Dramatík þegar Inter tapaði niður forystunni í uppbótartíma Internazionale varð af mikilvægum stigum í baráttunni um Evrópusæti í fyrsta leik dagsins í ítölsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 7. apríl 2023 16:59
Haaland búinn að hrista af sér meiðslin Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, segir Erling Braut Haaland vera orðinn leikfæran eftir að hafa misst af sannfærandi sigri gegn Liverpool í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla. Fótbolti 7. apríl 2023 15:58
Aftur gerði Dagný Nýja-Sjálandi grikk Dagný Brynjarsdóttir skoraði mark íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta þegar liðið gerði 1-1 jafntefli í vináttulandsleik gegn Nýja-Sjálandi sem spilaður var í Atsu í Tyrklandi í dag. Fótbolti 7. apríl 2023 15:06
Eriksen verður í hóp á morgun Christian Eriksen verður í leikmannahópi Manchester United þegar liðið mætir Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta karla í hádeginu á morgun. Fótbolti 7. apríl 2023 14:22
Víkingur kynnir færeyska landsliðsmiðvörðinn til leiks Knattspyrnudeild Víkings tilkynnti í dag að félagið hefði samið við varnarmanninn Gunnar Vatnhamar. Fótbolti 7. apríl 2023 12:45
Konur eiga ekki upp á pallborðið: „Vissi að ég yrði ekki kosin“ 47. ársþing UEFA fór fram í Lissabon í Portúgal í vikunni þar sem Slóveninn Aleksander Čeferin var endurkjörinn sem forseti sambandsins næstu fjögur árin án mótframboðs. Einnig var kosið um framkvæmdastjórn sambandsins til næstu fjögurra ára. Aðeins karlar hlutu kjör til stjórnarsetu. Fótbolti 7. apríl 2023 11:30
Þrír lykilleikmenn Liverpool nálgast endurkomu Liverpool fær topplið ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla, Arsenal, í heimsókn á Anfield á páskadag. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, ræddi við blaðamenn í morgun og færði þar jákvæð tíðindi að meiddum leikmönnum liðsins. Fótbolti 7. apríl 2023 10:40
Tískuvitund gömlu karlanna hjá Val tekin í gegn | myndskeið Adam Ægir Pálsson, leikmaður karlaliðs Vals í fótbolta, birti á dögunum myndskeið á Tik Tok-síðu sinni þar sem hann sýnir afrakstur þess þegar hann tók eldri leikmenn Valsliðsins í yfirhalningu hvað fatastíl þeirra varðar. Fótbolti 7. apríl 2023 10:22
„Haltu kjafti, þú ert ömurlegur“ Vincius Jr. skoraði eitt mark fyrir Real Madrid þegar liðið vann 4-0 stórsigur á Barcelona á Nou Camp í fyrrakvöld. Hann lenti í útistöðum við Gavi í leiknum og lét Spánverjann unga heyra það svo um munaði. Fótbolti 7. apríl 2023 09:00
Leika í bjórbúningi á Íslandsmótinu í sumar Búningar sem KFG mun leika í í 2.deildinni í knattspyrnu í vetur hafa vakið verðskuldaða athygli en félagið ákvað að búa til sinn eigin búning fyrir tímabilið. Fótbolti 7. apríl 2023 08:01
England hafði betur gegn Brasilíu í baráttu meistaranna England vann sigur á Brasilíu í Finalissima í kvöld eftir vítaspyrnukeppni. Leikurinn fór fram á troðfullum Wembley leikvanginum í London. Fótbolti 6. apríl 2023 21:05
FCK áfram í bikar þrátt fyrir jafntefli FC Kaupmannahöfn er komið áfram í undanúrslit danska bikarsins eftir marklaust jafntefli við Vejle sem leikur í næst efstu deild. FCK vann 2-0 sigur í fyrri leik liðanna. Fótbolti 6. apríl 2023 19:25
Daníel Leó kom inn af bekknum í tapi Daníel Leó Grétarsson og félagar í Slask Wroclaw biðu í dag lægri hlut á heimavelli gegn Piast Gliwice í pólsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 6. apríl 2023 18:00
Grindavík og Þróttur áfram í bikarnum Grindavík, Þróttur, Þór, Kári, Grótta og KFA tryggðu sér öll sæti í þriðju umferð Mjólkurbikarsins eftir sigra í dag. Fótbolti 6. apríl 2023 17:35
Sjóðheitur Orri áfram á markaskónum Orri Steinn Óskarsson skoraði annað marka Sönderjyske þegar liðið féll úr leik í danska bikarnum í knattspyrnu í dag. Sönderjyske tapaði 3-2 gegn Silkeborg og samtals 5-2. Fótbolti 6. apríl 2023 17:15
Auðveld ákvörðun að taka aftur við Chelsea: „Þetta er mitt félag“ Frank Lampard var kynntur til sögunnar sem bráðabirgðaknattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea í dag. Hann segir að ákvörðunin að snúa aftur til félagsins hafi verið auðveld. Fótbolti 6. apríl 2023 16:45
Fantasy leikur Bestu-deildarinnar kominn í loftið | Leikmenn missáttir við verð Fantasy leikur Bestu-deildar karla er kominn í loftið og geta spilarar því skráð sig og lið sitt til leiks. Besta-deildin fékk nokkra leikmenn til sín til að sjá hvað þeir munu kosta í leiknum og óhætt er að segja að viðbrögðin hafi verið misgóð. Fótbolti 6. apríl 2023 16:16
Viðurkennir að United treysti of mikið á Rashford Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segir að liðið treysti of mikið á framlag frá sóknarmanninum Marcus Rashford. Fótbolti 6. apríl 2023 15:45
Íslensku stepurnar töpuðu gegn Dönum Íslenska kvennalandsliðið skipað leikmönnum 23 ára og yngri mátti þola 3-1 tap er liðið mætti Danmörku í æfingaleik í dag. Fótbolti 6. apríl 2023 15:07
Lampard tekinn við Chelsea á ný Frank Lampard er tekinn við sem bráðabirgðastjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea. Fótbolti 6. apríl 2023 13:31
Heimsmeistararnir efstir á nýjum heimslista en Ísland fellur um eitt sæti Argentínsku heimsmeistararnir tróna á toppi nýs styrkleikalista FIFA yfir bestu knattspyrnuþjóðir heims. Argentínumenn stökkva upp um eitt sæti frá því að listinn var síðast gefinn út, en Ísland fellur hins vegar niður um eitt sæti. Fótbolti 6. apríl 2023 09:30
Talið að Lampard taki tímabundið við Frank Lampard verður innan tíðar kynntur til leiks sem nýr knattspyrnustjóri karlaliðs Chelsea. Fótboltablaðamaðurinn Fabrizio Romano segir að Lampard hafi samið við Chelsea um að stýra liðinu út yfirstandandi keppnistímabil. Fótbolti 6. apríl 2023 07:01
Real Madrid slátraði erkifjanda sínum á Nývangi Real Madrid burstaði erkifjanda sinn, Barcelona, þegar liðin áttust við í seinni leik sínum í undanúrslitum spænska konungsbikarsins í fótbolta karla á Nývangi í kvöld. Fótbolti 5. apríl 2023 21:30
Hörður Björgvin kom inná þegar lið hans kreisti fram mikilvæg stig Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður í fótbolta, kom inná sem varamaður þegar lið hans, Pantathinakos, lagði Aris að velli með einu marki gegn engu í grísku úrvalsdeildinni í kvöld. Fótbolti 5. apríl 2023 18:41
Valskonur fá bandarískan markvörð í stað Söndru Bandaríski markvörðurinn Kelly Rowswell er genginn í raðir Vals frá Orlando Pride. Rowswell er ætlað að leysa Söndru Sigurðardóttur af hólmi sem lagði hanskana á hilluna í síðasta mánuði. Fótbolti 5. apríl 2023 17:01
Enska knattspyrnusambandið vill að Mitrovic fá lengra bann Enska knattspyrnusambandið, FA, vill að Aleksandar Mitrovic, framherji Fulham, fái harðari refsingu en átta leikja bann eftir að hann ýtti dómara leiksins í bikarleiknum gegn Manchester United á dögunum. Fótbolti 5. apríl 2023 16:31
Daníel Guðjohnsen skrifar undir atvinnumannasamning við Malmö Hinn 17 ára gamli Daníel Tristan Guðjohnsen hefur skrifað undir atvinnumannasamning við sænska úrvalsdeildarfélagið Malmö. Fótbolti 5. apríl 2023 14:15
Enginn Fantasy leikur fyrir kvennadeildina: „Besta-deild karla kemst ekki í top 30“ Íris Dögg Gunnarsdóttir, markvörður Þróttar í Bestu-deild kvenna og íslenska landsliðsins, er ekki sátt við ákvörðun ÍTF (Íslensks Toppfótbolta) um að hafa aðeins Fantasy leik fyrir Bestu-deild karla en engann fyrir Bestu-deild kvenna. Fótbolti 5. apríl 2023 12:00
Lukaku hafi verið að þagga niður í kynþáttaníð þegar rauða spjaldið fór á loft Belgíski framherjinn Romelu Lukaku reyndist hetja Inter er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Juventus í ítölsku bikarkeppninni í fótbolta í gærkvöldi. Lukaku jafnaði metin með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma, en fékk svo að líta sitt annað gula spjald í leiknum fyrir að fagna fyrir framan stuðningsmenn Juvenstus. Fótbolti 5. apríl 2023 11:31
Dómari í langt bann fyrir að sparka í punginn á leikmanni Dómari í Mexíkó hefur verið dæmdur í tólf leikja bann fyrir að sparka í leikmann. Fótbolti 5. apríl 2023 07:31