

Flóttamenn
Fréttir af málefnum flóttamanna.

Ungverjar og Slóvakar verða líka að taka á móti flóttamönnum
Meirihluti ríkja Evrópusambandsins tók ákvörðunina árið 2015, þegar sem flestir flóttamenn komu til álfunnar, en Ungverjar og Slóvakar hafa ekki viljað taka á móti þeim flóttamönnum sem þeim er skylt að gera.

Boða til mótmæla vegna brottvísunar Haniye og Mary: „Það er svo mikil grimmd í þessu“
Samtökin Solaris hafa boðað til mótmæla á Austurvelli næstkomandi laugardag klukkan 15 vegna brottvísunar tveggja flóttafjölskyldna úr landi.

Verða að hætta landamæraeftirlitinu í nóvember
ESB mun ekki samþykkja framlengingu á tímabundnu eftirliti á innri landamærum Schengen.

Hafnar kröfum Ungverja og Slóvaka um skiptingu flóttamanna
Evrópudómstóllinn hefur hafnað kröfum ungverskra og slóvakskra stjórnvalda varðandi ákvörðun ráðherraráðs Evrópusambandsins um skiptingu kvótaflóttamanna á milli aðildarríkjanna.

Formaður Samfylkingarinnar segir ómannúðlegt að taka ekki við ungum flóttastúlkum
Íslensk stjórnvöld ætla að senda tvær ungar stúlkur sem leituðu hælis hér úr landi.

Svíar ætla að reka 106 ára afganska flóttakonu úr landi
Útlendingastofnun Svíþjóðar segir að hár aldur sé almennt ekki grundvöllur til að veita fólki hæli.

Haniye og föður hennar verður vísað úr landi
Allt stefnir í að feðginunum Haniye og Abrahim Malekym verði vísað úr landi á næstu dögum.

Þorsteinn vill taka flóttamannaumræðuna: Hagvöxtur og velmegun minni án innflytjenda
Félagsmálaráðherra gagnrýnir þá sem hann telur ala á andúð í garð innflytjenda.

Tekið á móti hinsegin flóttafólki í annað sinn
Ríkisstjórnin samþykkti í gær að taka á móti allt að 55 kvótaflóttamönnum á næsta ári.

Fleiri ungmennum kastað í sjóinn við strendur Jemen
Minnst nítján eru látnir, en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna óttast að slíkum atvikum muni fjölga.

Sakaður um að drekkja minnst 29 ungmennum
Smyglari er sagður hafa hent 120 ungmennum frá borði undan ströndum Jemen. 27 er enn saknað.

Austurríski herinn reiðubúinn að stöðva flóttamenn frá Ítalíu
Varnarmálaráðherra Austurríkis segist búast við að landamæraeftirlit verði tekið upp á næstunni.

Yfirvöld á Ítalíu hóta að loka fyrir hafnir og stöðva flæði flóttamanna
Margir hafa velt því fyrir sér hvort að hótun Ítala sé einungis til að vekja athygli annarra þjóða á versnandi ástandi frekar en að raunverulegur vilji búi að baki.

Blindur írakskur flóttamaður vinnur sigur vegna örorkubóta
Tryggingastofnun taldi aðeins svonefnda kvótaflóttamenn eiga rétt á bótum strax og gæti úrskurðurinn haft fordæmisgildi í slíkum málum.

Sex manna alsírskri fjölskyldu vísað úr landi
Fjölskyldan var sótt á heimili sitt um klukkan tíu í kvöld og fylgdi lögregla þeim á Keflavíkurflugvöll þar sem þau verða flutt til Spánar.

Bein útsending: Ráðstefna um málefni flóttamanna
Mannréttindastofnun Háskóla Íslands og Nordic Migration Institute standa fyrir Nordic Asylum Law Seminar dagana 29. til 30. maí.

Íhuga rannsókn á mannréttindabrotum í Líbíu
Talið er að um tuttugu þúsund manns séu í haldi glæpagengja og séu seld á þrælamörkuðum og neydd í ánauð.

Sýrlenskir flóttamenn í Kanada nefna son sinn Justin Trudeau
Sýrlensku hjónin Muhammad og Afraa Bilan, sem komu frá Damascus í Sýrlandi til Kanada nú í vetur, eignuðust son á fimmtudag. Sonurinn hefur hlotið nafnið Justin Trudeau í höfuðið á forsætisráðherranum geðþekka.

700 þúsund fengu hæli í ESB
Rúmlega 700 þúsund einstaklingar fengu hæli í einhverju aðildarríkja Evrópusambandsins, ESB, í fyrra. Nær 60 prósent hælisleitendanna komu frá Sýrlandi. Þjóðverjar tóku á móti flestum þeirra sem sóttu um hæli eða 70 prósentum.

Segir hjálparsamtök hagnast á mansali á Miðjarðarhafi
Ítalskur saksóknari segir að hann hafi sönnunargögn undir höndum sem bendi til þess að hjálparsamtök aðstoði líbíska glæpahringi við að hneppa flóttafólk í ánauð.

Páfinn líkir flóttamannamiðstöðvum í Evrópu við fangabúðir
Þetta er haft eftir Frans páfa er hann ávarpaði samkomu flóttamanna í basilíku í Róm. Hann þakkaði þeim sem taka á móti flóttamönnum en sagði að svo virtist sem "alþjóðleg samkomulög skipti meira máli en mannréttindi.“

Sjötíu hælisleitendur sendir úr landi með vasapening
Hælisleitendur sem samþykkja sjálfir brottflutning frá Íslandi fá 23.000 krónur í vasapening þegar þeir eru sendir burt frá landinu. Útlendingastofnun nálgast að vera búin að fullnýta samning um brottflutning á fyrstu mánuðum ársins.

Þúsundum flóttamanna bjargað um helgina
Þúsundum flóttamanna var bjargað úr sjó við strendur Líbíu um helgina.

Mannskæð sprenging í grennd við Aleppo
Margir eru særðir og einhverjir létust eftir sprengingu í grennd við bílalest sem beið eftir að komast inn í sýrlensku borgina Aleppo í dag.

Sjö ára sýrlensk stúlka gefur út ævisögu
Bana al-Abed vakti mikla athygli á síðasta ári fyrir lýsingar sínar á Twitter á ástandinu í Sýrlandi. Bók hennar kemur út í Bandaríkjunum í haust.

Brottflutningur almennra borgara hafinn í fjórum sýrlenskum bæjum
Gert er ráð fyrir að um þrjátíu þúsund manns verði fluttir í öruggt skjól. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst ástandinu í sýrlensku bæjunum Foah, Kefraya, Madaya og Zabadini sem "hörmulegu.“

Flóttafólk selt á þrælamörkuðum
Hundruðir ungra karlmanna frá afríkulöndum sunnan Sahara hafa verið seldir á þrælamörkuðum í Líbíu.

Flóttamannabúðir við Dunkirk brenna til kaldra kola
10 eru særðir eftir að eldur kviknaði í Grand-Synthe tjaldbúðunum við frönsku borgina Dunkirk.

40 milljónir í neyðaraðstoð
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hefur ákveðið að fela Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) að ráðstafa 40 milljónum íslenskra króna

Trump kynnir nýja ferðabannstilskipun í dag
Fyrri tilskipun bannaði ríkisborgurum frá Írak, Sýrlandi, Súdan, Íran, Sómalíu, Líbíu og Jemen að ferðast til Bandaríkjanna næstu níutíu dagana.