Fimm kylfingar stóðu jafnir að loknum holunum níu á fjórum undir pari. Ernie Els og Nick Watney drógu sig þó úr keppni svo að Potter barðist um sigurinn við Phil Mickelson og Matt Kuchar.
Par dugði Mickelson ekki á fyrstu holu því Kucher og Potter yngri nældu sér í fugl. Potter, sem er að spila í fyrsta skipti á Masters, hélt uppteknum hætti á næstu holu á meðan Kucher paraði holuna. Þar með var leik lokið.

Léttleikinn sveif yfirvötnunum á Augusta í gær og beindist kastljós margra að ofurparinu Rory McIlroy og Caroline Wozniacki. Danska tennisstjarnan sá um að bera kylfurnar fyrir kærastann sinn frá Norður-Írlandi. Svipað var uppi á teningnum hjá öðrum kylfingum sem höfðu fjölskyldumeðlim eða vin á sinni hægri hönd enda allt til gamans gert.
Keppni á Masters-mótinu hefst í dag. Bein útsending á Stöð2 Sport & HD hefst klukkan 19.
Sportið á Vísi er á Facebook. Vertu með.
Um par 3 keppninaHin árlega par 3 keppni fór fram á par 3 vellinum á Augusta National-golfvellinum í gær. Mótið er að mestu haldið til skemmtunar og fá kylfingar þar frábært tækifæri til að eyða deginum með fjölskyldu og vinum.
Fyrst var leikið í þessu móti árið 1960 þegar Sam Snead stóð uppi sem sigurvegari. Fjölmargir fyrrverandi risameistarar sem eru komnir á gamals aldur taka þátt í par 3 keppninni á ári hverju og nýtur mótið mikilla vinsælda meðal áhorfenda. Alls hafa kylfingar farið 75 sinnum holu í höggi í par 3 mótinu frá upphafi og var met sett árið 2002 þegar fimm kylfingar fóru holu í höggi.
Ef þú ert þátttakandi í Masters-mótinu þá er ekkert sérstaklega spennandi að vinna par 3 keppnina. Aldrei í sögu Masters-mótsins hefur kylfingi tekist að vinna bæði par 3 keppnina og síðan sjálft Masters-mótið. Írinn Padraig Harrington hefur unnið þetta mót þrisvar á síðastliðnum áratug og síðast í fyrra þegar hann og Johnathan Byrd voru jafnir og efstir. Vallarmetið á par 3 vellinum er 20 högg og er í eigu þeirra Art Wall og Gay Brewer.