

Fastir pennar

Umræðan um umræðuna
Upp úr sauð á Alþingi í gær. Eins og stundum vill gerast. Tilefnið var ummæli Jóns Gunnarssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um Björk Guðmundsdóttur söngkonu og líkast til frægasta núlifandi Íslendinginn.

Bensín á aðventunni
Bíllinn minn fær litla ást. Eða hann fær mikið af fallegum hugsunum og þakklæti í hjarta en það er eitthvað minna um að ástin sé sýnd í verki. Sem ku ekki vera farsæl formúla í nánum samböndum. Að þrífa bíl. Óhæf. Að fara með hann á réttum

Mikil markmið
Parísarsamkomulagið var samþykkt með lófataki að lokinni loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna Cop21 á sunnudag.

Vandi og vegsemd
Myndin af litla drengnum með tuskubangsann sinn á leið út í myrkrið og kuldann verður greypt í minni okkar allra um ókomin ár og mun í hvert sinn sem hún kemur í hugann vekja með okkur sára skömm yfir því að vera Íslendingar; að hafa látið Útlendingastofnun fara sínu fram af slíkri rangsleitni, í okkar nafni.

Allir út að ýta
Það er eins og svona yfirgengilegt magn af snjó dragi fram það besta í okkur.

Gott fólk
Af öllu því sem við reynum að kenna börnunum okkar er ekkert eins mikilvægt og það að vera góð manneskja. Að breyta rétt gagnvart öðrum og láta sig varða um líf og líðan náungans.

Ekki vera skaufi
Kara Florish, þrítug óperusöngkona, sat í neðanjarðarlestinni í London þegar miðaldra karlmaður tók að fikra sig í áttina til hennar. Kara var á leið á jólamarkað þar sem hún hugðist hitta fjölskyldu sína. Lestin var við það að renna í hlað í Warren Street þegar maðurinn nam staðar fyrir framan hana.

Einn er ómissandi
Jósef Tító var ástsæll leiðtogi Júgóslavíu í áratugi. Hann sagði skömmu áður en hann dó að allt mundi fara til andskotans þegar hann væri allur. Eftir andlát Títós klofnaði Júgóslavía í ótal smáríki með tilheyrandi ófriði og þjáningum. Sama sagði Nikolaj Ceausescu Rúmeníuforseti.

Lærdómur af ákæru
Óhætt er að fullyrða að við höfum flest andað léttar þegar héraðsdómur kvað upp sýknudóm yfir Ástu Kristínu Andrésdóttur, hjúkrunarfræðingi í vikunni.

Ofbeldisbörn
Varð óvart vitni að prívatsamtali tveggja manneskja á götuhorni um daginn. Setningarnar sem flugu á milli voru upp á líf og dauða. – Hvað gerist ef ég sting þessu í hjartað á þér? – Ég dey! Ég dey strax. Þetta voru tvö börn. Annað þeirra þungvopnað. Lúffuklæddar hendur kreistu risavaxið grýlukerti.

Pólitík er leiðinleg
Ég fékk áhuga á pólitík þegar ég var sjö ára. Ég man vel eftir bandarísku forsetakosningunum 1988. Dukakis á móti Bush. Ég var skeptískur út í Bush. Ég skildi ekki hvers vegna Reagan gat ekki verið áfram. "Hann er orðinn gamall,“ var mér sagt en það var reyndar akkúrat ástæðan fyrir því að mér líkaði við hann.

Skiljanleg reiði
Fjöldi fólks frá Albaníu sem festa vill rætur á Íslandi veldur stjórnvöldum nokkrum vandkvæðum, enda fellur fólkið ekki undir skilgreiningar sem notast er við á flóttafólki.

Hreint Ísland
Að undanförnu hef ég spáð í að stofna framboð fyrir næstu þingkosningar. Pólítískt bakland "Hreins Íslands“ yrði á svipuðum slóðum og bakland Le Pen, Svíþjóðardemókrata og líklegs forsetaframbjóðanda sem nú þegar strýkur boga sínum yfir strengi fordóma

Sökkvandi lönd
Kiribati heitir eyjaklasi í miðju Kyrrahafi þar sem búa 100.000 manns. Landið er ekki nema 800 ferkílómetrar að flatarmáli svo að þéttleiki byggðar þar er meiri en í kraðakinu í Tókíó. Eyjarnar 32 dreifast yfir hafsvæði á stærð við Indland. Kiribati varð sjálfstætt ríki 1979, en hafði áður verið brezk nýlenda.

Konur eiga sig sjálfar
Endurskoðun löggjafar um fóstureyðingar er í gangi í heilbrigðisráðuneytinu. Ákvæði laganna hafa staðið óbreytt í 40 ár. Þar er kveðið á um að fóstureyðing sé heimil undir ákveðnum kringumstæðum, þar á meðal þegar ætla má að tilkoma barns verði konunni of erfið vegna félagslegra aðstæðna.

Styrkjum sveitirnar
Í flestum vestrænum löndum eru það ríkisreknir herir sem kallaðir eru út til að sinna björgunarstörfum, en á Íslandi eru það sjálfboðaliðar.

Góð stjórnun á umhverfinu snýst um eignarrétt
Sögulega hafa flestar fiskveiðiþjóðir heims átt í vandræðum vegna ofveiði. Ástæðan fyrir þessu er klemman sem sjómenn standa frammi fyrir.

Kári, Stormur og Diddú
Ég held við ættum því bara að vera þakklát. Enda sýnist mér að fæstir hafi nú tapað á þessum óveðursaðvörunum.

Verðtrygging skiptir engu máli
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, var tekinn tali í sjónvarpsþættinum Eyjunni á Stöð 2 á sunnudagskvöld. Hann ræddi þar stöðu efnahagsmála, en var einnig spurður út í verðtrygginguna sem margir hafa illan bifur á.

Dularfullir náttfarar
Um niðdimma nótt mæti ég sama fólkinu, nánast á sama stað, þar sem ég staulast til vinnu. Þetta er svo árla dags að það vottar ekki fyrir bílaumferð og þeir fáu sem eru á ferli virka mystískir.

Kassastykki
Er þetta frétt? Er þetta list? Þessar spurningar koma aftur og aftur og yfirleitt virðist svarið vera nú á okkar lýðræðistímum: Ef einhverjum finnst að svo sé – þá er það svo. List? Frétt? Hvað finnst þér? Það er sem er.

Grýlukerti í hausinn
Það er kominn sjöundi desember, Almar er örugglega við það að skríða úr kassanum og Aaron Carter á afmæli í dag. Það eru 24 dagar eftir af árinu, 17 dagar til jóla og loksins samfélagslega samþykkt að drekka jólaglögg á öllum tímum sólarhringsins því það er svo ógeðslega kalt.

Hættum þessu kjaftæði
Kjartan Atli Kjartansson, blaðamaður og umsjónarmaður þáttarins Körfuboltakvöld á Stöð 2 Sport, lét áhorfendur á körfuboltavellinum heyra það all hraustlega í þættinum síðastliðið föstudagskvöld.

Mögnuð jólagjöf
Fyrir jólin 1982 seldust fjórtán þúsund eintök af sundlaugarbláa fótanuddtækinu frá danska raftækjaframleiðandanum Clairol í Radíóbúðinni sálugu. Fjórtán þúsund eintök af þessum upphafna bala hvíla nú í geymslum um allt land fullir af grifflum og legghlífum sömu jóla

Klink með skilyrðum
Eflaust var góð meining á bak við frístundastyrki sveitarfélaga. En lokaniðurstaðan er samt sú að búið er að hólfa höfuðborgarsvæðið niður í eins konar tollsvæði með frístundir. Þeir sem starfa með krökkum þurfa nú ekki bara að sannfæra foreldra

Geðlyfin virka ekki ein og sér
Það er mikilvægt sem aldrei fyrr að færa sálfræðinga nær fólkinu – gera reglulegar heimsóknir til þeirra að sjálfsögðum hlut fyrir þá sem vilja og þurfa.

Húmorsleysi er hættulegt
Finnst til dæmis engum það fyndið nema mér að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra leggi nú ofurkapp á það að fá að friða byggingar og mannvirki sem falla að smekkvísi hans og fágun. Er það ekki sami Sigmundur Davíð og mætti á fund með forseta Bandaríkjanna íklæddur einum lakkskó og einum körfuboltaskó?

Kerfið
Vonandi er þetta breytta verklag á neyðarmóttökunni aðeins fyrsta skrefið af mörgum sem tekin verða til að bæta kerfið.

Af rökum
Að vilja ekki deila samfélagi með manneskju sem aðhyllist ekki sömu trúarbrögð og þú er eins og að gera þá kröfu að manneskjan sem situr við hliðina á þér í bíó gangi út úr salnum með nákvæmlega sömu skoðanir og þú á myndinni.

Hvítar lygar
Hvers vegna grípur fólk til hvítra lyga? Fyrir því eru auðvitað margvíslegar ástæður. Ég á einn félaga sem virðist hreinlega ekki geta sagt satt. Það er bara eitthvað sem heimilar honum það ekki.