Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Stjörnu-Sævar segir að vikuna í aðdraganda almyrkvans síðastliðinn miðvikudag hafa verið þá allra rugluðustu sem hann hafi upplifað. Sjálfur missti hann næstum því af herlegheitunum. Innlent 16.8.2026 13:10
„Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ Stjörnu-Sævar er hvergi nærri hættur þó að almyrkvi á sólu verði ekki hér á landi næst fyrr en eftir 170 ár. Hann ætlar til Spánar á næsta ári að freista þess að sjá næsta almyrkva á sólu á Jörðinni í heiðskíru en hann mun standa yfir í 4 mínútur og 30 sekúndur. Innlent 14.8.2026 14:11
Bein útsending: Almyrkvi á sólu Líkt og alþjóð veit mun almyrkvi á sólu verða á vestanverðu landinu í dag. Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá þessum atburði í spilaranum hér fyrir neðan. Innlent 12.8.2026 16:02
Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki Innlent 12.8.2026 13:54
Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Innlent 10.8.2026 20:32
72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Þann 29. október árið 878 sást fyrsti almyrkvi sem samtímaheimildir eru um hérlendis en hann gekk yfir Bjargtanga, ytri hluta Snæfellsness og Reykjanesskaga um kl. 12:55. Síðan þá hafa ellefu almyrkvar sést frá Íslandi en þann 12. ágúst næstkomandi mun sá tólfti ganga yfir. Þá tekur við löng bið fram að þeim næsta. Innlent 8. ágúst 2026 11:30
Óvissa með sólmyrkvaveður Mikil óvissa er um veðrið á sólmyrkvanum á miðvikudag. Veðurfræðingur segir erfitt að spá í skýjafarið. Skýin ættu ekki að skemma sólmyrkvann en hafa töluverð áhrif á upplifunina að mati stjörnufræðings. Innlent 7. ágúst 2026 12:40
Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Almyrkvar á sólu eru sjaldgæfir atburðir á hverjum stað á jörðinni, þar sem skugginn fellur aðeins á lítið takmarkað svæði. Fræðilega séð gætu almyrkvar lengst varað í 7 mínútur og 31 sekúndu en venjulega eru þeir ekki lengri en 2-4 mínútur. En hver er munurinn á almyrkva, deildarmyrkva og hringmyrkva? og hvað er eiginlega sólmyrkvi? Innlent 7. ágúst 2026 11:31
Venjuleg sólgleraugu duga ekki til þann 12. ágúst Það þarf ekki að vera heiðskírt, né þarf að vera með kíki til þess að virða sjónarspilið fyrir sér þegar Íslendingar og aðrir sem eru staddir á landinu fá færi á að upplifa einhverja allra fallegustu sýningu náttúrunnar, almyrkva á sólu. Aftur á móti er nauðsynlegt að útvega sér þartilgerð sólmyrkvagleraugu til að vernda augun gegn skaðlegum geislum sólarinnar á meðan deildarmyrkva stendur. Innlent 6. ágúst 2026 11:32
Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag. Innlent 5. ágúst 2026 11:31
Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Bútur úr SpaceX-eldflaug sem er á stærð við fimm hæða hús og vegur í það minnsta fjögur tonn rakst á tunglið á sjöunda tímanum. Áreksturinn er ekki talinn hættulegur lífi á jörðinni og var hann ekki sýnilegur frá jörðu með berum augum. Búturinn er úr Falcon 9-eldflaug sem var skotið á loft frá Flórída með tvö tunglendingaför út í geim í janúar í fyrra. Erlent 5. ágúst 2026 07:43
Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Sterkar vísbendingar eru um að halastjarna sem kom inn í sólkerfið okkar í fyrra hafi myndast í mun eldra sólkerfi en okkar. Þetta er í fyrsta skipti sem stjörnufræðingum hefur tekist að gera svo ítarlegar mælingar á utanaðkomandi fyrirbæri í sólkerfinu okkar. Erlent 6. júlí 2026 09:02
Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í gær hvaða fjórir geimfarar munu framkvæma næsta geimskot Artemis-áætlunarinnar. Þessir geimfarar eiga að fara á braut um jörðu og prófa þar lendingarför sem til stendur að reyna að lenda á tunglinu árið 2028. Þessari geimferð er lýst sem þeirri flóknustu um árabil. Erlent 11. júní 2026 10:01
NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun standa í stórræðum hér á landi í ágúst þegar sólmyrkvinn stendur sem hæst. Flugvélar og loftbelgir koma við sögu. Innlent 10. júní 2026 21:20
Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Litlir rauðir blettir á myndum James Webb-geimsjónaukans (JWST) hafa um nokkuð skeið vakið furðu stjörnufræðinga og geimvísindamanna. Nú hefur þessi gáta mögulega verið leyst og rennir lausnin stoðum undir tilvist þess sem kallað er „svartholsstjarna“. Erlent 10. júní 2026 15:40
Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Rússneskir geimfarar ætla sér að framkvæma viðgerðir á rússneskum hluta Alþjóðlegu geimstöðvarinnar sem hefur lekið um árabil. Nýir lekar hafa greinst en geimfarar NASA áttu að leita sér skjóls um borð í geimfari sem er við geimstöðina á meðan viðgerðirnar yrðu framkvæmdar en hætt var við að gera þær í dag. Erlent 5. júní 2026 15:06
Senda loftbelgi á loft á hálftíma fresti á meðan sólmyrkvinn stendur yfir Bandarískir vísindamenn munu nýta loftbelgi til að gera mælingar, sem fjármagnaðar eru af geimferðastofnuninni NASA, á andrúmsloftinu yfir Íslandi. Mælingarnar verða framkvæmdar meðan á sólmyrkvanum stendur í ágúst og snúast um að kanna áhrif myrkvans á lægsta lag veðrahvolfsins. Vísindamennirnir hafa notið aðstoðar Háskóla Íslands, Sævars Helga Bragasonar og fleiri sérfræðinga hérlendis. Innlent 31. maí 2026 19:54
Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Eldflaug fyrirtækisins Blue Origin í eigu Jeff Bezos sprakk í loft upp í tilraunaskoti í Flórída í gærkvöldi. Engum starfsmanni var meint af en gríðarstór eldhnötturinn sást víða. Erlent 29. maí 2026 07:29
Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað. Erlent 27. maí 2026 14:14
Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Yfirvöld á Vesturlöndum hafa á undanförnum árum gjörbreytt nálgun sinni á fljúgandi furðuhluti. Lengi vel þótti umræðan fóðra langsóttar samsæriskenningar um að yfirvöld leyndu tilvist geimfara frá fjarlægum hnöttum. Ýmsar aðgerðir stjórnvalda til þess að gera lítið úr slíkum grunsemdum, oft með því að gera þær að beinu athlægi, gerðu hins vegar illt verra og mögnuðu upp slíkar kenningar. Lífið 26. maí 2026 14:00
Fljúgandi furðuhlutir, leyndarhyggja yfirvalda og samsæriskenningar Saga mannkyns er vörðuð frásögnum af torkennilegum fyrirbærum á himnum. Allt frá því að rómverski sagnaritarinn Titus Livius lýsti „glitrandi skjöldum“ yfir Róm árið 217 fyrir Krist, hafa menn reynt að rýna í dularfull ljós og form í háloftunum. En það var ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, í andrúmslofti taugatitrings og nýrrar tækni, sem þessi fyrirbæri fóru að snúast um ríkisleynd og meint samráð yfirvalda. Lífið 11. maí 2026 12:02
Telja sig hafa fundið lofthjúp utan um örreikistjörnu handan við Plútó Vísbendingar eru um að örreikistjarna utan við braut Plútós sé með þunnan lofthjúp. Hnötturinn væri þá sá minnsti í sólkerfinu með greinilegan lofthjúp sem er tjóðraður við hann með þyngdarkrafti. Erlent 6. maí 2026 13:56
Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Jared Isaacman, æðsti yfirmaður Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA), vill að Plútó verði skilgreind sem reikistjarna á ný. Næstum tveir áratugir eru liðnir síðan að himintunglið var svipt titlinum. Erlent 2. maí 2026 22:58
Fullkomin lending eftir sögulega ferð Geimfarar Artemis II eru komnir heilir á húfi aftur til jarðar eftir „fullkomna lendingu“ og hafa þar með lokið sinni sögulegu 10 daga geimferð. Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jermey Hansen lögðu af stað þann 1. apríl út í geim og er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1972 sem menn eru sendir til tunglsins. Erlent 11. apríl 2026 08:41
Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Geimfararnir fjórir um borð í Artemis II, sem fóru aftur fyrir tunglið, eru nú á leiðinni heim til jarðarinnar. Enginn hefur farið lengra út í geim heldur en geimfararnir. Erlent 8. apríl 2026 07:50
Artemis II er á heimleið Geimfararnir um borð í Orion geimfarinu eru nú á leið til jarðar að nýju eftir að hafa farið lengra út í geim en nokkrir aðrir geimfararar. Erlent 7. apríl 2026 07:33