

Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.
Takmarkaðir stækkunarmöguleikar á Keflavíkurflugvelli, sé horft til lengri framtíðar, og flugstöð sem hentar illa tengiflugi, eru meðal ástæðna þess að Hvassahraun er sagt betri framtíðarkostur.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að þegar horft sé áratugi fram í tímann sé það engin spurning að hagkvæmt sé fyrir þjóðfélagið og ferðaþjónustuna að hafa einn sameiginlegan innanlands- og millilandaflugvöll.
Fyrr á þessu ári kom út skýrsla Hæfniseturs ferðaþjónustunnar um formlegt nám í ferðaþjónustu.
Ráðamenn Icelandair vilja að Hvassahraun verði áfram skoðað sem framtíðarstaðsetning fyrir millilandaflug, - hagkvæmt verði að hafa sameiginlegan völl fyrir innanlands- og millilandaflug.
Liv Bergþórsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku í stjórn Keahótela.
Að mörgu þarf að huga við móttöku kínverskra ferðamanna því að menningarmunurinn getur verið mikill. Af því tilefni mun Íslandsstofa standa fyrir fræðslufundi þann 22. janúar í samvinnu við Ferðamálastofu, kínverska sendiráðið, Samtök verslunar og þjónustu, Samtök ferðaþjónustu og Íslenska-kínverska verslunarráðið.
Disney-teiknimyndin Frozen II sem sýnd er í kvikmyndahúsum víða um heim er innblásin af íslenskri náttúru. Glöggir áhorfendur geta vel séð íslenskt landslag í bakgrunni. Íslandsstofa segir þetta vera verðmæta landkynningu, sérstaklega fyrir fjölskyldufólk.
Í fyrsta sinn á Íslandi geta innlendir og erlendir ferðalangar séð allar upplýsingar sem tengjast færð og veðri á einu íslandskorti á vef Safetravel. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála tók kortið formlega í notkun í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík í gær.
Bændurnir á Vatnsskarðshólum eru þeir sem besta útsýnið hafa í dyrnar á Dyrhólaey. Þeir eru samt með þeim fáu í Mýrdal sem hafa ekki haslað sér völl í ferðaþjónustu,
Jarðfræðingur telur að ef Torfajökulssvæðið, sem Landmannalaugar tilheyra, kæmist á Heimsminjaskrá UNESCO hefði það mikla þýðingu fyrir ferðaþjónustuna, vernd og rannsóknir. Er á yfirlitsskrá en var sett fyrir aftan Vatnajökulsþjóðgarð í forgangsröðinni.
Á toppi Eyrarfjalls yrði veitingastaður sem tæki 250 manns í sæti.
Húsfreyjan Eva Dögg Þorsteinsdóttir í Mýrdal notar óvenjulega aðferð til að hóa í kindurnar sínar. Það mátti sjá og heyra í þættinum "Um land allt“ á Stöð 2.
Talið er að rekja megi banaslys sem varð í mars 2018 á Lyngdalsheiðinni til þess að ökumaður fólksbíls hafi sofnað undir stýri eða misst athyglina frá akstri bílsins með þeim afleiðingum að bílnum var ekið yfir á rangan vegarhelming og í veg fyrir vörubíl sem kom úr gagnstæðri átt.
Tekjur af samgöngum og flutningum á þriðja ársfjórðungi lækkuðu um 18,3 milljarða króna eða 21,7 prósent. Mestur samdráttur var í tekjum af flugi með farþega.
Nánast allir sveitabæir í Mýrdal eru komnir í ferðaþjónustu og er hefðbundinn búskapur mjög á undanhaldi. Erlendum starfsmönnum hefur fjölgað svo að rótgrónir Mýrdælingar segjast varla þekkja helming íbúanna.
Töluverðar fjárhæðir tapast ár hvert vegna óborgaðra hraðasekta. Ítrekað kemur upp sú staða að erlendir ferðamenn fái háar fjársektir fyrir of háan akstur, sem kemst upp um í gegn um hraðamyndavélar, en þær eru aldrei borgaðar.
Ökumaður jepplings á Suðurlandi var sektaður um 150 þúsund krónur í síðustu viku fyrir að hafa ekið í hringi utan vegar á Skeiðarársandi. Þetta kemur fram í skýrslu Lögreglunnar á Suðurlandi um verkefni síðustu viku.
"Ég ætla rétt að vona að sveitaböllin lifni við aftur og ég geti tekið nokkur áður en ég úreldist,“ segir húsfreyjan í Þórisholti í Mýrdal, Halla Ólafsdóttir, og skellihlær.
Félag íslenskra bifreiðaeiganda vekur athygli á að nánast allar hraðasektir sem erlendir ferðamenn fá séu felldar niður. Þannig séu um 250 milljónir á ári afskrifaðar. Framkvæmdastjórinn telur eðlilegt að tekið sé á þessu í nýjum umferðarlögum.
Erlendir ferðamenn skipuleggja og kaupa dvöl sína hér á landi (og annars staðar) að stórum hluta í gegnum umsvifamiklar sölusíður á netinu.
Í nýrri tillögu að deiliskipulagi jarðarinnar Leynis í Rangárþingi ytra er gert ráð fyrir því að umdeild hjólhýsi ferðaþjónustufyrirtækisins Iceland Igloo Village verði fjarlægð.
Það er okkar draumur að Vík verði ævintýraþorp Íslands, segir Samúel Alexandersson, einn fjórmenninganna sem standa að svifvængjaflugi og línubruni í Vík í Mýrdal.
Framkvæmdir hafa staðið yfir undanfarið við lagningu rafmagns í Langadal og Bása í Þórsmörk. Fyrir vikið verða ekki lengur brenndir þúsundir lítra af olíu á þessum vinsæla ferðamannastað.
Útivistarstígurinn Stangarbakkavegur á Húsavík hefur að mestu leyti tekið á sig mynd en hann er upphitaður með frárennsli. A
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt að bresk kona sem slasaðist í ferð á vegum Sterna Travel árið 2014 eigi rétt á skaðabótum frá Sternu vegna helmings þess tjóns sem hún varð fyrir er hún slasaðist.
Veðrið undir Eyjafjöllum í morgun var snælduvitlaust og algjörlega galið að fara af stað í þessum aðstæðum. Engar rútur frá Hópbílum, Strætó eða Snæland voru á ferðinni í morgun enda gul viðvörun í gildi, vindhviður upp á 40 m/s og lögregla hafði varað fólk við því að vera á ferðinni.
Vík í Mýrdal er orðin alþjóðlegasta þorp landsins en fjörutíu prósent íbúanna eru núna erlendir ríkisborgarar. Rótgrónir Mýrdælingar segja þetta jákvæða breytingu.
Fjögur ráðuneyti hafa ákveðið að ráðast í gerð áhættumats við Reynisfjöru vegna tíðra slysa á svæðinu.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála, mun fjármagna og fylgja eftir verkefni um áhættumat fyrir Reynisfjöru ásamt skilgreiningu verkferla.
Magnús Sverrir Þorsteinsson stofnaði Blue Car Rental árið 2010 ásamt eiginkonu sinni, Guðrúnu Sædal Björgvinsdóttur. Þau fóru af stað með aðeins fimm bílaleigubíla en í dag telur bílaflotinn yfir tvö þúsund bíla.