyrir erni og tryggði þar með sigurinn. Hann lék lokahringinn á 74 höggum og samtals var hann á 2 höggum undir pari. Golf 24. júlí 2011 20:55
Ólafía Þórunn: Þetta er frábær tilfinning "Þetta er frábær tilfinning. Ég ætlaði bara að vera yfirveguð á þessum lokahring og fá sem flest pör, en það var erfitt í þessum aðstæðum,“ sagði Ólafía Þórunn Kristinsdóttir rétt eftir að hún fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í höggleik kvenna í golfi á Hólmsvelli í Leiru í dag. Golf 24. júlí 2011 20:06
Axel Íslandsmeistari í golfi Axel Bóasson úr Keili varð í dag Íslandsmeistari í golfi eftir spennandi lokadag. Taugar Axels héldu út holurnar 18 og hann fagnaði innilega í lokin. Axel lauk keppni á tveim höggum undir pari eða þrem höggum betur en Kristján Þór Einarsson. Golf 24. júlí 2011 19:54
Ólafía Íslandsmeistari með yfirburðum Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur vann öruggan sigur á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru. Golf 24. júlí 2011 18:46
Lokadagurinn í Leirunni loksins hafinn Ræsingu á lokadeginum á Íslandsmótinu í höggleik var frestað í tvígang í morgun vegna veðurs. Kylfingar fóru ekki af stað fyrr en í hádeginu en í fyrstu var frestað til 11.00. Golf 24. júlí 2011 12:43
Axel með þriggja högga forskot fyrir lokadaginn Axel Bóasson endurheimti forystuna á Íslandsmótinu í golfi í dag þegar þriðji hringurinn fór fram í hávaðaroki á Hólmsvelli í Leiru. Golf 23. júlí 2011 18:29
Ólafía Þórunn með pálmann í höndunum Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er með pálmann í höndunum fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í golfi. Ólafía Þórunn lék langbest í dag og fer inn í lokadaginn með þrettán högga forskot. Golf 23. júlí 2011 17:07
Uppgjörið: Þór Þ. - Tindastóll 75-96 | Flugeldasýning hjá Stólum í fjórða leikhluta fleytir Skagfirðingum á toppinn Körfubolti